Fréttablaðið - 10.11.2022, Blaðsíða 30
Mér finnst
gaman að
pæla í því
hvernig
skartgripir
geta sett
svip sinn á
heildina og
nota mikið
eyrna-
lokka og
hringa.
Kári Haraldsson
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Tónlistarmaðurinn Kári
Haraldsson er meðlimur For-
smánar, Blóðmörs og Múrs
en síðasttalda sveitin kom
fram á Airwaves um síðustu
helgi. Hér sýnir hann les-
endum inn í fataskápinn.
Kára Haraldssyni er margt til
lista lagt. Hann er meðal annars
trommuleikari svartmálmsbands
ins Forsmánar og þungarokks
pönkaranna í Blóðmör auk þess
að vera söngvari og keytarleikari
þungarokkssveitinnar Múrs sem
kom fram á tónlistarhátíðinni
Iceland Airwaves um síðustu helgi.
Kári lýsir tónlist sveitarinnar
Múrs sem hljóðgervilsdrifnum
þungarokkshljóðheimi þar sem
skerandi rafgítarar og djúpar,
vægðarlausar drunur þramma
taktfast samhliða innrænum og
óræðum hugarheimi. „Tónleikarnir
gengu hrikalega vel,“ segir Kári en
þeir voru á fimmtudagskvöldinu
á Gauknum. „Það var mjög gaman
að spila fyrir áhorfendahóp sem
var að miklu leyti svona ótengdur
okkur, fólk sem þekkti okkur ekki
og kom annars staðar að en úr
þungarokkinu. Við fengum frá
bærar undirtektir, en það var mikil
og áþreifanleg spenna í andrúms
loftinu frá fyrsta lagi.“
Fyrsta platan á lokametrunum
Fyrsta breiðskífa félaganna í Múr
er á lokametrunum í eftirvinnslu,
en þeir stefna á útgáfu sem allra
fyrst. „Í september tókum við upp
það fyrsta af nokkrum meðfylgj
andi tónlistarmyndböndum og
fengum með okkur ótrúlegan hóp
hæfileikaríks og metnaðarfulls
fólks í það. Myndbandið og lagið
Heimsslit verða það fyrsta sem
við gefum frá okkur í útgáfuferli
plötunnar, en það eina sem við
höfum gefið út hingað til er lifandi
myndbandstaka af flutningi okkar
á laginu Holskeflu, sem við fluttum
á útskriftartónleikum mínum frá
MÍT.“
Kári útskrifaðist úr djasspíanó
námi við Menntaskóla í tónlist
(MÍT) síðasta vor en hefur síðan
þá aðallega verið að sinna hljóm
sveitunum sínum, tekið upp lög og
spilað á eins mörgum tónleikum
og hægt er.
Lengi í mótun
Hljómsveitin Múr hefur verið lengi
í mótun en Kári og gítarleikar
arnir Hilmir og Jón Ísak kynntust
í menntaskóla 2016. „Við Hilmir
vorum saman í kvikmyndanámi
við Borgarholtsskóla, en þeim Jóni
var spilað saman af gítarkennara
þeirra, Þráni Árna Baldvinssyni,
gítarleikara þungarokkssveitar
innar Skálmaldar. Seinna meir
bættist gítarleikarinn Ívar Andri
við hópinn þegar við vorum allir
í námi við MÍT og Tónlistarskóla
FÍH. Ívar stökk á bassann og þá var
þetta loks farið að taka á sig meiri
heildarmynd.“
Sveitin hefur komið fram á
mörgum tónleikum síðustu tvö
árin og hitaði meðal annars upp
á þrennum útgáfutónleikum
auk þess að halda eigin tónleika.
„Síðasta vor tókum við þátt og
sigruðum í hljómsveitarkeppninni
Wacken Metal Battle Iceland. Það
opnaði á frábær tækifæri, en við
spiluðum svo fyrir þúsundir áhorf
enda í lokakeppninni á Wacken
Open Air hátíðinni í Þýskalandi í
haust. Þar kynntumst við fólki alls
staðar að og mynduðum mikilvæg
tengsl.“
Múr kemur næst fram á And
kristnihátíð á Gauknum 16.17.
desember. „Svo má endilega taka
frá kvöldin 4. febrúar og 4. mars ef
fólk iðar í skinninu og vantar til
efni til að taka fram dansskóna.“
Kári Haraldsson sýnir lesendum
hér inn í fataskápinn sinn.
