Fréttablaðið - 17.11.2022, Page 30
Grænvangur styður við
útflutning á grænum lausn-
um sem og þeirri sérþekk-
ingu og reynslu sem við
Íslendingar búum að þegar
kemur að endurnýjanlegum
orkugjöfum, jarðvarma og
vatnsafli.
Grænvangur var stofnaður árið
2019 og er samstarfsvettvangur
atvinnulífs og stjórnvalda í lofts-
lagsmálum og grænum lausnum.
Nótt Thorberg, forstöðumaður
Grænvangs, ræðir hér um erlent
markaðsstarf Green by Iceland,
á hvaða hátt Íslendingar standa
framar öðrum þjóðum við nýtingu
endurnýjanlegra orkugjafa og
segir full orkuskipti hérlendis
stærsta tækifærið.
„Þegar kemur að hlutverki
innanlands þá erum við að styðja
við loftslagsvegferð Íslands og
markmið stjórnvalda um að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda
hérna heima og í samræmi við
alþjóðlegar skuldbindingar okkar,“
segir Nótt Thorberg, forstöðumað-
ur Grænvangs. „Alþingi lögfesti í
fyrra að Ísland yrði kolefnishlut-
laust árið 2040. Ríkisstjórnin hefur
líka sett sér metnaðarfull mark-
mið um að Ísland verði fyrst landa
kolefnishlutlaust sama ár. Við
styðjum við og hvetjum íslenskt
atvinnulíf ásamt því að tengja
saman ólíka aðila með því mark-
miði að raunverulegur árangur
náist í því að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda hérna
heima sem fyrst. Við vinnum mjög
náið með atvinnulífinu og stjórn-
völdum í að styrkja þessa vegferð
en það er mikilvægt að við sláum
taktinn vel í sameiningu og þetta
næst með öflugu samtali og sam-
starfi þvert á allar greinar og með
stjórnvöldum. Þá erum við líka að
horfa út fyrir landsteinana.“
Erlent markaðsstarf
Grænvangur styður við útflutning
á grænum lausnum, sérþekkingu
og reynslu sem við Íslendingar
búum að þegar kemur að endur-
nýjanlegum orkugjöfum, jarð-
varma og vatnsafli. „Við gerum
það undir merkjum Green by
Iceland sem er samstarfsverkefni
Grænvangs og Íslandsstofu. Við
vinnum það starf í mjög miklu og
nánu samráði við aðra aðila, meðal
annars Orkuklasann, fyrirtæki
á Íslandi sem eru með grænar
lausnir, ráðuneytin og sendiráð
víða um lönd. Þannig að starfið
er mjög fjölbreytt hvað varðar
þennan erlenda hluta. Við sækjum
sýningar og ráðstefnur, við tökum
þátt í opinberum sendinefndum
og tökum þá oft fyrirtækin með
okkur í þær heimsóknir. Við erum
líka í markvissu markaðsstarfi í
netheimum og almannatengslum
þannig að með öllu þessu erum við
að styðja mjög þétt við orðspor og
ímynd Íslands sem leiðandi lands á
sviði sjálfbærni og grænna lausna.“
Komin lengra í orkuskiptunum
„Fáar þjóðir í heiminum geta stært
sig af því að 100% rafmagns og
húshitunar séu komin af endur-
nýjanlegum orkugjöfum sem við
erum búin að vera að nýta í rúm
100 ár. Þessi saga skiptir máli í
þeirri umræðu sem á sér stað núna
úti um allan heim. Við vitum að
þjóðir heimsins eru að hjálpast að
við að reyna að leysa úr vandanum
og draga úr sinni losun. Þarna
erum við bara með svo frábæra
sögu, þekkingu og reynslu sem við
getum miðlað til annarra þjóða.“
Nótt segir að ef horft sé á lönd
heimsins þá séum við komin hvað
lengst í orkuskiptunum. 85% af
frumorkunotkun okkar í dag komi
af sjálfbærum, endurnýjanlegum
orkugjöfum. „Ef maður horfir á
frumorkunotkunina okkar hérna
heima þá þykir vera einstakt
hversu stórt hlutfall af frumorku-
notkun okkar kemur af jarðvarm-
anum eða 60%. Svo fara um 25% í
rafmagnsframleiðslu fyrir heimili,
atvinnugreinar og orkusækinn
iðnað til útflutnings. Við búum
við miklu meira öryggi en flestar
aðrar þjóðir sem og stöðugleika
þó að staðan nú sé snúin út um
allan heim. Öll þessi nýsköpun og
fjárfestingar sem áttu sér stað fyrir
einhverjum árum með tilliti til
nýtingar á jarðvarma og vatnsafli
hefur skilað okkur meira orkusam-
starfi, orkuöryggi og hellingi af
nýjum atvinnutækifærum.“
Gríðarstórt verkefni
Þó svo að Íslendingar hafi hátt
hlutfall af endurnýjanlegum orku-
gjöfum segir Nótt að við megum
ekki sofna á verðinum. „Við ætlum
að halda áfram og taka núna loka-
hnykkinn má segja. Stóra verk-
efnið er að klára full orkuskipti. Og
samhliða því að draga jafnframt
úr annarri losun gróðurhúsaloft-
tegunda sem er að verða á Íslandi
og finna leiðir til að farga þeim á
vistvænan máta. Við erum þá að
horfa til þess að það verði full orku-
skipti á næstu 17 árum á landi, sjó
og í flugi. Og það er stóra verkefnið
okkar. Þannig að tækifærið felst
raunverulega í að skipta út öllu
jarðefnaeldsneyti sem við erum að
flytja inn til landsins út fyrir sjálf-
bæran, innlendan orkugjafa. Þetta
þarf allt að hafast á næstu tveimur
áratugum og er gríðarstórt verkefni
sem við ætlum að taka föstum
tökum. Það er alveg ljóst að við
munum þurfa að afla meiri orku til
þess að skipta út þessum rúmlega
milljón tonnum af jarðefnaelds-
neyti sem við erum að flytja inn
árlega. Þá er líka mikilvægt að
horfa til þess hvernig við getum
sparað orkuna og nýtt hana betur.
