Fréttablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 27
Vel
er
fylgst með
öllum
umhverfis-
þáttum í
álverinu
auk þess
sem sér-
stök
umhverfis-
vöktun fer
fram í
nágrenni
Straums-
víkur.
Sigríður
Álverið í Straumsvík
leggur mikla áherslu á að
bæta frammistöðu sína í
umhverfismálum. Stefnt
er að kolefnishlutleysi fyrir
árið 2040. Fyrirtæki og
starfsfólk er meðvitað um
umhverfismál og mikilvægi
þess fyrir starfsemina.
Sigríður Guðmundsdóttir, sérfræð-
ingur í kolefnisjöfnun, og Eiríkur
Þórir Baldursson, sérfræðingur
umhverfismála og rannsóknar-
stofu, vinna bæði að umhverfis-
og loftslagsmálum. Eiríkur er í
umhverfisteyminu sem ber ábyrgð
á að álverið uppfylli allar þær
ströngu kröfur sem gerðar eru í
umhverfismálum, meðal annars
að sinna mælingum og eftir-
liti ásamt því að tryggja að allar
deildir séu á tánum að standa sig í
þessum málum. Eiríkur vann áður
hjá Umhverfisstofnun en hann er
efnafræðingur að mennt.
Starf Sigríðar sem sérfræðings í
kolefnisjöfnun var búið til í mars á
þessu ári í þeim tilgangi að styðja
við markmið um kolefnishlutleysi.
Hún hafði áður starfað í kerskála
í sjö ár. Sigríður segir að ISAL geti
orðið fyrsta álverið í heiminum
til að fanga og binda hluta af
útblæstri koltvísýrings frá starf-
seminni. Samstarf er við Carbfix
en liður í því markmiði er að fanga
koltvísýring frá álverinu og binda
varanlega í steindir á svæðinu í
Straumsvík. Það yrðu tímamót í
áliðnaði ef það markmið næst.
Fylgja ströngum kröfum
Vel er fylgst með öllum umhverfis-
þáttum í álverinu auk þess sem
sérstök umhverfisvöktun fer fram
í nágrenni Straumsvíkur og hefur
verið í gangi frá því áður en starf-
semin hófst árið 1969. Árangurinn
hefur verið mjög góður, að sögn
Sigríðar. „Við þurfum að fylgja
eftir umhverfiskröfum stjórnvalda
og Umhverfisstofnunar sem eru
mörkuð í starfsleyfi okkar. Það
eru ákveðin útblástursviðmið sem
álverið þarf að fylgja varðandi
flúor og ryk í útblæstri frá ker-
skálum. Við störfum eftir ETS-
kerfinu og þurfum að fá heimildir
fyrir öllum koltvísýringi sem við
losum. Annars vegar erum við með
fríheimildir og hins vegar erum við
að borga fyrir það sem er umfram,“
útskýrir Eiríkur. „Við ætlum ekki
eingöngu að standast þær kröfur
sem gerðar eru heldur gera enn
betur. Það er hluti af því að vera
framúrskarandi og starfa í sátt við
umhverfi og samfélag,“ segir hann
enn fremur.
Sigríður bætir við að álverin á
Íslandi séu almennt umhverfis-
vænni en þau sem eru starfandi
víða annars staðar í heiminum,
einkum í Kína. „Við notum græna
raforku sem ekki allir hafa aðgang
að. Mjög stór þáttur í losun álvera
fer eftir því hvaðan raforkan
kemur. Bara það að vera á Íslandi
gerir okkur umhverfisvænni,“ segir
hún. „ISAL hefur alltaf lagt mikið
upp úr því að vera umhverfis-
vænt fyrirtæki. Vel er haldið utan
um allan úrgang frá álverinu og
reynum við eins og kostur er að
draga úr myndun hans,“ segir hún.
Skipta yfir í rafknúin tæki
ISAL hefur einsett sér að vinna
í samræmi við heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna um sjálf-
bæra þróun. „Þau eru leiðarstef í
okkar áherslum og tökum við mið
af þeim við rekstur fyrirtækisins.
Starfsemi ISAL tengist öllum
heimsmarkmiðum en greining
okkar bendir til við höfum mest
áhrif á sjö þeirra. Vegferð okkar
til kolefnisjöfnunar byrjaði fyrir
nokkrum árum og stórt skref
var stigið þegar viljayfirlýsingin
Í sátt við umhverfi og samfélag
Sigríður
Guðmunds-
dóttir og Eiríkur
Þórir Baldursson
starfa bæði að
því að gera ál-
verið í Straums-
vík umhverfis-
vænt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Ál frá ISAL á leið beint til viðskiptavina.Stóra verkefnið fram undan er að fanga koltvísýring frá framleiðslunni.
var undirrituð milli stjórnvalda,
iðnaðarins, Orkuveitunnar og
Carbfix árið 2019 um að kanna til
hlítar möguleika á að fanga losun
frá áliðnaði og farga með tækni-
lausn Carbfix.
