Fréttablaðið - 10.11.2022, Qupperneq 28
Netgíró er í grunninn einföld
greiðslulausn. Þú notar hana
til að greiða fyrir vörur og
þjónustu en hefur svo þann
valkost að dreifa greiðslun-
um eftir eigin hentugleika.
Bryndís Gísladóttir er sölustjóri
Netgíró. Hún segir fyrirtækið hafa
vaxið jafnt og þétt undanfarin ár
og gegna sífellt stærra hlutverki
sem greiðslumöguleiki hjá lands-
mönnum.
„Það má segja að það sé allt á
blússandi ferð hjá okkur. Það hefur
verið mikill vöxtur síðustu árin
og nú er jólatíminn að koma og
verslunin fer að ná hámarki,“ segir
Bryndís. Hún segir að jólavertíðin
hefjist svona formlega á Singles’
day, eða degi einhleypra, sem er á
morgun og í lok nóvember komi
svo Black Friday og Cyber Monday
sem afar öflugir verslunardagar.
„Nóvember hefur verið að koma
mjög sterkur inn og síðustu árin
hefur hann verið stærri í verslun
heldur en desember. Fólk er farið
að flýta jólainnkaupunum. Það
byrjar fyrr að versla og vill frekar
eiga desember í huggulegheitum
og vera í minna stressi,“ segir Bryn-
dís.
„Eftir að þessir stóru verslunar-
dagar í nóvember komu til sögunn-
ar hjá okkur fór verslunin að færast
rosalega mikið yfir í nóvember.
Fólk vill nýta þessi góðu tilboð
sem eru í boði á þessum dögum og
þá kemur Netgíró mjög sterkt inn
hjá fólki.“
Einföld og örugg greiðsluleið
Netgíró býður upp á einfalda og
örugga greiðsluleið og spurð nánar
út í hana segir Bryndís: „Þegar þú
ert að versla á netinu þá þarftu
ekki að gefa upp kortaupplýsing-
arnar þínar. Það eina sem þú gerir
er að slá inn símanúmerið þitt og
svo staðfestir þú greiðsluna í sím-
anum þínum. Það er eins í verslun,
þú gefur bara upp símanúmerið og
staðfestir svo greiðsluna í síman-
um. Þetta er mjög þægileg greiðslu-
leið og örugg. Og hver hefur ekki
lent í því að liggja uppi í sófa að
skoða samfélagsmiðla, sjá geggjað
tilboð eða flotta vöru, kortið ein-
hvers staðar frammi í veskinu, þá
er heldur betur fljótlegt og þægi-
legt að geta klárað málið og greiða
með Netgíró í símanum,“ segir
Bryndís.
Virkum viðskiptavinum hjá
Netgíró hefur fjölgað jafnt og
þétt á síðustu árum. „Eins og ég
segi þá erum við sífellt að stækka
og virkir viðskiptavinir eru nú
nálægt 40 þúsund talsins. Þú
getur borgað með Netgíró á yfir
3 þúsund sölustöðum, allt frá
litlum netverslunum og alveg upp
í stærstu netverslanir landsins og
eins hjá matvörukeðjum. Þetta er
alltaf að stækka. Nýjar verslanir og
netverslanir spretta upp, kaup-
menn vita að viðskiptavinir gera
kröfu um að greiða með Netgíró og
hafa samband og við finnum fyrir
því að fólk er í auknum mæli að
nýta sér Netgíró til að greiða fyrir
vörurnar.“
Netgíró býður viðskiptavinum
sínum upp á raðgreiðslur í öllu
formi sem margir nýta sér að sögn
Bryndísar.
„Við bjóðum upp á raðgreiðslur
allan ársins hring og núna 1. nóv-
ember vorum við setja í loftið
hinn margrómaða jólareikning
Netgíró. Hann virkar þannig að
allt sem þú kaupir í nóvember og
desember getur þú greitt 1. febrúar.
Þú velur það þá bara í appinu hjá
þér hvort þú viljir setja greiðsluna
á jólareikninginn og þá þarftu ekki
að greiða hann fyrr en 1. febrúar.
Þetta er að dreifa svolítið álaginu.
Við vitum að desember er dýr
mánuður. Það kostar sitt að halda
jólin og með þessum greiðslumáta
sem jólareikningurinn býður upp
á er verið að létta aðeins undir með
fólki. Í febrúar getur þú greitt allan
jólareikninginn eða dreift honum
hvort sem það er í tvo mánuði, þrjá
mánuði eða lengur,“ segir Bryndís.
Hún segir að fólk nýti sér að fá
þann kost að dreifa greiðslunum.
„Við byrjuðum með jólareikn-
inginn árið 2014 og síðan þá hafa
sífellt f leiri nýtt sér þennan frá-
bæra möguleika. Þetta léttir undir
hjá fólki og því finnst þægilegt
að geta skipt reikningnum,“ segir
Bryndís.
Hún bætir við: „Við bjóðum
upp á raðgreiðslur í öllu formi og
það vinsælasta hjá fólki er að fá að
dreifa greiðslunni í tvo eða þrjá
mánuði því þær eru vaxtalausar.
Það má segja að Netgíró sé orðið
eins og hvert annað greiðslukort.
Þú safnar öllum kaupunum saman
á einn mánaðarreikning og greiðir
hann um mánaðamótin. Ef þú
ákveður að kaupa eina dýra vöru
sem þú vilt dreifa greiðslum á þá
tekur þú einfaldlega vöruna út úr
mánaðarreikningnum og dreifir
greiðslunum, ótrúlega einfalt og
þægilegt. Einnig er hægt að hafa
samband við þjónustuverið okkar
og fá aðstoð ef þess þarf, starfs-
fólkið okkar þar er líklega með
svarta beltið í þjónustulund og
meistaragráðu í lausnamiðaðri
hugsun,“ segir Bryndís.
Hún segist vera bjartsýn á
jólaverslunina í ár. „Ég held að
það verði mikið líf og fjör. Það
er stemning í kringum þessa
afsláttardaga í nóvember og fólk er
duglegt að nýta sér tilboðin. Það
eru margir klárir með lista yfir
vörur sem þeir ætla að skoða hjá
verslunum og sjá hvar þeir fá bestu
tilboðin,“ segir Bryndís. n
Jólareikningurinn alltaf vinsæll
Bryndís Gísladóttir er sölustjóri hjá Netgíró, sem hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það kostar sitt að
halda jólin og með
þessum greiðslumáta
sem jólareikningurinn
býður upp á er verið að
létta aðeins undir með
fólki.
Bryndís Gísladóttir
8 kynningarblað 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGURSINGLES’ DAY