Það verður engin ein leið fram á við
sem mun koma okkur á leiðarenda
heldur verða þetta margar ólíkar
tæknilausnir og breytt nálgun.
Hér á landi er rafvæðing minni
bíla komin vel á veg, þar erum
við í öðru sæti í heiminum á eftir
Norðmönnum. Nú er fyrsti fasi
orkuskipta vöruflutningabifreiða
og vinnutækja að hefjast. Þar
verða ólíkir orkugjafar nýttir, bæði
rafmagn og rafeldsneyti á borð
við vetni. Á sjó gætu metanól og
ammoníak spilað stóra rullu þó
erfitt sé að spá fyrir um nákvæm-
lega hvaða leiðir verða farnar. Í
f luginu stefnir Icelandair að því að
knýja innanlandsvélar sínar með
rafmagni eða vetni fyrir árið 2030
en í millilandaflugi verður líklega
horft til vetnis og sjálfbærs flug-
vélaeldsneytis. Það er því fullt að
gerast sem vekur von í brjósti.
Lykillinn að því að orkuskiptin
geti átt sér stað er þó ekki eingöngu
nýsköpun, réttir hvatar og fjár-
festingar, val á tækni og innleiðing
og innviðauppbygging, heldur
þarf líka að svara þeirri spurningu
hvaðan orkan eigi að koma. Þá
er nauðsynlegt að taka tillit til
umhverfisins og ná samfélags-
legri sátt um leiðirnar Sé horft til
rammaáætlunar og áforma fram
undan munu jarðvarma- og vatns-
aflsvirkjanir áfram vera mikil-
vægar en fleiri orkugjafar munu
koma til og má þar nefna vindafl
og sól auk þess sem smávirkjanir
gætu verið áhugaverður valkostur.“
Höldum ótrauð áfram
Nótt segir að í næstu skrefum verði
áherslan á að styðja við atvinnu-
lífið í þeirri vinnu sem er fram
undan. Í fyrra var gefinn út Lofts-
lagsvegvísir atvinnulífsins þar sem
hver atvinnugrein gerði grein fyrir
stöðunni og helstu tækifærum
og áskorunum í átt að kolefnis-
hlutausu Íslandi. Grænvangur sá
um samþættingu þessarar vinnu
og útgáfan var fyrsta skrefið í að
ná utan um heildarstöðuna þvert á
atvinnugreinar. Næsta skref verður
að draga betur fram einstaka geira
og tengja þá enn frekar við mark-
mið og aðgerðaáætlun stjórnvalda.
„Með samstilltu átaki og öflugu
samstarfi ætlum við að leggja kapp
á að hraða allri vinnu til að Ísland
nái markmiðum sínum. Við getum
spilað stórt hlutverk í loftslagsveg-
ferðinni og verið fyrirmynd ann-
arra hvað framtíðina varðar Í átt
að kolefnishlutlausu Íslandi.“ n
Full orkuskipti hérlendis stærsta tækifærið
Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, segir að fáar þjóðir í heiminum geti stært sig af því að 100% rafmagns og húshitunar séu komin af endurnýjan-
legum orkugjöfum sem við erum búin að vera að nýta í rúm 100 ár. MYNDIR/AÐSENDAR
Tækifærið felst í að skipta út öllu jarðefnaeldsneyti sem flutt er til landsins
út fyrir sjálfbæran, innlendan orkugjafa, að sögn Nóttar.
Í fyrra var gefinn út
Loftslagsvegvísir
atvinnulífsins þar sem
hver atvinnugrein gerði
grein fyrir stöðunni og
helstu tækifærum og
áskorunum í átt að
kolefnishlutlausu
Íslandi.
Þegar kemur að
hlutverki innan-
lands þá erum við að
styðja við loftslagsveg-
ferð Íslands og markmið
stjórnvalda um að draga
úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda hérna heima og
í samræmi við alþjóð-
legar skuldbindingar
okkar.
Nótt Thorberg
6 kynningarblað 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURHREIN ORK A