Fréttablaðið - 10.11.2022, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 10.11.2022, Blaðsíða 40
Þetta er svona kosm- ískur fiðluheimur, ef svo má segja, fiðlulaga vídd. Pétur Eggertsson BÆKUR Ofurvættir Höfundur: Ólafur Gunnar Guðlaugsson Fjöldi síðna: 355 Útgefandi: Vaka-Helgafell Brynhildur Björnsdóttir Bókin Ofurvættir er önnur í þriggja bóka f lokki Ólafs Gunnars Guð- laugssonar Síðasti seiðskrattinn en fyrri bókin Ljósberi hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin í fyrra. Hér höldum við áfram að fylgja eftir unglingunum Hildi, Theódóru, Baldri og Bjarna sem í síðustu bók urðu ýmissa ofurkrafta sinna áskynja og þurftu auk þess að horfast í augu við þá staðreynd í bókarlok að heimurinn er í hættu og ekki bara okkar heimur heldur allir heimar. Og það er undir þeim og hæfileikum þeirra komið að bjarga honum. Sagan er sem fyrr sögð í fyrstu persónu frá sjónarhóli þeirra hvers um sig og þannig flakkar les- andinn um bæði sögusvið og hugar- heima eftir því hvar sjónarhornið er. Í fyrstu bókinni var áherslan á Ísland, forna trú og hjátrú, hauga og drauga en í þessari bók er farið lengra á lendur annars konar fant- asíu sem á minna skylt við þjóðsagnaarfinn, fleiri heimar kannaðir og ferðast á milli þeirra auk þess sem unnið er með minnið um guð- ina sem ofmetnast og falla með skelfilegum a f leiði ng u m f y r i r mannkyn allt. Flókinn söguþráður S ö g u p e r s ó n u r n a r eru komnar dýpra inn á lendur furðu- sögunnar og hvers- dagsleikinn sem kom á svo skemmtilegan hátt inn í fyrri bókina er ekki eins áþreifanlegur, tengingin við okkar heim minni. Bókin hnikar sér því milli greina innan furðusagnaflokksins, frá því að vera úrvinnsla úr þjóð- og goð- sagnaarfinum og yfir í heimasköpun þar sem tengingin við okkar heim er nánast aukaatriði. Slík heimasköpun krefst mikillar hugmyndavinnu og í bókinni er stöðugt verið að kynna nýjar hug- myndir, persónur og sögusvið til sögunnar svo stundum getur orðið ruglings- legt að fylgja því eftir auk dulspekipælinga um eðli alheimsins sem eru áhugaverðar en flækjast aðeins fyrir sög uþr æðinu m. En þetta er alvanalegt með miðjubækur í þríleikj- um, þær þjóna í raun því hlutverki að vera brú milli upphafs og endis, persónur þróast en ná engum lausnum strax og söguþráður flækist til þess að hægt sé að leysa hann farsællega í lokabókinni. Heldur lesanda við efnið Þessi hluti þríleiksins minnir á köf lum á seinni bækurnar í þrí- leik Philips Pullman um myrku öflin (His Dark Materials), einkum þó þegar kemur að flakkinu milli heima og pælinga. Hugmyndin um guðina sem eins konar ofurvætti sem bera í sér alla möguleika og breyskleika er skemmtilega útfærð en síendurteknar upplifanir krakk- anna á heildarskipulagi alheimsins gegnum þriðju augun verða aðeins tilbreytingarlausar til lengdar. Bókin heldur samt lesandanum við efnið enda búið að byggja vel undir tengingar við persónurnar og framvinduna í fyrstu bókinni. Per- sónusköpun krakkanna er þó flat- ari hér enda verða þau í raun tákn- myndir sinna einstöku krafta frekar en unglingar af holdi og blóði og það er mikilvægt, ef ekki nauðsynlegt, að hafa lesið Ljósbera til að fá samhengi við persónur og framvindu. Ofurvættir ætti að gleðja unn- endur góðra fantasíubóka og þau sem hrifust af Ljósberanum verða ekki fyrir vonbrigðum með þetta framhald. Það á þó eftir að hnýta marga hnúta sem væntanlega gerist ekki fyrr en að ári. n NIÐURSTAÐA: Ágætis framhald af Ljósberanum en framvindan geldur aðeins fyrir hugmynda- vinnu og heimssköpun. Dulspekilegir hliðarheimar n Listin