Fréttablaðið - 17.11.2022, Page 24
Áður fékk ég oft að
heyra að ég væri
smá kreisí í fatavali og
gleraugum, og ég var það.
Bjarni Viðar Sigurðsson
Bjarni Viðar Sigurðsson
keramiker opnar sinn árlega
jólamarkað í dag og hefur að
venju bakað hnallþórur og
marengstertur fram á nótt.
thordisg@frettabladid.is
„Ég var mjög upptekinn af tískunni
þegar ég var yngri, og jújú, ég er
það enn, en á afslappaðri máta. Hér
áður keypti ég mér aldrei föt án
þess að hafa farið um allan bæ og
fundið það rétta og ekki síst rétta
merkið. Í dag vil ég enn góð merki
og vandaðan fatnað, en mín helsta
tískufyrirmynd er Marc Jacobs
og þá sérstaklega vegna þess hve
hann er frjálslegur í klæðnaði en
getur líka verið mjög klassískur.“
Þetta segir Bjarni Viðar Sigurðs-
son, einn dáðasti keramiker
Íslendinga.
Á unglingsárunum lét hann sig
dreyma um að læra fatahönnun á
Ítalíu.
„Þar lá áhugasviðið en það varð
ekkert úr því að ég færi. Í staðinn
vinn ég við listsköpun í keramik-
inu og það er ótrúlegt hversu
miklar tískusveiflur eru í því, en
rétt eins og í fatatískunni er margt
sem heldur velli vegna þess hve
klassísk verkin eru. Sjálfur fæ ég
iðulega fyrirspurnir frá seljendum,
hvort ég vilji senda þeim hina og
þessa liti af verkum sem kaup-
endur vilja tímabundið en ég hef
aldrei orðið við því. Ég vil fylgja
mínu hjarta og gera nákvæmlega
það sem ég brenn fyrir og ég veit að
það kemur fram í verkunum,“ segir
Bjarni.
Í svörtu frá toppi til táar
Bjarni segir fatastíl sinn vera
afslappaðan.
„Áður fékk ég oft að heyra að
ég væri smá kreisí í fatavali og
gleraugum, og ég var það. Ég
elskaði allt sem var áberandi og
keypti mér oftar en ekki geggjaða
og litríka hönnun. Í dag elska ég
að komast yfir jakkaföt í demp-
uðum litum, eins og blávínrauðu
jakkafötin frá Sand sem ég keypti í
Kaupmannahöfn og voru hönnuð
af Ringo Starr. Þau eru minn uppá-
halds klæðnaður.“
Þegar Bjarni vill stela senunni
velur hann svarta litinn.
„Ég dýrka að klæðast svörtu frá
toppi til táar og það er sjaldan sem
maður sér karlmenn í öllu svörtu.
Með aldrinum er ég þó farinn að
ganga meira í litum sem fylgir því
að ég nota liti mikið í minni list-
sköpun,“ segir Bjarni.
Þegar kemur að tísku er hann
veikastur fyrir skóm.
„Ég er endalaust upptekinn af
skóm. Nýlega ákvað maki minn
að fara í gegnum skósafnið og
úr einum skáp af þremur komu
45 pör, þrjú ónotuð og sum sem
ný. Sum sem höfðu verið í mestu
uppáhaldi voru farin að láta á sjá
og svo voru aðrir skór bara ekki
lengur ég. Því fengu fimmtán pör
að fjúka þar og þegar næstu tveir
skápar voru opnaðir kom í ljós að
ég var eigandi að fleiri en hundrað
skópörum,“ segir Bjarni og hlær að
öllu saman.
Föt sem lyfta persónuleikanum
Tískuráð sem Bjarni tileinkaði sér
fékk hann hjá kunningja sínum í
Danaveldi.
„Hann sagði best að klæðast því
sem manni líður vel í. Þá skipti
ekki máli hver hönnuðurinn væri
heldur að flíkin lyfti upp persónu-
leika manns,“ segir Bjarni.
Hann minnist fyrstu sýningu
sinnar í Hafnarborg 2002.
„Þá ákvað ég að vera í hvítum
fötum fyrri part dagsins og
svörtum kvöldklæðnaði seinni
partinn, en fatnaðurinn fór saman
við glerungana mína. Sá hvíti var
eins og hvítur krumpuglerungur
og svörtu fötin eins og svartur og
glansandi satínglerungur. Allt
samkvæmt nýjustu tísku þá og
passaði tilefninu algjörlega.“
Hamingja, gleði og jólaandi
Bjarni opnar sinn rómaðan jóla-
markað á vinnustofu sinni að
Hrauntungu 20 í Hafnarfirði í dag.
