Fréttablaðið - 17.11.2022, Qupperneq 26
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kolbeinn@frettabladid.is, s. 550 5656.
Hinrik Örn Bjarnason (t.v.), framkvæmdastjóri N1, og Einar Sigursteinn Bergþórsson, forstöðumaður orkusviðs N1. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fólk treysti á N1 á ferðalögum
N1 sé þannig í kjörstöðu til að flýta
orkuskiptum á Íslandi. „Við erum
með þrjátíu þjónustustöðvar um
allt land og erum að vinna í því að
koma upp öf lugum hraðhleðslu-
stöðvum við lykilstaðsetningar
félagsins. Markmið okkar er að fólk
sjái það sem raunhæfan valkost að
keyra hringinn í kringum landið á
rafmagni. Fyrir vikið munu f leiri
treysta sér í að færa sig úr jarðefna-
eldsneyti,“ segir Hinrik.
Eftirspurnin eftir rafmagni N1
hafi nú þegar aukist gríðarlega. „Við
finnum hvað það er að verða mikil
þörf á þessum innviðum enda hefur
rafbílum fjölgað mikið. Við finnum
líka að fólk er farið að treysta meira
og meira á N1 á ferðalögum sínum
í kringum landið, ekki síður en
heimahleðslustöðvarnar okkar.“
Hinrik segir að það sé engum
blöðum um það að f letta að inn-
koma N1 rafmagns hafi haft góð
áhrif á markaðinn. „Það er alveg
ljóst að N1 rafmagn hreyfði við
öðrum raforkufyrirtækjum, ekki
aðeins þegar kom að því að bæta
þjónustuna heldur einnig að lækka
verðið til heimila. Það sýnir sig best
á því að N1 rafmagn er með umtals-
vert lægra verð en þau fyrirtæki sem
voru nú þegar á markaðnum áður
en við mættum á svæðið.“
Eina rökrétta leiðin
Maður myndi samt halda að það
væri eðlilegra fyrir olíufélag að
berjast gegn þessari þróun og halda
áfram að leggja alla áherslu á bensín
og dísil.
Hafið þið ekki beinlínis verið að
grafa undan kjarnastarfsemi fyrir-
tækisins með þessari þróun?
„Þessi breyting hefur gengið alveg
ótrúlega vel enda finnum við öll að
græna vegferðin er eina rökrétta
leiðin áfram. Við gerum ráð fyrir
því að sala á umhverfisvænum
orkugjöfum verði ein af aðaltekju-
stoðum fyrirtækisins innan örfárra
ára og því höfum við unnið mark-
visst að því að styrkja þennan hluta
starfseminnar,“ segir Hinrik. Hann
bætir við að gríðarlegur áhugi sé
meðal fyrirtækja, ekki síst í þunga-
Þannig að
við sjáum
fyrir okkur
að upp-
bygging
reksturs-
ins og
þjónustu-
stöðva
okkar
muni
tengjast
orku-
skiptum
– sama
hver orku-
gjafinn
verður.
Hinrik Örn
Bjarnason
Markmið
okkar er að
fólk sjái
það sem
raunhæfan
valkost að
keyra
hringinn í
kringum
landið á
rafmagni.
Hinrik Örn
Bjarnason
og fólksf lutningum, að ráðast í
orkuskipti og hefur N1 veitt fjöl-
mörgum fyrirtækjum ráðgjöf og
aðstoð í þeim efnum á síðustu árum.
„Þetta er einfaldlega samtalið
sem allir stærri olíunotendur eru
að taka þessa dagana. Spurningin
er einfaldlega hvernig – ekki hvort
– þeir skipti yfir í umhverfis-
vænni orkugjafa og um leið lág-
marka losun og eldsneytiskostnað
til lengri tíma litið. N1 býr að því
núna að hafa byrjað þessa vegferð
snemma enda höfum við öðlast
mikla þekkingu og reynslu á þessu
sviði. Það eru því forréttindi að
vera í þeirri aðstöðu að geta veitt
þjónustu og ráðgjöf um orkuskipti
og hvernig við aðstoðum fólk og
fyrirtæki að stíga grænu skrefin.“
Græna framtíðin fjölbreytt
Hinrik segir N1 spennt fyrir fram-
tíðinni. „Við vinnum eftir þeirri
hugsjón að gera ekki hlutina alltaf
á gamla mátann. Við erum að huga
að framtíðinni, stefnum á aukna
sjálfvirkni og aukinn sveigjanleika
fyrir viðskiptavini okkar.“
Raforkuverð muni í auknum
mæli ráðast af því hvenær notkunin
á sér stað, auk þess sem fólk mun
geta nálgast alla þjónustu félagsins
í N1-appinu.
„Í dag geturðu séð hvaða raf-
hleðslustöðvar eru lausar á ferð
þinni um landið, hafið hleðslu með
appinu ásamt því að panta tíma
í dekkja- eða olíuskipti. Fljótlega
verður hægt að panta mat á þjón-
ustustöðinni áður en þú rennur í
hlað og panta alla aðra þjónustu
N1 í gegnum appið, þannig að þetta
verður allt við höndina.“
Hinrik segir ólíklegt að öll farar-
tæki verði keyrð á rafmagni í fram-
tíðinni og því þurfi að gera ráð fyrir
öðru umhverfisvænu eldsneyti, eins
og til dæmis vetni, ekki síst fyrir
stærri farartæki. „Við sjáum fyrir
okkur að uppbygging rekstursins og
þjónustustöðva okkar muni tengjast
orkuskiptum – sama hver orkugjaf-
inn verður. Jarðefnaeldsneytið á eftir
að verða til staðar í töluverðan tíma
og því verður þetta einhver blanda
næstu árin. Við hjá N1 ætlum alla
vega að halda áfram að hraða þess-
ari þróun í átt að grænni, umhverfis-
vænni og betri framtíð fyrir okkur
öll,“ segir Hinrik. n
Tvær af hleðslustöðvunum eru staðsettar við Lindir í Kópavogi og N1 í Mosfellsbæ. MYNDIR/N1
2 kynningarblað 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURHREIN ORK A