Spurt og svarað
Hvernig hefur tískuáhugi þinn
þróast undanfarin ár?
Svarta skyrtan er úr Zöru
og kragi og gervileður-
buxurnar frá Punk Rave.
Harness er frá ZADO, neta-
bolurinn af nytjamarkaði í
Berlín og skórnir frá Steel.
Loðjakkinn var
keyptur notaður
í Verzlanahöll-
inni. Skyrtuna
(ASOS) og galla-
buxurnar (ASOS)
fékk hann í gjöf.
Skórnir eru
frá Dr. Mar-
tens og beltið
keypti hann
notað á góð-
gerðarmarkaði í
Bretlandi. Eyrna-
lokkar eru gjöf,
silfurhringurinn
frá Etah Love
og Maya-gull-
hringurinn er frá
Eva Jewellery.
Vintage gull-
hringinn keypti
hann af Etsy.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Var lengi
gangandi
tískuslys
Lengst af hef ég lítið spáð í föt og
tísku en bróðir minn hefur tekið
mörg tímabil þar sem hann hefur
legið yfir fatnaði, fylgihlutum og
þess háttar. Í gegnum tíðina hafa
því ýmsar flottar flíkur ratað til
mín frá honum, en það er yfir
leitt eitthvað sem ég fæ lánað frá
honum en „gleymi“ svo að skila.
Kærastan mín hefur svo líka gefið
mér hrúgu af flottum fötum og ég
hugsa að það í bland við fín lánsföt
frá bróður mínum hafi svolítið
mótað fatasmekk minn og gefið
mér betra sjálfstraust í að prófa að
fara leiðir sem ég hefði ekki farið
áður.
Hvernig fylgist þú helst með
tískunni?
Samfélagsmiðlar spila sterkt
inn þar. Ég hugsa að það sé meira
ómeðvitað heldur en meðvitað
þar sem ég leita sjaldan viljandi að
innblæstri eða nýjum fötum. Ég
hef líka augun opin þegar ég fer út
á lífið og reyni að skrá það hjá mér
í hausnum þegar ég tek eftir ein
hverju sem ég fíla.
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
Ég kaupi ekki mikið af fötum
sjálfur en helstu fatainnkaup
síðasta árið eru flíkurnar sem ég
klæðist á sviði, svartar skyrtur, net,
ólar og gervileður. Þau innkaup
hafa flest farið fram á vefsíðum
eins og Fantasmagoria eða á nytja
mörkuðum og básaleigum eins og
Verzlanahöllinni.
Hvaða litir eru í uppáhaldi?
Dökkir og heitir litir, jarðlitir og
svo er svartur alltaf viðeigandi.
Áttu minningar um gömul tísku-
slys?
Frá því ég fór að klæða mig
sjálfur hef ég yfirleitt bara verið
gangandi tískuslys, það var ekki
fyrr en frekar nýlega sem ég fór
að verða meira meðvitaður um
hvað ég klæði mig í og átta mig á
ánægjunni sem getur fylgt flottum
fötum.
Hvaða þekkti einstaklingur er
svalur þegar kemur að fatnaði?
David Bowie átti mörg virkilega
f lott lúkk, áhrifamiklir litir og
form úti um allar trissur.
Hvaða f líkur hefur þú átt lengst
og notar enn þá?
Dr. Martensskóna mína, þeir
eru orðnir nokkuð lúnir.
Áttu eina uppáhaldsf lík?
Það er svartur loðjakki sem ég
klæðist oft. Hann var hræódýr,
smellpassar og virkar vel.
Bestu og verstu fatakaupin?
Bestu fatakaupin eru líklega
aftur sami loðjakki sem ég keypti
notaðan fyrir smáaura. Verstu
kaupin gætu hafa verið þegar
ég var unglingur og keypti tvö
eintök af sömu peysunni „til
öryggis“. Ég notaði svo bara
aðra þeirra í mesta lagi þrjú
skipti.
Notar þú fylgihluti?
Mér finnst gaman að pæla
í því hvernig skartgripir geta
sett svip sinn á heildina og
nota mikið eyrnalokka og
hringa.
Eyðir þú miklum peningum í
föt miðað við jafnaldra þína?
Ég held ekki. Þegar ég kaupi
eitthvað sjálfur þá er það yfir
leitt notað. n
Sjá nánar á frettabladid.is.
6 kynningarblað A L LT 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR