Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 29
Á síðustu miss- erum hefur umhverfisvernd verið í æ meiri brennidepli í samfélaginu og engin undantekning hefur verið hjá okkur. Hringrás – HP Gámar er fjölskyldufyrirtæki og hefur þjónustað viðskiptavini sína í 20 ár. Hringrás hóf nýlega samstarf við Súrefni kol- efnisjöfnum sem hófst með útreikningi á kolefnisspori Hringrásar. Hringrás tekur á móti öllum málmum til endurvinnslu og HP Gámar sinna daglegri sorphirðu hjá fyrirtækjum og einstaklingum. „Á síðustu misserum hefur umhverfisvernd verið í æ meiri brennidepli í samfélaginu og engin undantekning hefur verið hjá okkur. Að endurvinna er jú lykilatriði í hringrásarhagkerfinu og hefur sjálfbærni og umhverfis­ vernd verið í forgangi hjá okkur,“ segir Geir Sigurður Gíslason, rekstrarstjóri Hringrásar. „Nýlegt samstarf við Súrefni kolefnisjöfnun hófst með útreikn­ ingi okkar á eigin kolefnisspori, nánar tiltekið innan umfangs 1 og 2 er varðar beina losun tækja, véla, f lutninga og krókbíla fyrir­ tækisins, en einnig orkunotkun félagsins. Frá sérfræðingum ReSource International verkfræði­ stofu fékkst vottaður útreikningur á kolefnisspori félagsins sem því næst var hægt að nýta til að hefja vegferð Hringrásar að kolefnis­ hlutleysi með Súrefni kolefnis­ jöfnun.“ Geir segir að 100% af umfangi 1 og 2 hafi verið bundin í nýju verk­ efni Súrefnis, Súrefnisskóginum, og var gerður fimm ára samningur til að binda losunina. Súrefnis­ skógurinn er staðsettur á Suður­ landi við Seljalandsfoss og hægt er að sjá hann frá þjóðveginum og heimsækja. „Það var þó mikilvægt fyrir okkur frá upphafi að gera þetta rétt og fylgja reglunum sem tækni­ forskrift Staðlaráðs um ábyrga kolefnisjöfnun á Íslandi tók fram í tjáningu og aðgerðum. Því stað­ hæfum við að vegferð Hring­ rásar og HP Gáma er hafin í átt að kolefnishlutleysi en við erum ekki orðið kolefnishlutlaust félag enn,“ útskýrir Geir. „Í samstarfi við ReSource Inter­ national höfum við þó áætlun um minnkun kolefnisspors félags­ ins, með tilliti þó til stækkunar á umfangi félagsins. Sá hluti sem ekki er hægt að koma í veg fyrir skal áfram bundinn í áframhald­ andi stækkun Súrefnisskógarins.“ Árið 2020 var tekin ákvörðun um það hjá Hringrás og HP Gámum að gróðursetja um 15.000 tré til að binda losun fyrirtækisins og umfram það. „Við áætlum að það þurfi að gróðursetja um 10–15 þúsund plöntur á ári á næstu fimm árum svo undir lokin kemur til með að rísa mikilfenglegur skógur. Við teljum líklegt að í framtíðinni tökum við þátt í einingasafni mis­ munandi verkefna með Súrefni til að kolefnisjafna bæði með bindingu en einnig með forvarnar­ verkefnum,“ segir Geir. Ný verkefni og tækifæri Sjálfbærni er enn í forgangi innan veggja Hringrásar og HP Gáma og þróunin hefur því haldið áfram. Síðasta árið hafa gífurleg vinna og fjármunir verið lögð í þróunar­ verkefni í samstarfi við ReSource International og Súrefni sem snýr að því að bjóða viðskipta­ vinum fyrirtækisins upp á ítarlega útreikninga á kolefnisspori brota­ járns. „Við teljum þetta mikilvægt fyrsta skref í rétta átt til upp­ lýsingagjafar og til að auðvelda viðskiptavinum okkar að taka ábyrgar ákvarðanir um sinn úrgang. Á nýja svæðinu okkar í Hafnarfirði mun rísa rafmagns­ tætari fyrir brotajárn. Hann mun lækka kolefnisfótspor fyrir­ tækisins til muna. Í beinu fram­ haldi mun rafmagnspressa fyrir brotajárn fara á starfstöðina okkar á Akureyri,“ segir Geir. Aðspurður um ástæðu þess að Súrefni hafi orðið fyrir valinu sem samstarfsaðili svarar Geir: „Þegar við fórum að skoða betur sjálfbærni og hver næstu skref yrðu að vera fyrir Hringrás þá rannsökuðum við markaðinn og sáum að einungis örfá félög á Íslandi voru að bjóða upp á kolefnisjöfnun – en bara eitt félag virtist leggja áherslu á að kol­ efniseiningarnar sem nýttar yrðu væru vottaðar frá upphafi. Það var Súrefni. Það gaf auga leið að þetta var eina félagið sem var með skýra framtíðarsýn á hvernig markaður kolefnisjöfnunar yrði á næstu áratugum og við ákváðum því að hefja samstarf með þeim.“ Geir segir þjónustuna hafa verið til fyrirmyndar. „Þjónustan er bæði skjót og per­ sónuleg en jafnframt fagmannleg. Það sem skiptir okkur mestu máli í samstarfsaðilum okkar eru opin­ ská og heiðarleg samskipti ásamt góðum viðskiptaháttum og sann­ gjörnu verði miðað við þjónustu – en Súrefni tikkar í öll þau box,“ segir hann. Að lokum segir Geir að sam­ starfið hafi skilað aukinni umræðu um umhverfisvernd innan fyrir­ tækisins. „Starfsfólkið er mjög ánægt með gróðursetninguna. Kolefnis­ jöfnun er hluti af aukinni áherslu fyrirtækisins á umhverfismál og minnkun kolefnisfótspors.“ n Sjálfbærni í forgangi hjá okkur Geir Sig- urður Gíslason rekstrarstjóri Hringrásar/ HP Gáma segir samstarfið við Súrefni kolefnis- jöfnum hafa skilað árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Samstarfið við Súrefni kolefnisjöfnun hófst með útreikningi á kolefnisspori er varðar beina losun tækja, véla, flutninga og krókbíla fyrirtækisins. MYND/AÐSEND kynningarblað 5FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2022 HREIN ORK A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.