Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 58
Að spila á hljóðfæri er miklu miklu stærri hluti af mínu sjálfi en ég vil nokkurn tímann viðurkenna. Ég hef samið og æft og ruglað á hljóðfæri í þrjátíu og eitt ár. Magnús Trygvason Eliassen Maggi trommari er á snerti­ fleti við flesta kima íslensks tónlistarlífs. Hann er jafn­ framt meðlimur djassbands­ ins ADHD og einn stofnmeð­ lima hinnar gríðarvinsælu sveitar Moses Hightower. Síðarnefnda sveitin fagnar um þessar mundir tíu ára afmæli útgáfu Annarrar Mósebókar. ninarichter@frettabladid.is Önnur Mósebók með Moses High­ tower var valin plata ársins 2012 af Fréttablaðinu, komst á Kraums­ listann, fékk Menningarverðlaun DV og hlaut Íslensku tónlistarverð­ launin fyrir lagasmíðar og texta­ gerð auk tilnefninga fyrir plötu, lag, söngvara og upptökustjóra ársins. Magnús Tryg vason Eliassen mætir á Hressingarskálann á gráum haustdegi. Hann er með derhúfu og strákslegt yfirbragð og hefur ekki breyst mikið síðan undirrituð sá hann fyrst spila á tónleikum árið 2005. Maggi trommari, eins og hann er gjarnan kallaður, er alinn upp á Vatnsenda í Norðlingaholti. „Það er alveg jafn langt þangað í dag, en bara fleiri hús á milli,“ segir hann. „Algjört sveitalíf,“ segir hann. Móðir hans er fyrrverandi leik­ skólastýra og deildarstjóri á leik­ skóla í dag. Faðir hans er Norð­ maður, fyrrverandi yf irmaður leikmunadeildar Þjóðleikhússins. Þaðan kemur nafnið, Trygvason Eliassen með einu g­i. Spilaði á Magnúsi mánaðarins Það ganga bransasögur af Magga, að hann hafi spilað með nánast öllum íslenskum böndum sinnar kyn­ slóðar. Magnúsi mánaðarins var slegið upp, svolítið furðulegri og skammlífri tónlistarhátíð þar sem Maggi kom fram með einu þessara banda mánaðarlega. „Þetta voru alls konar verkefni sem ég var, eða er í. Ég hef nú aðeins minnkað við mig,“ segir hann. Aðspurður um ástæður vinsæld­ anna, hvort hann sé svona góður trommari eða einfaldlega svona þægilegur í samvinnu, hlær Maggi við: „Þú þarft að taka viðtöl við alls konar fólk um það. En örugglega bara bæði. Það er nú samt alls konar gott fólk annað til. Það var fyndið að halda svona sjálfshátíð í nokkra mánuði en svo er þetta pínu flókið.“ Það á sér dökka hlið að vera jafn u p p t e k i n n og raun ber vitni og Maggi g l í m d i v i ð kulnun árið 2018. „Þá var ég að f lytja alla búslóð­ ina mína yfir í nýtt hús. Ég var að túra með ADHD þá, við vorum í smá Evrópureisu. Svo bara gat ég ekki meir og var bara sendur heim. Mér var alltaf ógeðslega illt í maganum, ég var kvíðinn og stress­ aður og mér bara leið ömurlega.“ Maggi vann sig út úr kulnuninni með hvíld og endurhæfingarferli. „Svo hitti ég sálfræðing reglulega og talaði mikið við vini mína.“ Aðspurður hvaða áhrif slíkt hafi haft á sjálfsmyndina, að koma ekki lengur fram, svarar hann: „Ég gat alveg sest og spilað, en það var eins og óöryggi varðandi allt annað hefði grillað mig að innan,“ segir hann. Maggi er faðir og fjölskyldu­ maður og gegnir því ýmsum hlut­ verkum í lífinu eins og gerist. „Að fara á Evróputúr viku eftir að maður flytur á nýjan stað er sennilega það heimskulegasta sem ég hef látið mér detta í hug. Samt gerir maður þetta, maður er alltaf að þessu. Að spila tónleika þó að maður þurfi helst að vera í jarðarför, afmæli og að sinna börnunum á sama tíma.“ Maggi segir að fæstir tónlistar­ menn geri sér grein fyrir því hversu stór hluti af sjálfinu tónlistin er. „Að spila á hljóðfæri er miklu miklu stærri hluti af mínu sjálfi en ég vil nokkurn tímann viðurkenna. Ég hef samið og æft og ruglað á hljóðfæri í þrjátíu og eitt ár,“ segir hann og bendir á að í samanburði séu börnin hans sjö og ellefu ára gömul. Allir í greiningu, alla leið, alltaf Maggi er meðlimur djasssveitarinn­ ar ADHD og talandi um sjálfsmynd má spyrja hvernig ADHD­greining spilar inn í annað eins vinnuálag. „Ég hef aldrei fengið greiningu en ég er núna í ferli. Ég er að vinna í pappírunum,“ segir hann. „Allir í greiningu, alla leið, alltaf. Og það mætti stytta biðtímana líka,“ bætir hann við. Í beinu framhaldi minnist Maggi á þá merkilegu staðreynd að síðan viðtalið hófst hafi Önnur Móse­ bók verið á fóninum á kaffihúsinu. „Þetta er fimmta lagið í röð,“ segir hann hugsi. „Kannski ætti ég að biðja þau að slökkva á þessu,“ segir hann. „Nei. Djók.