Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 12
Artemis-áætlunin er nefnd í eftir Artemis, hinni forngrísku gyðju tunglsins. © GRAPHIC NEWSHeimildir: NASA, Aerojet Rocketdyne *Alþjóðlega geimstöðin Verkefnið áætlar að koma geim- förum aur til tunglsins fyrir 2025 Orion hylkið (‚ögurra manna áhöfn) Flugið út: 8-14 dagar Flugið heim: 9-19 dagar Efri hlutinn RL10 hreyll Megin- geymsla Eldaugar RS-25 hreyar 10 smágervi- hnettir með í för 6-19 dagar á sporbaugi Tunglsins E2056 E2045 E2058 E2060 Saga RS-25 hreyana Áreiðanlegir, prófaðir. Uppfærðir frá fyrri geimferðaáætlunum. E2045: 12 •ug (þar á meðal John Glenn) E2056: 4 (þ.m.t. viðgerðir á Hubble) E2058: 6 •ug til ISS* E2060: 3 (þ.m.t. seinasta geimskutluferðin) 98 .2 m Inn/út um sporbaug Tunglsins Artemis I er ómannað tilraunar•ug sem hefur það verkefni að kanna hagkvæmni nýja SLS geimskotakerŸsins og Orion áhafnarhylkisins. Þetta verður fyrsta skreŸð í endurkomu NASA til tunglsins. Artemis I – Aur til Tunglsins kristinnhaukur@frettabladid.is LÝÐHEILSA Alþjóðleg rannsókn sýnir að sæðistala karla úti um allan heim hefur helmingast á undan- förnum fjörutíu árum. Fyrri rann- sókn sama teymis, frá árinu 2017, sýndi að sæðistalan hefði lækkað í hinum vestræna heimi. Það er Evr- ópu, Norður-Ameríku og Eyjaálfu. Framhaldsrannsóknin, sem birt var í tímaritinu Human Reproduction hjá Oxford-háskóla, sýnir sömu nið- urstöðu í Afríku, Asíu og Rómönsku Ameríku. Fyrir um hálfri öld mældist að meðaltali 101 milljón sáðfruma í hverjum millilítra af sæði en nú aðeins 49 milljónir. Reiknað er með að sæðistalan hafi að meðaltali fallið um 1,16 prósent á ári frá árinu 1972. Lækkunin er hins vegar sífellt að aukast og ef litið er til tímans frá aldamótum er lækkunin 2,64 pró- sent á ári. „Þessi lækkun sýnir augljóslega minnkandi getu mannkyns til að fjölga sér,“ sagði Hagai Levine, pró- fessor við hebreska háskólann í Jerúsalem, sem leiddi rannsóknina, við breska blaðið The Guardian. Ekki er að fullu vitað hvað það er sem veldur hinni lækkandi sæðis- tölu karla, en í rannsókninni var tekið tillit til hluta eins og aldurs karla og hversu langur tími hafði liðið frá síðasta sáðláti. Líkur hafa verið leiddar að því að umhverfislegir þættir geti spilað inn í þróunina og hafi áhrif á karla allt frá því í móðurkviði. Þá hafa lífs- tílsþættir einnig verið nefndir sem orsök, svo sem ofþyngd, hreyfingar- leysi og neysla vímuefna af ýmsum toga. n Sæðistala karla heimsins lækkar Fyrsta geimfarinu á vegum Artemis-áætlunarinnar var skotið á loft í gær eftir nokk- urra mánaða tafir. Eldflaugin sem ferjaði geimfarið er sú öflugasta í sögunni og er verkefninu ætlað að undirbúa mannaða áhöfn sem mun fara til tunglsins í fyrsta sinn síðan 1972. helgisteinar@frettabladid.is GEIMVÍSINDI Rétt fyrir klukkan sjö í gærmorgun að íslenskum tíma var geimfarinu Artemis-1 skotið á loft frá Canaveral-höfða í Flórída og er þetta fyrsta geimskotið af þremur sem NASA hefur skipulagt fyrir næstu þrjú árin í Artemis-áætluninni. Eldflaugin flutti með sér ómann- aða geimhylkið Óríon og um borð sitja þrjár gínur sem hafa það verk- efni að skynja og mæla lífsmörk fyrir framtíðargeimfara. Geimfarið mun fljúga hring um sporbaug tunglsins áður en það snýr aftur til jarðar. Áætlað er að geimfar- ið muni lenda í Kyrrahafinu skammt frá San Diego að loknu 25 daga ferða- lagi sínu þann 11. desember. Artemis-áætlunin er nefnd eftir Artemis, gyðju tunglsins sem var