Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.11.2022, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 05.11.2022, Qupperneq 20
Sif Sigmarsdóttir n Mín skoðun n Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is En merki- legustu sinnaskipti flokksins eru í utanríkis- málum. Við lestur neyðumst við til að einbeita okkur að orðunum og sögunni sem veldur því að við slökum á. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Sögur hafa fylgt manninum frá örófi alda. Ódysseifur og Egill Skallagrímsson. Arnald­ ur og Yrsa. Svo virðist hins vegar sem máttur þeirra sé langtum meiri en talið var. Skáldskapur var löngum umdeildur. Árið 1797 birtist grein í bresku tímariti undir fyrir sögninni: „Lestur skáldsagna gerir konur siðspilltar.“ Ári síðar var fullyrt í bandarísku blaði að „ekki aðeins eitruðu skáldsögur hug ungra stúlkna“ heldur gæfu þær þeim „ranga mynd af lífinu“. Manns­ ævi síðar hafði álit á skáldskap lítið breyst. „Skáldsagnalestur er háskalegur siður,“ ritaði dr. John Harvey Kellogg, skapari morgunkornsins vinsæla, árið 1882. „Komist hann upp í vana verður lesandinn jafnháður honum og áfengi og ópíum.“ Michael Mosley er breskur læknir sem hefur helgað sig heilbrigðisfræðum. Síðustu ár hefur Mosley leitað einfaldra leiða til að auka hreysti. Ef við gerðum aðeins eina breytingu á lífi okkar, hvað bætti heilsu okkar mest? Í útvarpsþáttum á BBC og í nýrri bók leggur Mosley til athafnir sem sýnt hefur verið fram á vísindalega að skili sér í betri líkamlegri og andlegri líðan. Það gerir okkur gott að gera armbeygjur í morgunsárið, fara í kalda sturtu, raula stutt lag, dansa í nokkrar mínútur á dag, fara í göngutúr fyrir morgunmat, hreyfa okkur stutt en oft, prófa nýja hluti, borða heimagert súrkál og dökkt súkkulaði, taka lúr eftir hádegismat og skreyta með stofu­ plöntum. Ein heilsubót á lista Mosley vakti sérstaka eftirtekt. Samkvæmt rannsóknum er lestur kvíða­ stillandi og hann minnkar stress. „Þegar við erum kvíðin beinist athyglin inn á við,“ hefur Mosley eftir sérfræðingi í tauga­ vísindum við Háskólann í York. „Við lestur neyðumst við til að einbeita okkur að orðunum og sögunni sem veldur því að við slökum á.“ Talið er að lestur geti jafnframt dregið úr þunglyndi og minnkað líkam­ legan sársauka. Ný rannsókn, sem gerð var í Brasilíu meðal alvarlega veikra barna, sýndi að ef skemmtikraftur læsi fyrir börnin sögu fyndu þau síður til en ef skemmtikrafturinn hefði ofan af fyrir þeim með öðrum hætti. Lífeðlisfræðilegar mælingar á börnunum sem lesið var fyrir sýndu langtum minna magn af stresshormóninu kortísól en hjá þeim sem ekki var lesið fyrir og meira magn af hormóninu oxytósín sem veldur vellíðan. En lestur gerir meira en að veita stundar­ fró. Vísindamenn við Stanford­háskóla skoðuðu í heilaskanna heilastarfsemi fólks sem las Jane Austen og komust óvænt að því að lestur eykur blóðflæði um heilann allan. Þegar við lesum og ímyndum okkur sögusvið, lykt og bragð – lesum orð eins og „kanill“ eða „sápa“ – virkjast ekki aðeins þær heilastöðvar sem tengjast tungu­ málinu heldur einnig þær sem valda því að við finnum lykt og bragð. Fjöldi rann­ sókna sýnir að lestur getur haldið aftur af hrörnun heilans og heilabilun og hægt á elliglöpum. Auknar lífslíkur Það hefur varla farið fram hjá neinum að íslenska jólabókaflóðið er hafið. Jólabóka­ flóðið rekur upphaf sitt til síðari heims­ styrjaldarinnar. Vegna samgönguerfiðleika við útlönd á stríðsárunum ríkti vöruskortur í landinu. Bækur urðu því vinsælar til gjafa og þóttu henta einkar vel í jólapakka. Bækur eru af þreying og þær eru gjafa­ vara. Ljóst er að þær eiga sér enn annað hlutverk. Þær eru heilsurækt. Rannsókn við Yale­háskóla sýnir að þeir sem lesa skáldskap hálftíma á dag lifa að meðaltali tveimur árum lengur en aðrir. Slíkur ávinningur sást ekki við lestur á öðru efni, svo sem á dagblöðum eða tímaritum. Vanti einhvern afsökun til að hlamma sér niður í sófann og hefja lestur jólabókanna snemma, er hún hér með komin. n Ópíum jólanna Vandi Sjálfstæðisflokksins, sem held­ ur nú landsfund sinn eftir margra ára bið, er ekkert endilega fólginn í forystu hans, heldur miklu fremur í stefnunni, sem er jafn óljós og hún hefur afvegaleiðst í pólitískri framkvæmd. Það er af sem áður var þegar flokkurinn gekk fram fyrir skjöldu og galt varhug við æ stærra bákni sem þendist út að óþörfu, en í valdatíð flokksins á síðustu áratugum hefur stofnana­ veldið vaxið verulega og það sem meira er, ríkisstarfsmenn leiða nú launaþensluna í sam­ félaginu, einkafyrirtækjum til tjóns og vansa. Þá hefur skattastefna flokksins í reyndinni verið heldur í átt til þyngri byrða fyrir lands­ menn, en nú síðast, svo dæmi sé tekið, á að hækka áfengisgjaldið umtalsvert, þvert á orð sjálfs fjármálaráðherra sem hefur opinber­ lega goldið varhug við auknum álögum á þeim pósti. En merkilegustu sinnaskipti flokksins eru í utanríkismálum. Enginn flokkur talaði jafn duglega fyrir vestrænni samvinnu og Sjálf­ stæðisflokkurinn á síðustu öld. Enginn flokkur varði jafn rækilega gildi skoðanafrelsis og frjálsræðis í samskiptum fólks og þjóðvelda. Á því sviði var flokkurinn upp á sitt besta – og átti raunar senuna, en hjáróma raddir annarra flokka í þeim samanburði voru á tíðum ámát­ legar. Núna er flokkurinn kominn inn í eigin skel í þessum efnum. Hann talar þvert á það sem allir aðrir hægriflokkar í Evrópu boða, um mikil­ vægi samstöðunnar og samstarfsins innan álfunnar. Gamli íhaldsflokkurinn á Íslandi er meira að segja búinn að lauma sér hægra megin við öfgasinnaða þjóðernisflokka Evrópu í þessum efnum. Og það er auðvitað sláandi að á meðan allt öfgahægrið í álfunni áttar sig á því að sameinuð Evrópa er kjarni tilveru okkar, situr Sjálfstæðisflokkurinn við sinn keip – og hatast út í Evrópusambandið. Svíþjóðardemókratar, AfD í Þýskalandi, flokkur Le Pen í Frakklandi og meira að segja nýnasistaflokkur Gorgiu Meloni á Ítalíu, hafa allir látið af andstöðu sinni við Evrópusam­ bandið og lagst á sveif með því á seinni árum. Og það eru út af fyrir sig stórtíðindi að svona þjóðernissinnaðir hægriflokkar skuli yfirleitt skipta um skoðun í þessu efni. En Sjálfstæðisflokkurinn ætlar sér að vera sér á báti í þessum efnum. Í Evrópumálum ætlar hann að vera hægra megin við öfgahægrið í Evrópu. Hann langar helst að vera heilagri en Miðflokkurinn í þessum efnum. Og uppsker eftir því. n Hægra hægrið HEIMA ER BEZT MÁNUDAGA KL. 19.00 OG AFTUR KL. 21.00 SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 5. nóvember 2022 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.