Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 28

Fréttablaðið - 05.11.2022, Side 28
Að ein- hverju leyti er ég alltaf að skrifa um, ekki beinlínis sjálfan mig, heldur bara mitt innra líf. Jón Kalman Akkúrat núna þá erum við svona í logninu á undan storm- inum. Við erum enn þá í skjóli, má segja. Sigríður Hagalín Rithöfundahjónin Jón Kal- man Stefánsson og Sigríður Hagalín Björnsdóttir eru bæði með bók í jólabókaflóðinu en ætla ekki að keppa um sæti á metsölulistum. Þau eru einkar samheldin í listinni og lífinu og segjast vera fyrstu lesendur hvort annars. Skáldin og hjónin Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Jón Kalman Stefánsson sendu bæði frá sér bækur í vik- unni. Sigríður sína fjórðu skáldsögu sem heitir Hamingja þessa heims og Jón sína fjórtándu skáldsögu sem heitir Guli kafbátur- inn. Blaðamaður settist niður með hjónunum yfir kaffibolla á heim- ili þeirra á Bjarkargötu í miðbæ Reykjavíkur. Hvernig er stemningin á heimil- inu, eruð þið spennt fyrir komandi jólabókaf lóði? Sigríður: „Akkúrat núna þá erum við svona í logninu á undan storm- inum. Við erum enn þá í skjóli, má segja. En þetta er alltaf alveg ægilega gaman, ég er náttúrulega ekki búin að vera eins lengi að og Jón Kalman. Mér finnst þetta alltaf eins og jólin.“ Jón Kalman: „Þær eru komnar nokkrar bækurnar og þetta er ekki alveg eins núna og þegar maður var að gefa út fyrstu bækurnar, eðli- lega. En það er alltaf spenna og til- hlökkun. Annars hreinlega hugsa ég ekkert svo mikið um það, ég hef alltaf einhvern veginn verið þannig að ég læt það koma sem kemur.“ Sum öfl ræður maður ekki við Jón Kalman og Sigríður kynntust fyrir nokkrum árum í gegnum sam- eiginlegt forlag sitt Benedikt. Sigríð- ur segist alltaf hafa vitað af Jóni sem kveðst einnig hafa þekkt til hennar. Jón Kalman: „Auðvitað vissum við af hvort öðru og hún er náttúru- lega af höfundaætt, langafi hennar Guðmundur G. Hagalín var þekktur höfundur og ég las hans bækur.“ „Nú, var það þess vegna?“ segir Sigríður kímin og bæði skella upp úr. Jón Kalman: „Hlutir gerast eins og Fyrstu lesendur hvort annars Sigríður og Jón Kalman hafa komið sér upp fallegu heimili á Bjarkargötu ásamt börnum sínum frá fyrri hjónaböndum og köttunum Tómasi Hagalín og Snældu Kal- man. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI þeir gerast og sum öfl eru þannig að þú ræður ekkert við þau.“ Skáld skiptast í tvo hópa Spurð um hvort þau hjálpist að við ritstörfin segir Jón Kalman þau hjónin vera fyrstu lesendur hvort annars og fari yfir handritin á ólík- um stigum í gegnum ferlið. Sigríður: „Það er líka bara alveg ótrúlega gott að hafa einhvern heima til þess að tala við. Maður verður svo manískur og skrýtinn þegar maður er í þessu ferli og ég hef of boðslega þörf fyrir að tala um það sem ég er að lesa og gera. Þú tekur þessu af miklu jafnaðargeði og umberð mig alveg í maníunni.“ Jón Kalman: „Það er bara ægilega gaman að fá þessa maníu yfir sig.“ Ert þú þá meira prívat? Jón Kalman: „Stundum er sagt að það megi gróflega skipta höfundum í tvennt hvað þetta varðar. Annars vegar eru þeir sem hafa þörf fyrir að tala um það sem þeir eru að vinna að og svo hinir sem af ýmsum ástæðum eru hikandi við það og ég er þar. Ég veit ekki hvort það er hjátrú en stundum finnst manni að ef maður talar mikið um það þá missi maður einhvern veginn tökin á því.“ Sigríður: „Ég held að það geti líka verið vegna þess að þú ert vanur að vinna einn og ég er vön að vinna inni á stórri ritstjórn þar sem allir eru með nefið ofan því sem maður er að gera.“ Fréttamaður og rithöfundur Sigríður Hagalín er landsmönnum löngu orðin kunn sem fréttamaður á Ríkisútvarpinu. Hún hefur einn- ig vakið mikla athygli fyrir bækur sínar sem eru orðnar fjórar talsins. Sú nýjasta, Hamingja þessa heims, er söguleg skáldsaga sem gerist bæði í nútímanum og á miðöldum. Sigríður: „Þetta er bók um 15. öldina sem er öldin sem segja má að hafi týnst í Íslandssögunni. Við vitum alveg óskaplega lítið um hana. Öll sagnaritunin og þetta stöðuga upplýsingaf læði sem við höfum frá miðöldum dettur að mestu leyti niður eftir að svarti- dauði kemur til landsins 1402. Þetta er alveg ótrúlega heillandi og áhugaverður tími og verður merki- legri eftir því sem maður kafar betur ofan í hann.“ Hvað var það sem kveikti áhuga þinn á því að fjalla um þetta tíma- bil? Sigríður: „Það kom til mín í gegnum Ólöfu ríku Loftsdóttur sem er sennilega valdamesta kona sem hefur verið uppi á Íslandi. Hún fór með hirðstjórnarvald, var hálf- gerður landstjóri Íslands, að því er talið er, á tímabili eftir að maður hennar dó. Hún rataði til mín fyrir tilviljun, hlassaði sér í fangið á mér ef svo má segja, en á endanum skrif- aði ég bókina meira um 15. öldina heldur en Ólöfu sjálfa, þótt hún sé þarna alls staðar. Ég geri það annars vegar í gegnum sagnfræðiprófessor í nútímanum sem er sendur í hálf- gerða útlegð í Dölunum og rekst þar á gamalt handrit, og hins vegar í gegnum sögumann sem var hirð- skáld og hermaður í þjónustu Ólafar ríku.“ Draumar fjarskyldrar frænku Hamingja þessa heims á sér nokkuð dularfullan aðdraganda því Ólöf ríka kom til Sigríðar með króka- leiðum í gegnum drauma fjar- skyldrar frænku. Vorið 2020 höfðu þau Jón Kalman verið í Dölunum við skriftir þegar Sigríður rakst á áhugaverða grein um Ólöfu ríku eftir Helgu Kress bókmenntafræð- ing. Hún hafði samband við Helgu Þorvaldur S. Helgason tsh @frettabladid.is og daginn eftir fékk hún vinabeiðni á Facebook frá fjarskyldri frænku á Jökuldal sem kvaðst hafa dreymt bæði Sigríði og Helgu. „Í fyrri draumnum varstu að segja mér að þú værir lesbísk. Ég varð eig- inlega forvitin að vita hver kærastan væri en sá hana aldrei en mér fannst þú segja mér að hún héti Helga Kress. Í seinni draumnum komstu til mín ægilega sæl og sagðist ætla að kynna mig fyrir kærastanum þínum sem var mjög sætur karlmaður með mikla útgeislun. Ég giska á að þú sért komin með snilldarhugmynd að bók sem þú munt verða mjög ánægð með,“ skrifaði frænkan sem kvaðst ekki kunna nein deili á Helgu Kress, önnur en þau að hún tengdist bók- menntum. Síðar meir komst Sigríður að því að hún er beinn afkomandi Ólafar ríku í 16. ættlið í kvenlegg og það í gegnum Jökuldalinn. Sigríður: „Hún er sumsé sam- eiginleg formóðir okkar frænku minnar, sem dreymdi þennan skrýtna draum. Ég er ekki hjátrúar- full, en þetta eru staðreyndir máls- ins, skjalfestar og óvéfengjanlegar. Og mér fannst blasa við að sú gamla, Ólöf ríka, vildi fá bók.“ Á valdi skáldskaparins Jón Kalman hefur um áraraðir verið einn fremstu rithöfunda Íslands. Eins og áður sagði er Guli kaf- báturinn hans fjórtánda skáldsaga en bókin sver sig í ætt við tvær fyrri skáldsögur Jóns, Ýmislegt um risa- furur og tímann og Snarkið í stjörn- unum, sem voru nýlega endurút- gefnar hjá Benedikt bókaútgáfu. Þetta er persónuleg bók sem ferðast víða um í tíma. Ertu að skrifa um sjálfan þig og þitt líf? Jón Kalman: „Að einhverju leyti er ég alltaf að skrifa um, ekki bein- línis sjálfan mig, heldur bara mitt innra líf. Það finnur sinn farveg á mismunandi stöðum og mismun- andi tímum. Það hefur einhvern veginn þróast þannig hjá mér eiginlega frá minni fyrstu skáld- sögu, Skurðir í rigningu, að ég nota þræði úr mínu lífi og spinn síðan út frá þeim. Ég spyrni mér upp frá  26 Helgin 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.