Fréttablaðið - 10.11.2022, Blaðsíða 36
Það má með sanni segja
að þetta séu langþráðir
tónleikar.
Steinunn Birna
Ragnarsdóttir,
óperustjóri
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Jóhannes Tómasson
blaðamaður og fyrrverandi
upplýsingafulltrúi,
sem lést föstudaginn 28. október á
Landspítalanum, verður jarðsunginn frá
Neskirkju föstudaginn 11. nóvember kl. 13.00.
Útförinni verður streymt á vefsíðunni joitomm.is. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Málfríður Finnbogadóttir
Helgi Jóhannesson
Anna Jóhannesdóttir Brynjúlfur Jónatansson
Þórdís Jóhannesdóttir Brynjar Valþórsson
Jóhannes, Ísar Ágúst, Sara Björk, Einar Björn, Salvör
Móeiður, Elsa María, Valþór Hrafnkell og Eva Málfríður
Elskuleg móðir, tengdamóðir
og amma,
Hrefna Guðmundsdóttir
Skúlagötu 20, Rvk,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Móbergi, Selfossi, þriðjudaginn
8. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar.
Björn Sigurðsson Vilborg Sigurðardóttir
Guðjón Sigurðsson Vera Ósk Valgarðsdóttir
Guðmundur Rafn Sigurðsson Gígja Baldursdóttir
Atli Már Sigurðsson Auður Haraldsdóttir
Sigurður Valur Sigurðsson
Kristján Örn Sigurðsson Kristín Kristmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
Ragnheiðar Tryggvadóttur
Starfsfólki Ísbergs á Hrafnistu við
Sléttuveg er þakkað fyrir alúðlega
umönnun.
Tryggvi Þórðarson Helga Ingibjörg Guðmundsdóttir
Lína Thordardóttir Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Merkisatburðir
1848 Í Kaupmannahöfn er stofnuð stjórnar-
deild til að annast málefni Íslands,
Grænlands og Færeyja. Fyrsti for-
stöðumaður er Brynjólfur Péturs-
son lögfræðingur.
1913 Járnbrautarlest er notuð til fólks-
flutninga á Íslandi í fyrsta skipti.
Hún liggur frá Reykjavíkurhöfn
að Öskjuhlíð.
1928 Brú yfir Hvítá í Borgarfirði hjá
Ferjukoti er vígð.
1944 Þýskur kafbátur sekkur far-
þegaskipinu Goðafossi út af
Garðskaga þegar skipið er að
koma frá Bandaríkjunum. Tutt-
ugu og fjórir farast en nítján er bjargað.
1960 Breski rithöfundurinn Neil Gaiman fæðist.
1967 Siglufjörður kemst í vegasamband með opnun
Strákaganga sem eru þá lengstu göng á Íslandi,
800 metrar.
1984 Raforkukerfi Íslands er hringtengt þegar Suðurlína
er tekin í notkun.
1990 Pétur Guð-
mundsson
kastar kúlu
21,26 metra
og bætir með
því þrettán
ára gamalt
Íslandsmet
Hreins Hall-
dórssonar.
1992 Fyrsti GSM-sími
Nokia, Nokia
1011, kemur á
markað.
2001 Apple setur iPod
á markaðinn.
Kristján Jóhannsson tekur á móti góðum gestum sem syngja bæði einsöngs- og samsöngsatriði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Diddú lætur sig ekki vanta í fögnuðinn.
Óperustjóri segir mörg gleðiefni
blandast saman á Galatónleikum
föstudagsins.
arnartomas@frettabladid.is
Langþráðir Galatónleikar Íslensku óper-
unnar fara loksins fram í Norðurljósasal
Hörpu á morgun. Þar koma fram mörg
af stærstu óperunöfnum Íslands en upp-
haflega stóð til að halda tónleikana á 40
ára afmæli Íslensku óperunnar 2020.
„Það má með sanni segja að þetta séu
langþráðir tónleikar,“ segir Steinunn
Birna Ragnarsdóttir óperustjóri. „Þetta
er í rauninni hugmynd sem varð til í
kringum fertugsafmælið okkar 2020 en
eðli málsins samkvæmt komum við því
ekki í verk fyrr en núna. Þetta eru ekki
tónleikar sem hægt er að halda með
fjöldatakmörkunum eða fjarlægðar-
viðmiðum.“
Tónleikarnir eru þannig ekki aðeins
síðbúinn afmælisfögnuður heldur er líka
verið að fagna starfsári án takmarkana.
„Að geta komið saman aftur, tef lt
fram okkar bestu söngvurum, dásam-
legri dagskrá og glaðst yfir því að þetta
ástand sé staðið yfir að mestu leyti. Það
er margt sem blandast þarna saman
í þessa gleðitónleika sem eru síðbúin
afmælisveisla og fögnuður yfir nýrri
framtíð,“ segir Steinunn Birna.
Þrjár kynslóðir
Dagskrá Galatónleikanna verður ekki af
verri endanum.
„Kristján Jóhannsson hefur auðvitað
átt einhvern stærsta feril íslenskra söngv-
ara og svo er Diddú auðvitað algjör þjóð-
argersemi,“ segir Steinunn Birna. „Við
erum líka að tefla fram söngvurum sem
hafa verið í aðalhlutverkum hjá okkur
eins og Herdísi Önnu og Oddi Jónssyni
sem og fulltrúum yngri kynslóðarinnar
eins og Gunnari Birni og fleirum.“
Þannig segir Steinunn Birna að í raun
stígi á stokk þrjár kynslóðir söngvara.
„Þarna verða bæði þeir allra reynd-
ustu, þeir sem hafa verið mikið í for-
grunni hjá okkur og svo alveg nýjar
raddir líka.“
Flókið listform
Óperan hefur plumað sig ansi vel eftir
að hún skreið undan feldi faraldursins.
„Það hefur gengið merkilega vel
miðað við hvað óperan er f lókið list-
form,“ segir Steinunn Birna. „Við höfum
verið að semja okkur að aðstæðum og
taka ákvarðanir sem eru viðeigandi í
þessum veruleika sem við höfum verið
að eiga við.“
Ýmsar stórar sýningar voru látnar
bíða þegar óvissan var sem mest en
Steinunn Birna segir að fram undan sé
mikil og spennandi dagskrá.
„Það er nokkuð samliggjandi dag-
skrá hjá okkur núna eftir faraldurinn
sem sér ekki fyrir endann á og það er
alveg ótrúlega gaman,“ segir hún. „Þar
má meðal annars nefna Örlagaþræði í
Kaldalóni, svo tökum við þátt í f lutn-
ingi barnaóperu eftir Þorkel Sigur-
björnsson og svo erum við á fullu að
undirbúa jólatónleika og stóru tónleik-
ana okkar eftir jól – Madama Butter f ly.
Við erum glöð og bjartsýn með þessa
nýju framtíð sem allt í einu er byrjuð,
aftur!“
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 á
föstudag og miðasala fer fram á tix.is. ■
Stórskotalið óperunnar á
síðbúnum stórafmælisfögnuði
Bandaríska þáttaröðin Sesame Street
er með ástsælla barnaefni sem
framleitt hefur verið fyrir sjónvarp.
Hugmyndin að þáttunum kom fram
árið 1966 þegar höfundana Joan Ganz
Cooney og Lloyd Morrisett langaði að
nota ávanabindandi eðli sjónvarps-
áhorfs barna og beina því í jákvæðan
farveg. Þeir fengu til liðs við sig brúðu-
meistarann Jim Henson og saman
lögðu þeir sig fram við að framleiða
jákvætt og uppbyggjandi barnaefni.
Þættirnir fóru fyrst í loftið þann
10. nóvember 1969 og náðu fljótt
miklum vinsældum. Brúður Hensons
greindu þættina frá öðru barnaefni og
vel tókst til að blanda saman húmor,
tónlistaratriðum og námsefni. Höf-
undarnir veigruðu sér við að takast á
við erfið málefni á borð við kynþátta-
hatur og stéttaskiptingu og fengu þeir
mikið lof fyrir það í fjölmiðlum.
Enn er verið að framleiða nýja þætti
af Sesame Street þótt framtíð þeirra
hafi verið óljós á undanförnum árum.
Alls hafa verið gerðir 4.626 þættir í 53
þáttaröðum og eru þeir eitt langlífasta
barnaefni í sjónvarpi frá upphafi. ■
Þetta gerðist 10. nóvember 1969
Sesame Street hefur göngu sína
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR