Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 19
Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Salan á Íslandsbanka er annað af tveimur sér stefnumálum Sjálf- stæðisflokksins, sem náð hafa fram að ganga í fimm ára stjórnar- samstarfi. Hitt er skattalækkunin, sem var hluti af kjarasamningum 2019. Það eru bara Sjálfstæðisflokkur- inn og Viðreisn, sem fylgja ákveðið þeirri almennu grundvallarhug- myndafræði að einkaframtakið, fremur en skattborgararnir, eigi að leggja fram áhættufé til viðskipta- banka og fjárfestingabanka. Aðrir flokkar hafa óljósar hug- myndir um eitthvert hlutverk skattpeninga í bankarekstri. Óorð Meirihlutastuðningur við einka- bankakerfi er því ekki ótvíræður á Alþingi. Í því ljósi var mikils um vert að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi ná bankasölunni fram í ríkisstjórn undir forystu VG. Að sama skapi hlýtur það að vera fylgjendum þessarar hugmynda- fræði í Viðreisn og Sjálfstæðisflokki mikil vonbrigði að ríkisstjórnin skuli hafa haldið þannig á málum, sem lýst er í skýrslu Ríkisendur- skoðunar. Það er sem sagt unnt að koma óorði á góða hugmyndafræði með lélegum vinnubrögðum og lausum tengslum við pólitísk siðferðileg gildi. Klambur er sennilega mildasta orðið, sem nota má um niðurstöðu Ríkisendurskoðunar. Ríkisstjórnin hefur valdið hugmyndafræðinni umtalsverðu tjóni. Ádeiluefni Ádeilum á bankasöluna má skipta í tvennt: Annars vegar eru pólitískar ákvarðanir, sem ríkisstjórnin öll ber ábyrgð á og hins vegar stjórn- sýsluframkvæmd, sem fjármálaráð- herra er ábyrgur fyrir. Stærstu málin eru pólitísk. Í augum flestra var siðferðilega ámælisvert að selja hlutina ekki í opnu útboði eins og í fyrra skiptið. Sama má segja um afsláttinn. Sumir kaupendur gerðu jafnvel grín að þeirri ákvörðun. Þetta er pólitískt mat. Það er hvorki hlutverk ríkis- endurskoðunar né rannsóknar- nefndar að fella dóma um það, heldur kjósenda. Viðskiptaráðherra gagnrýndi réttilega þessa ákvörðun samráðherra sinna. Fjármálaráðherra ber aftur á móti ábyrgð á stjórnsýslufram- kvæmdinni. Þar gerir ríkisendur- skoðun fjölmargar athugasemdir. Meirihlutinn á Alþingi ákveður hvort þær hafi pólitískar afleið- ingar. Rök eru fyrir því að ríkisstjórnin beri ábyrgð í heild. Rannsóknarnefnd Ríkisendurskoðun birtir lista yfir álitaefni, sem falla utan við starfs- svið hennar. Það var vitað fyrir- fram. Það er ekki hlutverk hennar að úrskurða um lagaleg álitaefni, sem eru nokkur. Stjórnarandstaðan væri því að bregðast eftirlitsskyldu sinni ef hún óskaði ekki eftir rannsóknarnefnd til að skoða þau mál, sem út af standa. Þau eru heldur ekki á borði fjármálaeftirlitsins. Það hefur ekki vald til að skoða hlut ráðherra og Bankasýslu. Núna kemur það ríkisstjórninni í koll að hafa hafnað rannsóknar- nefnd í vor sem leið. Þá hefði málið tekið fyrr af. En ríkisstjórnin kaus að fara þá leið, sem draga myndi á langinn að botn fengist í málið. Þórðargleði Þórðargleði ríkir nú í herbúðum þeirra, sem fylgjandi eru ríkis- bankahugmyndafræði. Hætta er á að klambrið verði vatn á myllu þeirra. Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að sölunni á Íslandsbanka verði lokið. Forsætisráðherra segir hins vegar að um það hafi enn ekki verið tekin endanleg ákvörðun. Ekki verður séð að sú fullyrðing standist, nema líta beri á fjárlagafrumvarpið sem þingmannafrumvarp. Forsætisráðherra þarf að eyða þessari óvissu og svara því umbúðalaust hvort skýrsla ríkis- endurskoðunar dugar til að halda áfram með söluna. Um leið þarf ríkisstjórnin að gera grein fyrir því hvernig hún ætlar að endurvinna glatað traust. Það er óhjákvæmilegt. Víðari forsendur Vel gæti farið á því að forsætisráð- herra kannaði hvort gerlegt er að ná með formlegum samningum breiðari samstöðu á Alþingi um framhaldið. Það myndi væntanlega kalla á nýjar og víðari málefnalegar forsendur fyrir sölu. Í því sambandi mætti til að mynda óska eftir tillögum Sam- keppniseftirlitsins um aðgerðir á fjármálamarkaði, sem líklegar væru til að auka raunverulega samkeppni í þágu almannahagsmuna. Það væri tilraunarinnar virði að reyna að ná breiðari samstöðu með einum eða fleiri flokkum í stjórnar- andstöðu þar sem söluáform væru ofin saman við samkeppnismark- mið. Aukin samkeppni þjónar bæði hagsmunum launafólks og fyrir- tækja. Skýr samkeppnismarkmið gætu breytt sterkri ímynd sérhags- munagæslu í raunverulega varð- stöðu um almannahagsmuni. Fram til þessa hefur ríkis- stjórnin ekki þorað í samvinnu við stjórnarandstöðuflokk eða flokka um veigamikil ágreiningsmál. En sennilega er það eina leið hennar út úr þessari klípu. n Bankasöluklambur Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is Fasteignablaðið Fasteignablað Fréttablaðsins kemur út alla þriðjudaga FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2022 Skoðun 19FRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.