Fréttablaðið - 17.11.2022, Síða 21

Fréttablaðið - 17.11.2022, Síða 21
KYNN INGARBLAÐ ALLT FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2022 Það verður ýmislegt girnilegt góð- gæti í boði á sýrlenska góðgerðar- kvöldverðinum. MYND/AÐSEND jme@frettabladid.is Þann 17. nóvember verður haldið góðgerðarkvöld hjá Krafti, félagi ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Í húsnæði Krafts heldur hópur Sýrlendinga sýrlenskan góðgerðar­ kvöldverð. Allur ágóði rennur til Krafts. Nú er tækifæri til að styrkja gott málefni og bragða í leiðinni á ljúffengum sýrlenskum mat. Barátta okkar allra „Við erum hópur Sýrlendinga, búsettra á Íslandi. Sum okkar komu hingað sem flóttafólk, önnur af öðrum ástæðum. En öll eigum við það sameiginlegt að hafa verið afar vel tekið af Íslendingum og langar að leggja eitthvað af mörkum til samfélagsins. Við kynntumst Krafti í gegnum átakið „Lífið er núna“. Við lærðum um það mikilvæga starf sem samtökin vinna og vissum strax að okkur langaði að gera eitt­ hvað til að styðja við það. Baráttan við krabbamein er barátta okkar allra,“ segja Kinan Kadoni og Talal Abo Khalil, talsmenn hópsins. Kvöldið verður haldið í húsa­ kynnum Krafts og Krabbameins­ félagsins, Skógarhlíð 8 á 4. hæð, milli klukkan 18.00–21.00. Máltíðin kostar 3.500 fyrir fullorðna og 2.000 krónur fyrir börn 12 ára og yngri. Greitt er fyrir máltíðina á staðnum. Hlekk á skráningarblað er að finna í Facebook­viðburði: Sýrlenskur góð­ gerðarkvöldverður/Syrian Charity Dinner. Nauðsynlegt er að skrá sig svo unnt sé að reikna út hver mörg munu njóta kvöldverðarins. n Njóttu og styrktu Förum varlega með eld um hátíðirnar Aldís Rún Lárusdóttir er nýr sviðsstjóri forvarnasviðs Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Eins og nafnið gefur til kynnar einbeitir forvarnasvið sér að for- vörnum gegn eldsvoða með ýmsum hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Setjum reykskynjarana í fyrsta sæti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnir forvörnum gegn eldsvoðum. Í forvörnum fyrir almenning er lögð áhersla á að reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnarteppi séu til staðar á hverju heimili. Slökkviliðið tekur einnig þátt í eldvarnaátaki Landssambands slökkviliðs- og sjúkra- flutningamanna fyrir grunnskólabörn. 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.