Fréttablaðið - 17.11.2022, Síða 38
Klasar eru í eðli
sínu brúarsmiðir.
Þeir vinna þvert á aðila,
byggja brýr á milli ólíkra
aðila og skapa aðstæður
sem styrkja tengsl og
samvinnu sem hraðar
nýsköpun.
Rósbjörg Jónsdóttir
Orkuklasinn er fyrirtækja-
drifinn, þverfaglegur sam-
starfsvettvangur aðila sem
eiga hagsmuni í orkuiðnaði
á Íslandi og hefur verið
starfandi um árabil með það
að leiðarljósi að efla sam-
keppnishæfni greinarinnar.
„Orkuklasinn var formlega
stofnaður í febrúar 2013 og verður
því tíu ára í vetur. Fyrst var farið
af stað sem Jarðvarmaklasi með
áherslu á sérþekkingu Íslendinga
á sviði jarðvarma og fjölnýtingu
hans. Frá 2018 útvíkkaði vett-
vangurinn áherslur sínar með því
að horfa til fjögurra orkustrauma:
jarðvarma, vatnsorku, vinds og
annarra endurnýjanlegra orku-
gjafa ( X-Power),“ segir Rósbjörg
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Orkuklasans.
Orkuklasinn er þverfaglegur
samstarfsvettvangur og nær til
einkaaðila jafnt sem opinberra
aðila og spannar alla virðiskeðju
orkuiðnaðarins.
„Aðildarfélagar Orkuklasans
eru hátt í 50 og koma víðs vegar
að úr keðjunni. Þar á meðal eru
allir orkuframleiðendur lands-
ins, þróunaraðilar, helstu ráð-
gjafarfyrirtæki, vélsmiðjur og
viðhaldsfyrirtæki, lögfræðingar
og endurskoðendur, fjármálafyrir-
tæki, menntastofnanir, opinberir
aðilar, sveitarfélög og f leiri. Þetta
eru lykilaðilar í kröfuhörðum
verkefnum sem samfélagið horfist
í augu við og þarf að finna lausnir
á. Þá vinnur Orkuklasinn með
öðrum atvinnugreinum og klasa-
framtökum, eins og Ferðaklas-
anum og Sjávarklasanum, sem og
öðrum sambærilegum erlendum
klasaframtökum, en þverfaglegt
samstarf er mikilvægt nú á tímum
sem aldrei fyrr,“ segir Rósbjörg.
Byggja brýr á milli ólíkra aðila
Hlutverk og tilgangur Orkuklas-
ans er að efla samkeppnishæfni
íslenskra fyrirtækja og stofnana
á sviði orkuiðnaðar, og efla gagn-
kvæman virðisauka í samfélögum
þar sem félagar hans starfa.
„Klasar eru í eðli sínu brúar-
smiðir. Þeir vinna þvert á aðila,
byggja brýr á milli ólíkra aðila
og skapa aðstæður sem styrkja
tengsl og samvinnu sem hraðar
nýsköpun. Með því nást sam-
eiginleg markmið hraðar en ella.
Í gegnum klasa geta fyrirtæki og
frumkvöðlar sótt og deilt þekk-
ingu sín á milli og eflt starf sitt
með aukinni og markvissari sam-
vinnu,“ upplýsir Rósbjörg.
Hún segir Orkuklasann ein-
blína á þekkingarmiðlun, þekk-
ingaröflun og nýsköpun í sinni
víðustu mynd, sem svo styrki og
efli félaga hans.
„Orkuklasinn stendur að og
sækir viðburði þar sem ávinn-
ingur félaganna er í brennidepli.
Hann er vettvangur sem stendur
fyrir alþjóðlegum viðburðum,
sækir alþjóðlega viðburði, byggir
upp samstarf á milli ólíkra aðila,
innan lands jafnt sem utan og
skapar með því aukin tækifæri
fyrir félaga sína. Þá er mikilvægt
að horfa inn á við og efla félagana
með markvissum hætti og það
gerum við með því að standa
fyrir námskeiðum og þjálfun sem
eflir aðildarfélaga klasans inn á
við og gerir þá enn öflugri úti á
markaðnum.“
Rósbjörg bætir við að áherslur
klasans nýtist öllum, hvar sem
þeir eru staðsettir í virðiskeðjunni
og að allir sem með einum eða
öðrum hætti vinna að orku-
tengdri starfsemi eigi erindi að
borði Orkuklasans.
„Allir eru velkomnir til leiks
enda er mikilvægt að fá sem
flesta að borðinu. Orkuklasinn
hefur verið brautryðjandi í því að
byggja upp „sýningargluggann“
Ísland enda hefur þjóðin skapað
sér sterkt orðspor sem framúr-
skarandi á sviði endurnýjanlegrar
orku og er öðrum samfélögum til
eftirbreytni.
Mikil eftirspurn er eftir
íslenskri sérþekkingu enda er saga
okkar Íslendinga mikilvæg og
getur verið lærdómur fyrir aðra,
ekki síst í dag þegar kröfurnar
aukast með degi hverjum. Sam-
félag okkar væri ekki jafn öflugt
sem raun ber vitni ef ekki hefði
verið fyrir hugrekki, fjárfestingu,
samtal og samvinnu um ábyrga
nýtingu náttúruauðlinda þegar
skórinn kreppti um 1970,“ segir
Rósbjörg og heldur áfram:
„Með öflugu klasasamstarfi
getum við náð hraðar fram þeim
árangri sem til þarf í orku-
skiptum, ábyrgri uppbyggingu og
viðhaldi samfélaga sem við sem
þjóð horfumst í augu við þegar
kemur að loftslagsvánni.“ n
Sjá meira á orkuklasinn.is
Samvinna, nýsköpun og miðlun þekkingar
Rósbjörg Jónsdóttir er framkvæmdastjóri Orkuklasans sem verður tíu ára á nýárinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Rafbílasamband Íslands er
með það að markmiði að
gera sambandið að fjölda-
hreyfingu fyrir hagsmuni
rafbílaeigenda sem og fyrir-
tækja sem vinna að rafbíla-
væðingu Íslands.
gummih@frettabladid.is
Raf bílasamband Íslands var
stofnað árið 2012 og var ætlaðir
stórir hlutir í átt að raf bílavæð-
ingu Íslands. Raf bílasambandið lá
í dvala í nokkur ár en fyrir fjórum
árum var það endurvakið í kjölfar
aðalfundar þar sem ný stjórn var
kosin.