sem breytti lífi mínu Gabríel Benjamin fyrrverandi blaða- og verka- lýðsmaður, segir lesendum Fréttablaðsins frá listinni sem breytti lífi hans. „Ég hef verið um 21 árs þegar að ég sá kvik- myndina Children of Men eftir Alfonso Cuarón, en hún er byggð á samnefndri bók í heimi þar sem börn hafa ekki fæðst í um tvo ára- tugi. Auk ótrúlegrar kvikmynda- töku tæklar hún mörg málefni sem standa mér mjög nærri, eins og uppgang fasisma í skugga hræðslu og óvissu, og virði lífsins og lista við endalok mannkynsins. En það sem hafði mest áhrif var hvernig myndin fjallaði um flótta- fólk. Útsendarar sterkra og alráða stjórnvalda Bretlands elta uppi og handsama flóttafólk. Ítrekað dvelur linsa kvikmyndarinnar við flóttafólk sem er rýmt úr húsa- skjóli sínu, fangelsað í búrum og misþyrmt af hervæddri lögreglu. Í fyrstu fannst mér þetta vera áhrifamikill vísindaskáldskapur, en í ítarefni myndarinnar var sýnt hvernig hervædd lögregla misþyrmdi umsækjendum um alþjóðlega vernd í Grikklandi og sendi jarðýtur til að jafnaði flótta- mannabúðir við jörðu. Þessi kvik- mynd opnaði augu mín og ég hef haldið þeim opnum síðan þá. Skömmu síðar fór ég með Hauki heitnum Hilmarssyni á FIT Hostel þar sem íslenska ríkið lét flótta- fólk grotna niður. Síðar meir sem blaðamaður var ég óhræddur við að nota dagskrárvald mitt til að vekja athygli á óréttlæti í þessum málaflokki, eins og í tilviki Tony Omos og Evelyn Glory Joseph í lekamálinu, og Chaplas Menka sem var stunginn með eggvopni af lögreglunni. Frá útgáfu kvikmyndarinnar höfum við séð bandarísk yfirvöld aðskilja fjölskyldur og fangelsa börn í búrum, og séð hérlenda mannvonsku aukast er stjórn- völd handsama flóttafólk á leið í skóla nokkrum dögum áður en mál þeirra er tekið fyrir af dómstólum. Í Children of Men er búið að normalísera ofbeldi gegn flóttafólki. Það er hversdagslegt. Að mótmæla því í raunheimi er að berjast fyrir betri heimi en Alf- onso Cuarón varaði okkur við.“ n Í Children of Men er búið að normalísera ofbeldi gegn flótta- fólki. Það er hversdags- legt. Að mótmæla því í raunheimi er að berjast fyrir betri heimi en Alfonso Cuarón varaði okkur við. Pétur Eggertsson og Gígja Jónsdóttir bjóða áhorfendum inn í fiðlulaga klúbbaveröld á Litla sviði Borgarleikhúss- ins. Þau mynda teknófiðlu- dúóið Geigen og unnu verkið Geigengeist í samstarfi við Íslenska dansflokkinn. tsh@frettabladid.is Fyrsta frumsýning Íslenska dans- flokksins starfsárið 2022–2023 er verkið Geigengeist eftir teknó fiðlu- dúóið Geigen næsta föstudag. Geigen samanstendur af tónskáldinu Pétri Eggertssyni og danshöfundinum og listakonunni Gígju Jónsdóttur. Frá árinu 2018 hafa þau unnið saman að því að útvíkka veröld fiðlunnar með ýmsum gjörningum. Gígja: „Við erum svolítið að stækka okkar heim með þessu verki og erum komin með átta fleiri Geigen-verur inn í heiminn okkar sem eru dansarar frá Íslenska dans- flokknum. Þannig fáum við líkam- leikann í gegn enn betur, við höfum svolítið verið að fókusa á tónlistina áður. Auðvitað er performansinn alltaf sterkur en núna er líkaminn að koma betur fram.“ Samruni fiðlu og raftónlistar Að sögn Gígju er hugmyndafræði og fagurfræði fiðlunnar í forgrunni verksins sem rennur svo saman við heim teknótónlistar og klúbba- menningar. Gígja: „Geigen-heimurinn er svo- lítið samruni fiðlunnar og teknó- raftónlistar, þannig að við erum líka að skoða teknódansa.