Fréttablaðið - 17.11.2022, Side 25
KYNN INGARBLAÐ
FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2022
Hrein orka
Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdarstjóri N1, og starfsfólk Orkusviðs N1 sem hefur umsjón með sölu raforku og rafhleðslulausna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Úr olíufélagi í framsýnt orkufélag
Fimmtungur allrar orku sem N1 selur er umhverfisvæn orka og mun hlutfallið hækka hratt á komandi árum.
N1 er því í kjörstöðu til að flýta orkuskiptum á Íslandi og er í raun rétt að byrja á þeirri vegferð sinni. 2
Á örfáum árum hefur starfsemi N1
tekið gríðarlegum stakkaskiptum.
Fyrirtækið hefur færst hratt úr því
að vera olíufélag og er réttara að
tala um N1 sem „orkufélag“ í dag.
Nú er svo komið að fimmtungur
allrar orku sem félagið selur er
umhverfisvæn orka og telur Hinrik
Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri
N1, að hlutfallið eigi eftir að hækka
hratt á komandi árum. Í stað þess
að berjast gegn þróuninni og ein-
blína áfram á sölu jarðefnaelds-
neytis, sem hefur verið aðalsmerki
fyrirtækisins frá upphafi, hefur N1
ýtt undir þróunina og er nú orðið
leiðandi í orkuskiptum á sínum
markaði.
Segja má að grænu umskipti
N1 hafi byrjað af alvöru árið 2019
þegar fyrirtækið festi kaup á Hlöðu
og 15% hlut í Íslenskri orkumiðlun.
Hinrik sagði á þeim tíma að mark-
miðið með kaupunum væri ekki síst
að N1 yrði leiðandi í orkuskiptum á
Íslandi. „Við skynjum þessa þróun
sem er að eiga sér stað með auknum
fjölda rafbíla og þá kröfu frá mark-
aðnum að einhver taki forystuhlut-
verkið. Markmið okkar er því að
halda áfram að þjónusta viðskipta-
vini sama hvaða tegund af orku þeir
kjósa fyrir bílinn sinn,“ sagði Hinrik.
Óhætt er að segja að nú, aðeins
þremur árum síðar, sé þessi sýn
strax orðin að veruleika. Með
kaupum á öllum hlutum í Íslenskri
orkumiðlun, sem síðar varð N1 raf-
magn, hefur starfsemi fyrirtækisins
umbreyst til grænni vegar. Ekki
aðeins voru um 20% af allri orku
sem N1 seldi í fyrra umhverfisvæn
heldur þjónustar fyrirtækið vel yfir
20 þúsund viðskiptavini í reglu-
legum raforkuviðskiptum; eins
og heimili, fyrirtæki, stofnanir og
sveitarfélög. Það er því óhætt að tala
um N1 sem eiginlegt orkufélag í dag
og segir Hinrik að þau séu aðeins rétt
að byrja.