Fréttablaðið - 10.11.2022, Side 44
Nemendurnir sem sáu
mestan árangur af því
að nota námskerfið
voru nemendur í
námsörðugleikum sem
sýndu allt að tólffalda
aukningu.
Mathieu Skúlason rekur fyrir-
tækið Evolytes. Fyrirtækið
sinnir frumkvöðlastarfi á
sviði menntatækni og bindur
vonir við að bylta námstækni
í stærðfræði á grunnskólastigi.
Evolytes hefur þegar haslað sér
völl á alþjóðamarkaði.
ninarichter@frettabladid.is
Mathieu var í þverfaglegu háskóla-
námi við Háskólann í Reykjavík þar
sem hann rannsakaði meðal annars
hvernig væri hægt að beita styrking-
arháttum til að ná fram ákveðinni
hegðun hjá börnum.
„Þetta er það sem leikjahönnuðir
voru að gera til að gera leiki ávana-
bindandi. En margt bendir til þess
að þær rannsóknir sem verið er að
yfirfæra sé ekki hægt að yfirfæra á
börn eða menn,“ segir Mathieu. „Við
högum okkur víst ekki eins og ein-
faldari lífverur, eins og dúfur eða
hundar,“ segir hann og bætir við að
lítið liggi fyrir af fræðilegum rann-
sóknum í því tilliti og stærri tölvu-
leikjastúdíóin hafi til að mynda
endað á að prófa sig áfram. „Við
vitum líka að börn hegða sér ekki
heldur eins og fullorðnir.“
Mathieu stundaði fræðilegar
rannsóknir í leit að mynstrum í
þessu tilliti. „Ég kom heim einn dag-
inn og sá að systir mín var að eiga
bölvað bágt með stærðfræði, eitt-
hvað sem ég kannaðist við sjálfur,“
segir hann. Mathieu er hálf-franskur
og hálf-íslenskur og segir móður
sína hafa reynst sér vel á þeirri
stundu. „Þá tók mamma mig í gegn
og kynnti mig fyrir frönsku leiðinni
til að læra stærðfræði. Ég endaði á
að vera dúx í stærðfræði nokkrum
árum síðar, þegar ég útskrifaðist úr
menntaskóla,“ segir hann og hlær.
Í framhaldinu fékk Mathieu
þá hugmynd að beita styrkingar-
háttum og kenningum með hlið-
sjón af mynstrum sem hann hafði
komið auga á. „Við nýttum þessar
kenningar til að búa til einfaldan
námsleik þar sem krakkarnir reikna
stærðfræði.“ Mathieu notaði marg-
földunarefni þriðja bekkjar, sem
systir hans var í. „Ég ákvað að gera
rannsóknir á hennar bekk, 2016.
Ég talaði við kennarann og vissi
nákvæmlega hvaða námsefni hún
var að fara í gegnum.“
Úr varð einföld útgáfa af hug-
búnaðinum. „Niðurstöðurnar sem
við fengum voru bara fáránlegar.
Nemendur lærðu fjórfalt hraðar,
ef þú berð það saman við það sem
þau læra í kennslustund. Þau eyddu
meiri tíma í að læra og það sem kom
mest á óvart er að þau voru miklu
jákvæðari gagnvart stærðfræði í
hvaða formi sem var, eftir rann-
sóknina.“
Rannsóknin átti að standa yfir í
tvo mánuði en nemendur kláruðu
allt námsefnið á innan við fjórum
vikum. „Þessar niðurstöður voru
frekar sláandi.” Í framhaldinu fór
verkefnið í fjármögnunarferli.“
Að sögn Mathieu er kerfið ekki
einfaldur námsleikur heldur ein-
stakur gagnadrifinn hugbúnaður.
„Við erum með þrjár vörur sem
vinna sem ein heild. Við erum með
námsleikinn sem er kjarninn sem
gerir æfinguna einstaklingsmiðaða
og skemmtilega, síðan erum við
með upplýsingakerfi fyrir kenn-
ara til að forgangsraða í rauntíma
hvernig nemendum fer fram og hve-
nær á að grípa inn í,“ útskýrir hann.
„Svo erum við með námsbækurnar
sem samþættast inn í kerfið, með
QR-kóða inni í námsbókinni sem
hægt er að skanna. Þannig fá börnin
kennslukönnun sem þau geta fengið
verðlaun fyrir. Við erum að yfirfæra
jákvæða áreitið á sjálfa bókina.
Nemendur verða þannig spenntir
fyrir að klára hana.“
Mathieu segir f lesta námsleiki
sem þegar eru til, ganga út á smá-
leiki sem kenna ákveðið efni.
„Okkar nálgun er algjörlega öfug.
Við þróum leik sem er í saman-
burði við það skemmtiefni sem
börnin sækjast í og gerum leikinn
eins skemmtilegan og við mögu-
lega getum.“
Menntamálastofnun hefur þó
ekki keypt leikinn, heldur hefur
fyrirtækið verslað beint við sveit-
arfélögin. „Menntamálastofnun
vinnur alfarið með engum. Og það
er ekki til neitt fjármagn hjá skól-
unum til að kaupa námsefni.“ Fyrsta
útgáfan kom út árið 2020 rétt fyrir
Covid. „Kennarar enduðu á að koma
til okkar og spyrja: Getum við ekki
fengið að prófa þetta?“ segir hann.
