Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.11.2022, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 17.11.2022, Qupperneq 8
Friðfinnur er 42 ára gamall, 182 senti- metrar á hæð og grann- vaxinn. Þau hafa tekið þessu með þrautseigju. Kristjana Aðalgeirsdóttir, sendifulltrúi svissneska Rauðða krossins í Úkraínu „Urta er frumlegt verk sem hrífur lesandann ... verk sem á skilið mikið lof.“ I N G I B J Ö R G I Ð A A U Ð U N A R D Ó T T I R / M O R G U N B L A Ð I Ð „Mögnuð bók.“ E G I L L H E L G A S O N / K I L J A N „Það er hrein nautn að grípa hana og lesa.“ S T E I N G E R Ð U R S T E I N A R S D Ó T T I R LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Virka daga 10–18 | Lau 11–17 | Sun 12–16 | www.forlagid.is Sendifulltrúi Rauða krossins sem undirbýr húsnæðislausir fyrir flóttafólk í Úkraínu fyrir veturinn segir loftvarna­ flautur vera orðnar hluta af daglegu lífi margra Úkraínu­ manna nú þegar stríðið er á níunda mánuði. sigurjon@frettabladid.is ÚKRAÍNA Loftvarnaflautur í Úkra­ ínu eru orðnar hluti af hversdags­ legu lífi Úkraínumanna, enda er stríðið þar á níunda mánuði og hafa loftárásir Rússa komið í bylgjum á þeim tíma. „Þetta er orðið svo hversdagslegt. Jafnvel litlir krakkar eru alveg hljóðir og kippa sér ekk­ ert upp við þetta,“ segir Kristjana Aðalgeirsdóttir, sendifulltrúi sviss­ neska Rauða krossins, sem stödd er í Úkraínu. Þegar blaðamaður ræddi við Kristjönu á þriðjudaginn var hún stödd í loftvarnabyrgi, enda var þá einungis klukkustund liðin frá því að Rússar hófu f lugskeytaárásir sínar þann daginn. „Ég sit hérna í loftvarnabyrginu, það rigndi sprengjum yfir Kænugarð rétt áður en við byrjuðum að tala saman. Það voru sendar sprengjur yfir allt land­ ið,“ segir Kristjana, en hún er stödd í Kropíjvníjtsjí, borg sem staðsett er í miðri Úkraínu. Kristjana segir alla vera orðna vana því að hlaupa niður í loft­ varnabyrgi þegar heyrist í f lautun­ um. „Fólk venst þessu, fólk aðlagast. Það er svo stórkostlegt við mann­ eskjuna að aðlagast aðstæðum og gera það besta úr verstu stöðunni,“ segir hún. Kristjana hefur starfað fyrir nokkur hjálparsamtök, en verkefni hennar í Úkraínu snýst um undir­ búning húsnæðislausna fyrir flótta­ fólk áður en veturinn gengur í garð. Yfir sex milljónir Úkraínumanna eru á flótta innan Úkraínu og verk­ efni Kristjönu snýst um að koma þeim fyrir á öruggum stöðum. „Það eru margir, og það eru oftast þeir sem eru berskjaldaðastir sem eru í þessum búðum. En þær eru oft í gömlum skólum, barnaheimilum, íþróttahúsum og svoleiðis. Margar þessar byggingar eru mjög gamlar og illa undirbúnar því að hýsa fólk til lengri tíma,“ segir Kristjana. „Verkefnið sem ég er að vinna að núna er að aðlaga þessar byggingar sem nú hýsa f lóttafólk, gera við­ gerðir, breytingar og annað til þess að þær geti hýst fólkið,“ segir hún Loftvarnaflautur orðnar hluti af daglegu lífi margra Úkraínumanna Húsnæðis­ úrræði fyrir flóttafólk í Úkraínu eru oft í gömlum skólum, barna­ heimilum eða íþróttahúsum. MYNDIR/KRISTJANA AÐALGEIRSDÓTTIR Það þarf að huga að ýmsu þegar reynt er að einangra húsnæði fyrir veturinn. MYND/KRISTJANA AÐALGEIRSDÓTTIR og bætir við að þessar breytingar felist í því að auka einangrun, skipta um glugga, koma fyrir salernis­ og eldunaraðstöðu og svo framvegis. Þá segir Kristjana úkraínska vet­ urinn geta orðið mjög kaldan. „Það getur farið alveg niður í þrjátíu stiga frost og það er það sem við erum að búa okkur undir.“ Árásir Rússa hafa að undan­ förnu mestu snúið að orkuverum og innviðum tengdum þeim. Einn hluti verkefnis Kristjönu snýst um undirbúnings þess ef til rafmagns­ leysis kemur. „Núna í dag erum við rafmagnslaus. Ég sit hérna með höfuðljós á mér því það er ekkert rafmagn,“ segir Kristjana. Hún segir úkraínsku þjóðina vera stórkostlega. „Þau hafa tekið þessu með þrautseigju og það er mikill baráttuvilji í þeim. Það er mikil bjartsýni. Það er ekki spurning fyrir þeim að þau eru að fara að vinna þetta stríð. Það er bara spurning hvað það mun taka langan tíma og hversu mikilla fórna það mun krefjast.“ Kristjana segir að þrátt fyrir að margir Úkraínumenn séu orðnir vanir því að hlaupa niður í loft­ varnabyrgi þegar loftvarnaf laut­ urnar gjalla, og heimsfréttir sums staðar séu farnar að snúast um annað, þá megi þetta stríð ekki gleymast. „Þetta má ekki gleymast, það eru yfir sex milljónir manna á f lótta innan Úkraínu og sjö milljónir í Evr­ ópu, meðal annars á Íslandi. Þetta snertir okkur öll,“ segir hún. n kristinnhaukur@frettabladid.is MANNSHVÖRF Samkvæmt tilkynn­ ingu frá lögreglunni í gærkvöldi stendur enn yfir leit að Friðfinni Frey Kristinssyni. Síðast er vitað um ferðir hans fimmtudagskvöldið 10.  nóvember, klukkan 19, þegar hann fór frá Kugguvogi í Reykjavík. Lögreglan óskar eftir því að fólk sem er með öryggis­ eða eftirlits­ myndavélar í nágrenni við það svæði hafi samband, til þess að lög­ reglan geti kannað hvort þar sjáist til ferða Friðfinns eftir áðurnefnda tímasetningu. Einnig eru íbúar í nágrenn­ inu beðnir um að athuga hjá sér geymslur, stigaganga, garðskúra og fleira í þeim dúr og athuga hvort þar sé eitthvað sem geti hjálpað til við leitina. Þau sem geta gefið upp­ lýsingar til lögreglu eru beðin um að hringja í síma 112. Friðfinnur er 42 ára gamall, 182 sentimetrar á hæð, grannvaxinn, brúnhærður og með alskegg. Hann var klæddur í gráa peysu, gráar jogg­ ingbuxur og bláa íþróttaskó. n Lögreglan óskar eftir myndefni úr Vogahverfinu Síðast var vitað um ferðir Friðfinns 10. nóvember. 8 Fréttir 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.