“ Vissirðu að platan yrði hittari? „Nei. Það hefur alltaf komið mér mikið á óvart þegar lög með Moses verða rosa vinsæl,“ svarar Maggi. „Ég veit ekki af hverju.“ Hann segir að sennilega snúist það að ein­ hverju leyti um hljóðfæraleikinn. „Sumir vilja meina að þessir textar hafi djúpa og mikla meiningu.“ Undirrituð samsinnir því. „Steini og Andri skrifa þá að mestu leyti. Ég hef lagt til hugmynd­ ir. Einu sinni kom út lag sem heitir Lyftutónlist með þessari ágætu sveit. Steina vantaði innblástur og ég lagði til lyftuferð. Þá varð þetta til. En þeir eiga þessa texta með húð og hári.“ Maggi á sér ekkert uppáhaldslag á Annarri Mósebók. „Mér finnst Stutt skref mjög gott lag og mér heyrist þau vera að rúlla plötunni í gegn,“ segir Maggi um tónlistina sem ómar í bakgrunni. Maggi en ekki Mark Forster „Heyrðu, eitt! Það er sko maður. Heldur takti á tíu ára afmæli Mósebókar Maggi upplifði ofurálag og lenti í kulnun árið 2018 og tók sér hlé til að byggja sig upp. Hann slær upp tón­ leikum ásamt félögum sínum í Moses High­ tower í Hörpu 26. nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK benediktarnar@frettabladid.is  Þjóðargersemin Þórhallur Sigurðs­ son, betur þekktur sem Laddi, hefur slegið í gegn í myndlistarheiminum og heldur hann sína þriðju sýningu næstkomandi föstudag. Laddi segir að hann hafi alltaf langað að vera listmálari en hann hafði aldrei neinn tíma til að sinna áhugamál­ inu. Nú þegar hann er kominn á elliárin, þá málar hann næstum því alla daga. „Ég er með málverkasýningu í Smiðjunni listhúsi. Þetta er mín þriðja sýning þar og ég er að selja málverk á striga og teikningar á pappír,“ segir Laddi. Spurður hvort listin hafi tekið yfir lífi hans segir hann svo vera. „Bara gjörsamlega. Þetta stóð nú alltaf til alveg frá því að ég var unglingur, það var bara aldrei neinn tími til þess að fara að mála. Ég lenti í öðru, hljómsveit og svo í skemmtibransanum og öllu þessu, þá varð þetta bara að bíða til elliáranna. Nú er komið að þeim og það verður ekki aftur snúið,“ segir Laddi, sem málar alla daga eins og vitleysing­ ur að eigin sögn. Á málverkum Ladda má sjá alls kyns fígúr­ ur, hálfgerða menn og álfa, sem eru hans hugarfóstur. „Þetta eru alls konar súrrealískar myndir sem ég er að mála,“ segir hann. Laddi segir að viðtökurnar við myndum hans hafi verið góðar. „Á þessum tveimur sýningum sem ég hef haldið þá seldist allt upp. Þannig það hefur gengið ágætlega,“ segir Laddi. Sýning Ladda verður opnuð föstudaginn 18. nóvember í Smiðjunni listhúsi klukkan 18. n Laddi slær í gegn á nýju sviði É g æ t l a að sýna þér my nd.“ Hann rek ur símann upp að andlitinu og á skjánum er ljós­ mynd af manni með skegg, húfu og gleraugu. „Eru mikil líkindi með okkur?“ Maðurinn á myndinni heitir Mark Forster og er þýskur tónlistar­ maður, poppstjarna reyndar. „Ég hef verið hundeltur af fólki á götum Þýskalands sem heldur að ég sé þessi maður. Taka myndir og elta mig á klósettið,“ segir hann. „Það var kona með dóttur sinni sem sá mig labba inn á almenningssal­ erni og þær hlupu á eftir mér. Ég var á leiðinni í f lug. Svo vildu þær ekki trúa því að ég væri ekki þessi maður. Á sama flugvelli var fólk að taka myndir í leyni.“ Móses Hightower heldur afmæl­ istónleika útgáfunnar í Hörpu 26. nóvember næstkomandi. n Laddi hefur tileinkað sér myndlist á efri árum og hefur slegið í gegn á nýju sviði. Eitt af súrr­ ealísku verkum Ladda sem verð­ ur til sýningar á föstudaginn næstkomandi. Mark Forster 34 Lífið 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.