“ Pétur bætir því við að í Geigen- geist megi einnig finna fagurfræði barokk-listastefnunnar og vísinda- skáldskapar. Spurður um hvort jafn ólíkar tónlistarstefnur og teknó og barokk eigi samleið segir hann: Pétur: „Já, þær eiga klárlega sam- leið og það er bara kominn tími til að fiðlan fái aðeins að njóta sín í öðru umhverfi. Hún er búin að vera svolítið föst í einhverri staðalímynd og klassískri birtingarmynd. Okkar markmið með Geigen er að brjóta algjörlega þessar staðalímyndir og leyfa fiðlunni að njóta sín í nýju umhverfi.“ Fiðlulaga vídd Geigen er þýska orðið yfir fiðlur en Pétur og Gígja stofnuðu Geigen- dúóið í San Francisco haustið 2018, þegar þau voru bæði í námi þar úti. Spurð um hvað einkenni Geigen- heiminn segja þau: Pétur: „Þetta er svona kosmískur fiðluheimur, ef svo má segja, fiðlu- laga vídd.“ Gígja: „Við erum að nýta okkur sögu og hefð fiðlunnar og setja hana í samhengi við framtíðina. Þátttaka hefur alltaf verið okkur mikilvæg. Það eru engir stólar í rýminu, áhorf- endur koma inn og við erum að búa til einhvers konar klúbbaheim.“ Þau segja eitt markmið Geigen- verkefnisins vera að blanda saman ólíkum listgreinum en Gígja er með menntun í samtímadansi frá Lista- háskóla Íslands og Pétur lærði tón- smíðar við sama skóla. Gígja: „Þegar við vorum að byrja þetta verkefni Geigen fyrir 4-5 árum síðan, þá vorum við bæði í námi úti í Bay Area í Kaliforníu, ég var í myndlist og Pétur í tónlist. Við fött- uðum að við spilum bæði á fiðlur og ákváðum að leika okkur smá með það. Svo vorum við bæði með þenn- an áhuga á teknótónlist og langaði að blanda því saman.“ Hafði aldrei snert fiðlu áður Pétur og Gígja koma bæði fram í verkinu auk átta dansara frá Íslenska dansflokknum. Þau segja samstarfið við dansflokkinn hafa verið bæði þakklátt og lærdómsríkt. Gígja: „Það er bara æðislegt að einhvern veginn holdgera þennan heim enn meira. Við höfum mikið verið að skoða Geigen-veruna og hvernig hún ber sig og hreyfir sig. Þá er mjög áhugavert að skoða hreyfi- efni út frá fiðlunni sem slíkri.“ Spila dansararnir þá á fiðlur? Pétur: „Við erum tíu saman á sviðinu og það eru tveir úr f lokkn- um sem spila á fiðlu með okkur. Annar þeirra hafði aldrei snert fiðlu áður, þannig að við erum bara búin að vera að þjálfa hann í því. Á meðan er ég að þjálfast í dansi, ég hef náttúrlega enga dansmenntun.“ Verkið er unnið í samstarfi við Sean Patrick O’Brien listamann og búningahönnuðina Tönju Huld Levý og Alexíu Rós Gylfadóttur. Pétur: „Við erum með þessa dásamlegu búningahönnuði og sviðsmyndahönnuð sem eru búin að vera í miklu samstarfi við hvert annað. Þau búa til algjöra galdra.“ Gígja: „Okkur fannst mjög mikil- vægt að byrja ferlið á góðu samtali á milli okkar listrænu aðstandend- anna, þannig að þetta væri byggt upp jafnfætis.“ Áhorfendum boðið að vera með Verkið er þátttökuverk og að sögn Gígju var markmið þeirra Péturs frá upphafi að brjóta niður stigveldi listarinnar og bjóða áhorfendur vel- komna inn í Geigen-heiminn. Gígja: „Það var markmiðið að þeim liði eins og þau eigi heima hérna með okkur í þessum heimi. Við erum að byggja verkið upp þannig að við fáum þau með okkur í lið í lokin.“ Pétur: „Áhorfendur koma inn og þeim er frjálst að vera hvar sem þeim sýnist í rýminu því við tökum burt alla stóla. En svo má auðvitað vera passífur ef maður vill það.“ Eruð þið þá að skapa teknóklúbb á Litla sviði Borgarleikhússins? Pétur: „Það má segja það, ein- hvers konar fiðlulaga klúbbaver- öld.“ n Kosmískur teknó- og fiðluheimur Tónskáldið Pétur Eggerts- son og dans- höfundurinn Gígja Jóns- dóttir stofnuðu teknó fiðlu- dúóið Geigen í San Francisco haustið 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR 24 Menning 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.