Rúmlega 95% af kolefnislosun
koma frá kerskálunum. Þar er
stórt og viðamikið verkefni fram
undan að þróa tæknilausn til að
fanga koltvísýringinn frá starfsemi
okkar. Við erum í mikilli vinnu
núna við að finna þá tækni sem við
teljum að beri sem mestan árang-
ur. Þróunarsamband við Carbfix
er hafið og vonandi verðum við
komin í tilraunir á næstu tveimur
árum. Það er gríðarlegt sóknarfæri
fyrir okkur að fá Carbfix hér við
hliðina á okkur. Við þurfum að
fanga koltvísýringinn úr gasinu og
það verður mjög jákvætt þegar við
höfum náð að farga þessum efnum
á umhverfisvænan hátt. Virkilega
spennandi verkefni,“ segir Sigríður.
„Meðal þess sem gert hefur verið
er að leggja áherslu á að kaupa
rafknúin tæki á undanförnum
árum séu þau í boði. Einnig erum
við hálfnuð í stóru verkefni að
betrumbæta hjá okkur steypuskál-
ann með því að fá umhverfisvænni
ofna. Starfsemi okkar byggir
mikið á notkun þungra vinnu-
véla sem eru sérhönnuð fyrir ISAL
og fram undan er þróunarsam-
starf með fyrirtæki sem smíðar
þá rafknúna sem sömuleiðis er
stórt verkefni sem getur haft
mikil áhrif á minnkandi losun.
Önnur umhverfisverkefni eru í
fullum gangi enda viljum við alltaf
velja umhverfisvænasta kostinn.
Áherslan er mikil hér innanhúss
en hún kemur líka frá umhverfinu
og móðurfélaginu Rio Tinto. Þetta
er líka ákall samtímans og við
verðum að gera það sem við getum
til að svara því,“ segir Sigríður.
Hægt að endurvinna margoft
Ál er endurvinnanlegt og hægt að
nýta það margoft. „Það er hægt
fyrir brotabrot af orkunni sem
krafist er við upprunalegu fram-
leiðsluna sem eykur enn á sjálf-
bærni málmsins,“ skýtur Eiríkur
inn í umræðuna. „Við erum eina
álverið á Íslandi sem framleiðir
fullunna vöru. Varan frá ISAL fer
ekki til umbræðslu heldur beint
í framleiðslu á vörum eins og til
dæmis í bílaiðnaðinn auk þess
sem byggingariðnaður er mjög
stór,“ útskýrir Sigríður og bætir við
að notkun á áli sé mikilvæg til að
draga úr losun, til dæmis með því
að létta bíla og önnur fartæki.
„Það er hagur okkar viðskipta-
vina að álið sé framleitt á sem
umhverfisvænastan hátt og
gildir það fyrir alla virðiskeðjuna.
Það er í rauninni orðin krafa að
umhverfis sé gætt og hinn almenni
neytandi er í vaxandi mæli að
verða meðvitaður um kolefnisfót-
spor sinnar neyslu,“ segir Sigríður
og Eiríkur bætir við: „Við erum í
sterkri stöðu hvað þetta varðar
því starfsemi okkar og afurðir
standast ítrustu kröfur sem birtist
í þeim vottunum sem við erum
með. Þær vottanir ná til umhverfis,
öryggis, heilbrigðis, gæða, stjórn-
unar, mannréttinda og samfélags
auk jafnlaunavottunar. Sá sem
kaupir vöruna getur verið viss um
að hún standist þessar kröfur. Við
erum stolt af því að standast þær.“
Heildarlosun minnkað mikið
Heildarlosun ISAL hefur dregist
saman um 46% frá árinu 1990 á
meðan framleiðslan hefur rúm-
lega tvöfaldast. „Þarna koma inn
miklar tækninýjungar, tölvu-
stýring í kerskálum og betri nýting
á skautum. Aukabruninn hefur
minnkað umtalsvert. Álverið er
því komið á flottan stað þótt alltaf
sé hægt að gera betur,“ bætir Sig-
ríður við.
„Hæfni starfsfólks skiptir líka
miklu máli í þessu samhengi en
með stofnun Stóriðjuskólans árið
1998 og áherslu á menntun hefur
árangur í rekstri og umhverfis-
málum batnað. Þekkingin skiptir
meginmáli og að starfsfólkið sé
meðvitað um það hvernig ker-
reksturinn gengur og allir vinna
sem ein heild að því að draga úr
losun,“ segir Eiríkur.
„Á hverju ári gefum við út ítar-
lega samfélagsskýrslu og grænt
bókhald. Þar leggjum við öll spilin
á borðið en gagnsæi í okkar starf-
semi skiptir miklu máli til að ná
fram markmiðum um að starfa
í sátt við umhverfi og samfélag.
Hægt er að skoða skýrsluna hjá
Umhverfisstofnun og á heimasíðu
álversins,“ segir Eiríkur. n
Þekkingin skiptir
meginmáli og að
starfsfólkið sé meðvitað
um það hvernig ker-
reksturinn gengur og
allir vinna sem ein heild
að því að draga úr losun.
Eiríkur Þórir
kynningarblað 3FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2022 HREIN ORK A