Fréttablaðið - 17.11.2022, Side 31
Hitaveiturnar hafa
þannig sparað
Íslandi gríðarlega fjár-
muni og hafa um leið
minnkað kolefnisfót-
spor okkar umtalsvert.
Steinþór Níelsson
Markmið ÍSOR er að vera
leiðandi á heimsvísu í
ráðgjöf á sviði sjálfbærrar
nýtingar jarðhita og þannig
styðja við stefnu og áherslu
Íslands í umhverfis-, auð-
linda- og orkumálum.
„Jarðrænar auðlindir eru nánast
allt sem jörðin geymir og okkar
markmið er að vera leiðandi á
heimsvísu í ráðgjöf á sviðum eins
og til dæmis jarðhita, grunnvatns,
vatnsorku og ýmissa jarðefna,
okkar markmið er að vera leiðandi
á heimsvísu í ráðgjöf á því sviði,“
segir Steinþór Níelsson, jarð-
fræðingur og sviðsstjóri nýtingar
hjá ÍSOR.
„Meginstarfsemi ÍSOR er að veita
þjónustu og ráðgjöf í tengslum við
jarðhita, en þó einnig á ýmsum
öðrum sviðum. Innan okkar raða
er mjög hæft fólk á sviði jarðvís-
inda, efnafræði og verkfræði. Við
búum einnig yfir ýmsum mjög
sérhæfðum tækjabúnaði. Við
nýtum okkur þekkingu á jarðfræði
Íslands fyrst og fremst til þess leita
að og finna jarðhita bæði til raf-
orkuframleiðslu og húshitunar en
einnig í ýmsa aðra beina notkun,
líkt og vatn í heita potta, sund-
laugar, ylrækt og alls konar iðnað.
Við notum sömu aðferðafræði til
að leita að neysluvatni í kranana
hjá okkur um allt land. Þetta eru
okkar helstu viðfangsefni.“
Útflutningur á þekkingu
á jarðhita hjá ÍSOR
„Við höfum líka stundað aðrar
jarðvísindarannsóknir, svo sem
gullleit, almenna jarðfræðikort-
lagningu, hafsbotnsrannsóknir og
höfum um áratugaskeið flutt út
þekkingu á jarðhita.
Við leggjum áherslu á auð-
lindakortlagning með það í huga
að auka þekkingu á jarðrænum
auðlindum Íslands og þannig
styðja við upplýsta ákvarðana-
töku stjórnvalda um nýtingu
eða friðun en það er mikið starf
óunnið hér á Íslandi. Við viljum að
aðgengi að grænni orku batni með
aukinni fræðslu, bæði til almenn-
ings á Íslandi sem og stuðla að
þjálfun sérfræðinga úti í heimi til
að hraða þróun á grænum orku-
gjöfum á heimsvísu. Þannig viljum
við styðja við sjálfbæra nýtingu
auðlinda og auka orkuöryggi til
framtíðar. Þegar kemur að sjálfri
auðlindanýtingunni stuðlum við
að því að auka skilvirka og hag-
kvæma auðlindanýtingu með því
að leggja til ábyrgðarfulla nýtingu
auðlinda.
Á frumstigum jarðhitarann-
sókna er farið í jarðfræði- og
sprungukortlagningu, sýnatökur
og efnagreiningu á jarðhitavatni
og ýmsar jarðeðlisfræðilegar mæl-
ingar. Þau gögn eru síðan notuð til
þess að staðsetja borholur til að
ná í jarðhitann. Þegar jarðhitinn
er kominn í nýtingu býður ÍSOR
upp á mjög sérhæfða þjónustu
með borholumælingum en ÍSOR á
tæki sem geta mælt gerð jarðlaga
ásamt hitastigi og ástandi jarðhita-
geymisins. Við höfum mælt, allt
frá mjög grunnum (nokkra tuga
metra) leitarholum niður á tæplega
5 kílómetra dýpi þar sem hitinn
getur verið vel yfir 400°C. Þessi
gögn eru nýtt til að meta forða
jarðhitakerfanna og aðstoða orku-
fyrirtæki til að nýta auðlindina á
sem sjálfbærastan hátt.“
Steinþór nefnir einnig að ÍSOR
hefur náð að nýta þá þekkingu
sem byggst hefur upp á Íslandi til
þess að aðstoða aðrar þjóðir við að
byggja upp eigin jarðhitaiðnað.
„ ÍSOR hýsir nú GRÓ-Jarðhita-
skólann (GRÓ-Geothermal Train-
ing Program) sem er eitt helsta
framlag Íslands til þróunarað-
Að auka orkuöryggi til framtíðar
Steinþór Níels-
son, jarðfræð-
ingur og svið-
stjóri nýtingar
hjá ÍSOR.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Jarðfræðingur að störfum við jarð-
fræðikortlagningu.
Sérfræðingar ÍSOR við sýnatöku á jarðhitasvæði.
ÍSOR við mæl-
ingar á streymi
CO2 um jarðlög.
stoðar á þessu sviði . Hingað koma
sérfræðingar frá ýmsum þróunar-
löndum í sex mánaða þjálfun í
jarðhitageiranum. Þannig stuðlum
við að uppgangi jarðhitans í öðrum
löndum og hjálpum þróunar-
ríkjum við að afla orku fyrir
sína þegna og nýta til þess mun
umhverfisvænni kosti en kol, olíu,
gas eða aðra óvistvæna orkugjafa.