„Það sem er svo gaman að segja
frá er að nemendurnir sem sáu
mestan árangur af því að nota
námskerfið voru nemendur í náms-
örðugleikum sem sýndu allt að tólf-
falda aukningu. Í dag erum við með
fullt af velgengnisögum af nemend-
um sem búa við raskanir af öllu tagi,
nemendum sem stóðu höllum fæti
í stærðfræði sem eru komnir aftur í
almenna kennslu.“
Salan til sveitarfélaga hefur
gengið vel og Mathieu segir að
ástæðan sé gríðarlegur sparnaður
af notkun hugbúnaðarins þegar
kemur að sérkennslu. „Við erum að
eyða allt að fjórum milljörðum í sér-
kennslu,“ segir hann um ástandið á
Íslandi í dag.
Í dag er námskerfið notað í yfir
helmingi allra grunnskóla á Íslandi.
„Við förum í 80 prósent fyrir lok
þessa árs. Í dag erum við með 30
skóla sem eru að nota þetta í Sví-
þjóð og töluvert af nýjum skólum
sem eru að falla inn,“ segir Mathieu.
„Það gengur merkilega vel í Dan-
mörku og við erum komin með tvo
stóra skóla sem eru að prófa náms-
kerfið. Við gefum öllum okkar
kúnnum kost á að prófa náms-
kerfið fyrst. Þetta eru risastórir
skólar, þúsund nemendur og á við
sveitarfélögin okkar hérna heima.
Við erum með dreifiaðila í Litáen,
tvo skóla í Frakklandi og að tala við
dreifingaraðila í Asíu og Brasilíu,“
segir hann.
Gögnin sýna að þörfin á breyttri
námstækni er aðkallandi.
„Það kom skýrsla frá UNESCO
2018 sem benti á að sex af hverjum
tíu nemendum á heimsvísu eru ekki
að sýna fram á grunnfærni í stærð-
fræði. Staðan á Íslandi er ekki góð.
26 prósent nemenda samkvæmt
PISA-könnun 2018 sýndu ekki fram
á tilskilinn árangur í stærðfræði,
náttúrufræði né lestri. Þessar tölur
hafa bara farið hækkandi. Þetta
voru ekki nema 11 prósent 2005.
Þetta er veldisvöxtur.“ n
Mathieu Grettir
Skúlason er
frumkvöðull
og eigandi
menntasprota-
fyrirtækisins
Evolytes.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Gerbylta stærðfræðimenntun landans
„Mjög áhrifaríkt
og vel gert ...
... Ofsalega gaman að lesa
þessa bók.“
Þ O R G E I R T R Y G G V A S O N / K I L J A N
„Einn af okkar allra fremstu
barnabókahöfundum.“
E G I L L H E L G A S O N / K I L J A N
Fjörug og spennandi saga
eftir Arndísi Þórarinsdóttur
um fimleikastrákinn Álf
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | Sunnudaga 12–16 | www.forlagid.is
ninarichter@frettabladid.is
Latin American Film Festival er ný
kvikmyndahátíð sem haldin er í Bíó
Paradís dagana 19. til 27. nóvember
í samstarfi við sendiráð Argentínu,
Chile, Kólumbíu, Venesúela, Perú og
Mexíkó.
Opnunarmynd hátíðarinnar er
Saga hreysikattanna, El cuento de las
comadrejas, sem sýnd er laugardag-
inn 19. nóvember klukkan 19.00. Í
fréttatilkynningu frá hátíðinni segir
að nýjar og nýlegar kvikmyndir verði
sýndar. Þá verði boðið upp á menn-
ingarreisu um gjörvalla rómönsku
Ameríku þar sem matur, tónlist og
gleði verður í hávegum höfð. Ókeyp-
is er inn á opnunarmyndina sem er
öllum opin. Frekari upplýsingar má
nálgast á vef Bíó Paradísar. n
Saga hreysikatta á
kvikmyndahátíð
ninarichter@frettabladid.is
Í dag kemur út smásagnasafn Stef-
aníu Pálsdóttur sem ber titilinn
Skyggnur. Safnið inniheldur fimm-
tán draumkenndar smásögur. Í
fréttatilkynningu segir Stefanía að
sögurnar eigi það sameiginlegt að
kafa ofan í þráhyggju og togstreitu
í fáránleika hversdagsins.
Stefanía útskrifaðist með meist-
aragráðu í ritlist frá Háskóla Íslands
árið 2020. Fyrri verk Stefaníu eru
ljóðverkið Blýhjarta auk þess sem
hún hefur gefið út örhandbókina
Uppskriftabók fyrir draumkafanir.
Stefanía slær upp útgáfuhófi í
Pennanum Eymundsson á Skóla-
vörðustíg í dag milli 17 og 19. n
Skyggnum fagnað
í Pennanum í dag
28 Lífið 10. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