Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 19
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Salan á Íslandsbanka er annað af
tveimur sér stefnumálum Sjálf-
stæðisflokksins, sem náð hafa
fram að ganga í fimm ára stjórnar-
samstarfi. Hitt er skattalækkunin,
sem var hluti af kjarasamningum
2019.
Það eru bara Sjálfstæðisflokkur-
inn og Viðreisn, sem fylgja ákveðið
þeirri almennu grundvallarhug-
myndafræði að einkaframtakið,
fremur en skattborgararnir, eigi að
leggja fram áhættufé til viðskipta-
banka og fjárfestingabanka.
Aðrir flokkar hafa óljósar hug-
myndir um eitthvert hlutverk
skattpeninga í bankarekstri.
Óorð
Meirihlutastuðningur við einka-
bankakerfi er því ekki ótvíræður
á Alþingi. Í því ljósi var mikils um
vert að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi
ná bankasölunni fram í ríkisstjórn
undir forystu VG.
Að sama skapi hlýtur það að vera
fylgjendum þessarar hugmynda-
fræði í Viðreisn og Sjálfstæðisflokki
mikil vonbrigði að ríkisstjórnin
skuli hafa haldið þannig á málum,
sem lýst er í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar.
Það er sem sagt unnt að koma
óorði á góða hugmyndafræði með
lélegum vinnubrögðum og lausum
tengslum við pólitísk siðferðileg
gildi.
Klambur er sennilega mildasta
orðið, sem nota má um niðurstöðu
Ríkisendurskoðunar. Ríkisstjórnin
hefur valdið hugmyndafræðinni
umtalsverðu tjóni.
Ádeiluefni
Ádeilum á bankasöluna má skipta í
tvennt: Annars vegar eru pólitískar
ákvarðanir, sem ríkisstjórnin öll
ber ábyrgð á og hins vegar stjórn-
sýsluframkvæmd, sem fjármálaráð-
herra er ábyrgur fyrir.
Stærstu málin eru pólitísk. Í
augum flestra var siðferðilega
ámælisvert að selja hlutina ekki í
opnu útboði eins og í fyrra skiptið.
Sama má segja um afsláttinn. Sumir
kaupendur gerðu jafnvel grín að
þeirri ákvörðun. Þetta er pólitískt
mat. Það er hvorki hlutverk ríkis-
endurskoðunar né rannsóknar-
nefndar að fella dóma um það,
heldur kjósenda. Viðskiptaráðherra
gagnrýndi réttilega þessa ákvörðun
samráðherra sinna.
Fjármálaráðherra ber aftur á
móti ábyrgð á stjórnsýslufram-
kvæmdinni. Þar gerir ríkisendur-
skoðun fjölmargar athugasemdir.
Meirihlutinn á Alþingi ákveður
hvort þær hafi pólitískar afleið-
ingar.
Rök eru fyrir því að ríkisstjórnin
beri ábyrgð í heild.
Rannsóknarnefnd
Ríkisendurskoðun birtir lista yfir
álitaefni, sem falla utan við starfs-
svið hennar. Það var vitað fyrir-
fram. Það er ekki hlutverk hennar
að úrskurða um lagaleg álitaefni,
sem eru nokkur.
Stjórnarandstaðan væri því að
bregðast eftirlitsskyldu sinni ef hún
óskaði ekki eftir rannsóknarnefnd
til að skoða þau mál, sem út af
standa. Þau eru heldur ekki á borði
fjármálaeftirlitsins. Það hefur ekki
vald til að skoða hlut ráðherra og
Bankasýslu.
Núna kemur það ríkisstjórninni
í koll að hafa hafnað rannsóknar-
nefnd í vor sem leið. Þá hefði málið
tekið fyrr af. En ríkisstjórnin kaus
að fara þá leið, sem draga myndi á
langinn að botn fengist í málið.
Þórðargleði
Þórðargleði ríkir nú í herbúðum
þeirra, sem fylgjandi eru ríkis-
bankahugmyndafræði. Hætta er
á að klambrið verði vatn á myllu
þeirra.
Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir
að sölunni á Íslandsbanka verði
lokið. Forsætisráðherra segir hins
vegar að um það hafi enn ekki verið
tekin endanleg ákvörðun. Ekki
verður séð að sú fullyrðing standist,
nema líta beri á fjárlagafrumvarpið
sem þingmannafrumvarp.
Forsætisráðherra þarf að
eyða þessari óvissu og svara því
umbúðalaust hvort skýrsla ríkis-
endurskoðunar dugar til að halda
áfram með söluna.
Um leið þarf ríkisstjórnin að gera
grein fyrir því hvernig hún ætlar
að endurvinna glatað traust. Það er
óhjákvæmilegt.
Víðari forsendur
Vel gæti farið á því að forsætisráð-
herra kannaði hvort gerlegt er að
ná með formlegum samningum
breiðari samstöðu á Alþingi um
framhaldið. Það myndi væntanlega
kalla á nýjar og víðari málefnalegar
forsendur fyrir sölu.
Í því sambandi mætti til að
mynda óska eftir tillögum Sam-
keppniseftirlitsins um aðgerðir á
fjármálamarkaði, sem líklegar væru
til að auka raunverulega samkeppni
í þágu almannahagsmuna.
Það væri tilraunarinnar virði að
reyna að ná breiðari samstöðu með
einum eða fleiri flokkum í stjórnar-
andstöðu þar sem söluáform væru
ofin saman við samkeppnismark-
mið.
Aukin samkeppni þjónar bæði
hagsmunum launafólks og fyrir-
tækja. Skýr samkeppnismarkmið
gætu breytt sterkri ímynd sérhags-
munagæslu í raunverulega varð-
stöðu um almannahagsmuni.
Fram til þessa hefur ríkis-
stjórnin ekki þorað í samvinnu við
stjórnarandstöðuflokk eða flokka
um veigamikil ágreiningsmál. En
sennilega er það eina leið hennar út
úr þessari klípu. n
Bankasöluklambur
Finndu réttu eignina
fyrir þig á frettabladid.is Fasteignablaðið
Fasteignablað Fréttablaðsins kemur út alla þriðjudaga
FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2022 Skoðun 19FRÉTTABLAÐIÐ