Þannig viljum við bæta aðgengi
íbúa Jarðar að grænni orku.“
Áskoranir fram undan
„Það sem er efst á baugi þessi
misserin er að við finnum fyrir því
að eftirspurn eftir heitu vatni á
Íslandi hefur aukist mjög. Notkun
hefur aukist mikið og eru nokkrir
þættir þar ráðandi, til dæmis íbúa-
fjölgun, uppbygging iðnaðar og
aukin umsvif víðs vegar um land
vegna ferðamanna. Einnig hefur
orðið fjölgun baðlóna og smærri
iðnaðar sem nýtir heitt vatn beint
úr jörðu.
Við erum það lánsöm hérlendis
að í orkukrísunni á 7. og 8. áratug
síðustu aldar var gerð gangskör að
því að hitaveituvæða Ísland. Það
var gert, ekki af umhverfisástæð-
um á þeim tímapunkti, heldur var
það talið ódýrara til lengri tíma en
að flytja inn dýra olíu til kynd-
ingar. Hitaveiturnar hafa þannig
sparað Íslandi gríðarlega fjármuni
og hafa um leið minnkað kolefnis-
fótspor okkar umtalsvert. Það er
áætlað að hitaveitan í Reykjavík
spari um 3 milljónir tonna af CO2
árlega en heildarlosun Íslands
er talin vera tæplega 5 milljónir
tonna árlega af CO2. Það eru tæki-
færi til þess að gera betur og til
dæmis hefur olía verið notuð á
Vestfjörðum til þess að kynda upp
bæjarfélögin, tímabundið, þar
sem skortur er á heitu vatni. Þar
eru þó líklega ónýttir möguleikar
í nýtingu jarðhita en leggja þarf
í rannsóknir til þess að finna þá
auðlind. Það eru áskoranir fram
undan í því að halda í þau lífs-
gæði sem jarðhitinn veitir okkur
með því að tryggja skynsamlega
nýtingu og jafnframt finna ný
svæði, en það þarf að hugsa áratugi
fram í tímann, sérstaklega fyrir
stóru byggðakjarnana suðvestan-
lands og á Norðurlandi. Eftirspurn
eftir grænni orku hefur aukist
innanlands og við viljum vera í
stakk búin til að sinna því.
Eins finnum við fyrir aukinni
eftirspurn erlendis frá, bæði í því
að veita ráðgjöf til erlendra aðila
sem vilja nýta jarðhita til raforku-
framleiðslu eða beint eins og til
að mynda spænska olíufélagið
Repsol, sem við erum að vinna
með í að kortleggja jarðhitaauð-
lindina á Kanaríeyjum. Þá erum
við einnig að vinna fyrir indverskt
ríkisolíufyrirtæki að rannsóknum
og jarðhitaborunum í Himalaya-
fjöllunum og að ráðgjafarverk-
efni fyrir ríkisstjórn Tansaníu í
tengslum við rannsóknarboranir.
Á Dóminíku í Karíbahafinu, þar
sem búa um 70 þúsund manns,
erum við í rannsóknum og ráðgjöf
sem snýr að því að virkja jarðhita
á eyjunni og gera hana óháða inn-
flutningi á jarðefnaeldsneyti landi
og þjóð til mikilla hagsbóta og
ekki síður loftslagsmálum til góða.
Okkur þykir vænt um þessi verk-
efni þar sem við sjáum árangurinn
sem felst í að lífskjör fólks batna
með aðgengi að orku, kolefnisfót-
spor landa minnka og við sjáum
beint í verki að verið er að vinna
að heimsmarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna, en það er yfirlýst mark-
mið ÍSOR að styðja við minnkun
kolefnisfótspors heimsins og
hjálpa til við orkuskiptin.“
Styðja heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna
„Íslensk stjórnvöld hafa sett sér
háleit markmið um kolefnishlut-
leysi og aukna notkun grænna
orkugjafa og sjálfbæra nýtingu
auðlinda. Að sögn Steinþórs býr
ÍSOR að þekkingu og reynslu á
ýmsum sviðum, sérstaklega þeim
er varða nýtingu jarðhita- og
grunnvatnsauðlindarinnar.
„Okkar metnaður er að sú
þjónusta og lausnir sem við
bjóðum upp á komi Jörðinni og
íbúum hennar til góða, og skili
hagsæld á þeim svæðum sem við
erum að vinna á. Okkar markmið
er að vera leiðandi í ráðgjöf um
nýtingu jarðrænna auðlinda, sér-
staklega jarðhita, og að sú ráðgjöf
nýtist okkar viðskiptavinum vel
auk þess að styðja áherslur Íslands
í umhverfis-, auðlinda- og orku-
málum hér heima sem og í alþjóð-
legu samstarfi. Þannig viljum við
styðja við heimsmarkmið Sam-
einuðu þjóðanna,“ segir Steinþór
að lokum. n
kynningarblað 7FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2022 HREIN ORK A