tilbeðin í Grikklandi hinu forna. Geimskotið átti upprunalega að eiga sér stað í ágúst en miklar tafir urðu á verkefninu þegar upp komst um eldsneytisleka. Svipað vandamál hrjáði svo verk- efnið á ný þegar seinna flugtakið átti að fara fram snemma í september. Um borð í geimfarinu eru einn- ig ýmsir skynjarar sem munu mæla titring, hröðun og geislun innan- borðs í hylkinu. Markmiðið er að meta hvernig Óríon-geimhylkið muni standa sig árið 2024 þegar Artemis-2 ferjar sína fyrstu áhöfn á sporbraut um tunglið. Ári seinna mun Artemis-3 lenda mönnuðu geimfari á yfirborð tungls- ins í fyrsta sinn síðan 1972. Fyrsta tungllendingin átti sér stað árið 1969 og geimfararnir Neil Armstron og Buzz Aldrin stigu fyrstir manna á yfirborð tunglsins. Geimkapphlaupið á milli Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna hafði þá staðið yfir í meira en áratug og kepptust þessi tvö voldugustu ríki jarðar um yfirburði í könnun geims- ins. Áhugi á geimrannsóknum fór dvínandi með tímanum. Þegar kalda stríðið byrjaði að fjara út breyttu stjórnvöld um stefnu og juku sparnað. Artemis-áætlunin mun ekki aðeins koma mannkyninu aftur til tunglsins, heldur markar áætlunin mikil tímamót í sögu geimferða. Space Launch System eldflaugin sem bar Artemis-1 út í geim er öflugasta eldflaug sögunnar og mun áætlunin einnig ferja fyrsta kvenkyns geim- fara sem mun ganga á tunglinu. n Mannkynið snýr aftur til tunglsins Tímalína geimkapphlaupsins mikla og ferðalaga manna til tunglsins Geimfarar í fjórðu tungllendingunni dvelja þar í 3 daga og nota tungljeppa í fyrsta sinn. Fyrstu litmyndirnar frá tunglinu eru birtar. 1957 1961 1969 1970 1971 1972 Sovéska geim­ farið Spútnik 1 verður fyrsta geimfar sem sett er á braut um jörðu. NASA er stofnað í kjölfarið. Sovéski geimfarinn Júrí Gagarín verður fyrsti maðurinn til að fara út í geim. John F. Kennedy Bandaríkjaforseti lofar að senda bandaríska geimfara til tungls­ ins fyrir 1970. Apollo 11 geimfar­ ið lendir á tunglinu þann 24. júlí. Neil Armstrong og Buzz Aldrin verða fyrstir manna til að stíga fæti á tunglið. Geimfarar Apollo 13 lifa af spreng­ ingu í þjónustu­ farinu. Geimfarinn Jack Swigert gerir setninguna „Hous­ ton, we have a problem“ fræga. Apollo 17 verður sjötta og seinasta mannaða tungllendingin og er síðan hætt við fleiri tungllendingar í sparnaðar­ skyni. Geimfarið Artemis­1 tekur á loft á Canaveral­höfða í Flórída í átt til tunglsins. FRÉTTABLAÐIÐ/EPAGeimfarinn Buzz Aldrin gengur á tunglinu. MYND/NEIL ARMSTRONG Lækkun sæðistölu mælist nú í öllum heimsálfum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY ragnarjon@frettabladid.is BANDARÍKIN Donald Trump, fyrr- verandi forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að hann muni bjóða sig fram til embættis forseta í þriðja skiptið árið 2024. Þetta tilkynnti hann á Mar-a-Lago setrinu fræga í Flórída sem hefur orðið að höfuð- stöðvum forsetans. Trump stígur fram undir þrýst- ingi frá f lokksbræðrum sínum og -systrum og Repúblikanar vilja margir meina að slæmt gengi þeirra í nýafstöðnum kosningum sé honum að kenna. Þegar Joe Biden, núverandi for- seti Bandaríkjanna, var spurður hvort hann hefði skoðun á framboði Trumps sagði hann „nei, í rauninni ekki“ en hann er nú staddur á G20- leiðtogafundinum sem fram fer á Balí. n Trump býður sig fram til forseta í þriðja skiptið Forsetakosningarnar eru árið 2024. 12 Fréttir 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.