Á heimasíðu Raf bílasam-
bandsins hafa verið tekin saman
góð ráð við hleðslu raf bíla, sem
hefur fjölgað jafnt og þétt á götum
landsins og á bara eftir að fjölga
enn meir á komandi árum.
Ekki hlaða kalda rafhlöðu
Rafhlaðan tekur best við í
kringum 25°C og því er hagkvæm-
ast á Íslandi, þar sem útihitastigið
er sjaldan á því róli, að hlaða í lok
ferðar á meðan rafhlaðan er enn
volg af notkun. Ef rafhlaðan er
köld tekur hún ekki eins hratt við
og ef hún væri við kjörhitastig og
því er betra að hlaða þegar komið
er á áfangastað heldur en áður en
lagt er af stað. Kaldur bíll getur þar
að auki notað þó nokkuð mikið
rafmagn til að hita rafhlöðuna í
upphafi.
Á sumrin er munurinn minni.
Fyrir þá sem eiga þess ekki kost
að hlaða heima hjá sér og nota
hraðhleðslu fyrir daglegan
akstur borgar sig frekar að hlaða
seinnipart dags strax eftir akstur
dagsins til að rafhlaðan sé eins
nálægt kjörhitastigi og hún
verður við slíka notkun. Að hlaða
á morgnana þýðir að rafhlaðan
er hrollköld eftir nóttina og þarf
þá að nota mikið af orkunni til að
hita sig ásamt því að taka illa við.
Eftir því sem rafhlaðan hitnar ætti
hleðsluhraðinn samt að aukast. Ef
hægt er að láta rafhlöðuna hita sig
fyrir hleðslu þá er tilvalið að nota
þann möguleika.
Ekki hlaða nærri fulla rafhlöðu
Rafhlaða með lága stöðu tekur
hraðar við heldur en nærri full.
Það tekur styttri tíma að hlaða
frá 10% upp í 50% heldur en frá
40% upp í 80% og hvað þá úr 60%
í 100%. Því næst meira drægi með
því að stoppa tvisvar á leiðinni og
hlaða í 10 mínútur á hvorum stað
en einu sinni í 20 mínútur. Þumal-
puttareglan er sú að það tekur
álíka langan tíma að hlaða hver
80% af rýmd rafhlöðunnar, það
er að segja, að frá 0-80% taki svip-
aðan tíma og frá 80-96% og álíka
tíma og frá 96%-99%. Þetta gildir
ekki um alla bíla á götunum en
nógu marga til að kallast þumal-
puttaregla.
Ekki leggja of lengi í hraðhleðslu
Þetta tengist liðnum hér að ofan
að því leyti að orkan sem þú færð
á hverri mínútu minnkar eftir því
sem nær dregur fullri hleðslu. Ef
þú þarft að hlaða í meira en 80%
og hefur möguleika á bæði hrað-
hleðslu og hæghleðslu getur verið
gott að hraðhlaða í 70-80% og
skipta þá í hæghleðsluna og gera
eitthvað skemmtilegt á meðan
beðið er eftir síðustu prósentunum
sem þú þarft.
Vegna þess að rafhlaðan tekur
hraðar við í byrjun er alltaf betra
að hraðhlaða fyrst og færa bílinn í
hæghleðslu en ekki öfugt. Þann-
ig hleypirðu líka fleirum að og á
sama tíma spararðu þér einhverjar
krónur. Ef við tökum dæmi um
stæðið við IKEA: Þar eru mörg
hæghleðslustæði og ein hrað-
hleðsla. Sniðugt er að hraðhlaða
upp í 60-70%, færa svo bílinn í
hæghleðslustæði og fara inn til að
versla og/eða borða.
Í lögum Rafbílasambandsins
er tilgangurinn meðal annars
sá að vinna að orkuskiptum í
samgöngum. Vera málsvari lofts-
lagsávinnings sem og þjóðarhag-
kvæmnisjónarmiða sem hlýst af
rafbílavæðingu á Íslandi. Veita
ráðgjöf og rannsóknir til stjórn-
valda til að hraða rafbílavæðingu
hjá almenningi sem og fyrir-
tækjum á Íslandi. Vera málsvari
fyrir innleiðingu rafbíla til að bæta
loftgæði, bæði til að auka loftgæði
nærumhverfis og fyrir minnkun
á útblæstri á gróðurhúsaloftteg-
undum á Íslandi.
Félagsmenn í Rafbílasambandi
Íslands njóta ýmissa fríðinda
en nánari upplýsingar má finna
á heimasíðu þess, rafbilasam-
band. is. n
Hollráð við hleðslu rafbíla
Það þarf að huga að ýmsu þegar hlaða þarf rafbílinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ef rafhlaðan er köld
tekur hún ekki eins
hratt við og ef hún er við
kjörhitastig og því er
betra að hlaða þegar
komið er á áfangastað
heldur en áður en lagt er
af stað.
14 kynningarblað 17. nóvember 2022 FIMMTUDAGURHREIN ORK A