„Já, þetta er hátíðisdagur. Ég hélt
jólamarkaðinn fyrst fyrir sextán
árum og var þá með tóman bílskúr,
tvær hillur, keyptar kökur, kók og
appelsín. Ég var staðráðinn í að
gera þetta að einhverju. Margir
komu og ég varð steinhissa, segir
Bjarni fullur tilhlökkunar.
„Ég er nokkuð viss um að þetta
er stærsti einstaklings-jólamark-
aður hér á landi. Hann byrjaði
sem tveggja daga en undanfarin ár
hefur hann staðið yfir í fjóra daga
og með kvöldopnun. Bæði ungir
sem aldnir koma á markaðinn og
mér er mikið í mun að börnin hafi
líka gaman af, enda hef ég heyrt
hjá þeim sem koma með börnin
sín að þau segi: „Vei! Þetta er fyrsti
dagurinn af jólunum, að fara til
Bjarna!“ Andrúmsloftið er þrungið
hamingju, gleði og jólaanda, og
öllum líður vel og finna sitthvað
við hæfi í mat, kökum, drykk og
auðvitað keramikinu líka,“ segir
Bjarni sem dregur líka út einn
heppinn vinningshafa á dag í veg-
legu jólamarkaðshappdrætti sem
hann kallar Keramik í kassa.
„Börnin fá líka glaðning frá
mér og það skemmtilegasta er að
krakkar sem komu hingað lítil
fyrir sextán árum eru nú orðin
fullorðið fólk að kaupa sér muni
í búið eða herbergið sitt. Mér
þykir undurvænt um að sjá þessa
einstaklinga koma aftur og aftur
og eiga þessa jólahefð með mér.
Minningin á alltaf að vera góð og
falleg.“
Bakar frekar fram á nótt
Á jólamarkaði Bjarna svigna
borðin af dýrindis keramikhönn-
un í bland við lostætar hnallþórur
og heimagerðar veitingar.
„Margir vina minna segja að ég
ætti að einfalda málið og kaupa
tilbúnar smákökur eða deig til
að baka úr en það kemur ekki
til greina. Frekar baka ég fram á
nætur svo að nóg sé til fyrir mína
gesti. Það verður að vera heima-
bakað og nú býð ég líka upp á
marengstertur. Ég byrjaði að baka
margens að gamni mínu fyrir
nokkrum árum og þær áttu alls
ekki að verða fastur liður en það
er svolítið hættulegt að koma með
nýjar hefðir því þær vilja oftast
halda sér í jólahlýjunni á vinnu-
stofunni.“
Í dag er bílskúrinn sem hýsti
fyrstu jólamarkaði Bjarna farinn
og í staðinn risin 90 fermetra
viðbygging sem er vinnustofa lista-
mannsins, opin, hlý og björt.
„Þegar maður heldur jólamarkað
í sextánda sinn þýðir ekkert annað
en að vera með nýja hönnun og
í ár er þar engin undantekning.
Reyndar er svo margt nýtt að sumt
af eldri munum mínum hefur þurft
að víkja. En það nýja getur líka
verið það gamla í nýjum búningi,
eins og eldfjöllin og margfætlurnar
sem ég framleiði sérstaklega fyrir
jólamarkaðinn en eru hönnun
sem ég gerði í námi mínu 1988. Þá
má nefna nýja kertastjaka, vasa og
skálar, og margir koma til að fylla
á stellin sín og það sem þeir eiga
fyrir,“ greinir Bjarni frá.
Sjálfur hrífst hann af keramik-
verkum Claudi Casanovas.
„Þau eru hrein og bein náttúran,
og það er einmitt það sem ég hrífst
mest af í eigin verkum, þegar ég næ
að gera glerunga sem líkjast nátt-
úrunni sem mest. Oft og tíðum er
það erfitt en þegar það lukkast er
mikil gleði og hamingja.“
Jólamarkaður Bjarna í Hraun-
tungu 20, Hafnarfirði, er opinn
fimmtudag til sunnudags frá
klukkan 10 til 18. Allir vel-
komnir. n
Á yfir hundrað skópör og er hvergi hættur
Keramikmunir Bjarna eru eftirsóttir víða um heim. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Bjarni er flottur í tauinu og segir litavalið oft endurspegla listmuni sína.
4 kynningarblað A L LT 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR