Fréttablaðið - 17.11.2022, Side 39
Öll fyrirtæki, stór
og smá, geta hafið
sína vegferð með því að
fjárfesta í kolefnisjöfnun
og stefnt í átt að kolefnis-
hlutleysi. Þetta er líkast
til eitt af því verðmæt-
asta sem fyrirtæki getur
gert til að taka ábyrgð á
eigin losun, og um leið til
að bæta ímynd sína út á
við.
Aríel Jóhann
Súrefni var stofnað árið 2020
en hóf formlega starfsemi
sumarið 2021. Súrefni býður
upp á vottaðar kolefnisein-
ingar til ábyrgrar kolefnis-
jöfnunar.
Mikil vöntun hefur verið á
vottuðum kolefniseiningum á
Íslandi og hefur aðalmarkmið Súr-
efnis ávallt verið verkefnaþróun
og -stjórn sjálfbærra verkefna sem
geta gefið af sér vottaðar kolefnis-
einingar. Stofnandi Súrefnis er við-
skipta- og tölvunarfræðingurinn
Aríel Jóhann Árnason en Aríel
er útskrifaður frá Háskólanum í
Reykjavík. Hann hefur síðan bætt
við sig sérmenntun frá Cambridge
Judge Business School í hringrásar-
hagkerfinu (e. Circular Economy
and Sustainability Strategies) sam-
hliða stofnun Súrefnis.
Meðeigandi Súrefnis er Egill
Örn Magnússon alþjóðaviðskipta-
fræðingur en með þeim tveimur
vinnur fimm manna teymi af sér-
fræðingum í umhverfisverkfræði,
efnaverkfræði og endurvinnslu
ásamt sérfræðingum í nýsköpun
og markaðssetningu. „Hugmyndin
á bak við Súrefni hefur alltaf verið
að færa kolefnisjöfnun nær neyt-
endum á Íslandi, hvort sem það
eru fyrirtæki eða einstaklingar.
Við viljum gera þessa aðferðafræði
auðskiljanlegri með ýtarlegri upp-
lýsingagjöf og auðveldara aðgengi,“
segir Aríel.
Áherslan á fyrirtækjamarkaðinn
Helsta markmiðið á fyrsta starfs-
ári Súrefnis hefur verið að sinna
fyrirtækjum enda er mesta álagið
á þeim að taka sitt kolefnisspor í
gegn. „Markaðsrannsóknir Súr-
efnis endurspegluðu snemma að
einstaklingar virðast fremur vilja
kaupa kolefnisjafnaða vöru og
þjónustu frá ábyrgum fyrirtækjum
og taka þátt með þeim hætti, frekar
en að taka allan pakkann sjálfir.
Þjónusta Súrefnis hefur þó frá
upphafi verið til staðar fyrir ein-
staklinga, til að reikna út kolefnis-
spor sitt gróflega og draga úr eigin
kolefnisspori með fyrsta verkefni
Súrefnis: Súrefnisskóginum,“ segir
Aríel.
Súrefnisskógurinn
Fyrsti hluti Súrefnisskógarins
var gróðursettur á Suðurlandi
við Markarfljót og Seljalandsfoss
í júlí 2022 og við fyrstu gróður-
setningu var tæplega 29 þúsund
birki- og asparplöntum komið í
jörðu. „Allur Súrefnisskógurinn
kemur til með að standa í það
minnsta í hálfa öld á meðan hann
vinnur sitt þarfa verk að binda
kolefni. Að þeim tíma loknum
verður hluti viðarins nýttur til að
viðhalda jarðbindingu á meðan
afgangi skógarins verður viðhaldið
í áframhaldandi skógrækt.“
Súrefnisskógurinn er unninn í
nánu samstarfi við Skógræktina,
iCert vottunarstofu og fleiri
ábyrga aðila á íslenskum markaði
kolefnisjöfnunar. „Þar ber helst að
nefna að teymi Súrefnis kom að
þróun tækniforskriftar Staðlaráðs
Íslands er varðar ábyrga kolefnis-
jöfnun á Íslandi og fylgir Súrefnis-
skógurinn ásamt öllum verkefnum
undir handleiðslu Súrefnis reglu-
gerð tækniforskriftarinnar um
ábyrga kolefnisjöfnun á Íslandi.
Súrefni vinnur hörðum höndum
að verkefnaþróun nýrra verk-
efna sem koma einnig til með að
binda kolefni eða koma í veg fyrir
losun, og vinnur í nánu sam-
starfi við Verra og Gold Standard
í þróun verkefna sem munu bjóða
íslenskum fyrirtækjum upp á
möguleikann á að draga úr eigin
kolefnisspori með ábyrgum hætti.
Vottaðar kolefniseiningar eru enda
grundvöllurinn fyrir möguleik-
anum á að standa við markmið
Íslands og allra jarðarbúa, sem
komu til vegna Parísarsáttmálans
árið 2015.
Hið viðamikla regluverk
sem fylgir kolefniseiningum út
frá aðferðafræði eins og Gold
Standard, Verra og Skógarkolefni
á Íslandi er eina leiðin til að gera
vottaðar kolefniseiningar að
raunverulega gagnlegu tóli. Einnig
spilar það hlutverk boðleiðar á
milli sjálfbærra verkefna annars
vegar og ábyrgra fjármögnunar-
aðila hins vegar, ásamt fyrirtækj-
unum sem kunna að sjá hag eða
nauðsyn í áreiðanlegri kolefnis-
jöfnun,“ segir Aríel.
Kolefnisjöfnun og -hlutleysi
„Kolefnishlutleysi endurspeglar
jafnvægið sem myndast eftir að
kolefnisjöfnun á sér stað, en sú
jöfnun felst í raun einfaldlega í því
að mæla hversu mikið einstakl-
ingur eða fyrirtæki mengar á einu
ári og bæta upp fyrir þá mengun
árlega með notkun vottaðra kol-
efniseininga.
Í þessu samhengi þarf útreikn-
ingurinn að vera vottaður af
þriðja aðila til að teljast áreiðan-
legur. Einnig þarf jöfnunin að
vera framkvæmd með vottuðum
kolefniseiningum til að geta talist
raunveruleg. Kolefnisjöfnun er
einungis staðhæfð þegar vottuðu
einingarnar hafa raungerst (fremur
en að vera „í bið“ eins og margar
einingar í skógræktarverkefnum
eru).“
Þetta er langhlaup
„Öll fyrirtæki, stór og smá, geta
hafið sína vegferð með því að
fjárfesta í kolefnisjöfnun og stefnt
í átt að kolefnishlutleysi. Þetta er
líkast til eitt af því verðmætasta
sem fyrirtæki getur gert til að taka
ábyrgð á eigin losun, og um leið til
að bæta ímynd sína út á við. Sér-
fræðingar Súrefnis geta aðstoðað
allar tegundir fyrirtækja í þessu
verkefni og eru fyrstu skrefin mun
ódýrari en flestir telja. Vinsælt er
til dæmis að taka fyrir umfang 1
sem er auðveldast og fljótlegast að
reikna út.
Við hjá Súrefni leggjum áherslu
á að kolefnisjöfnun ein og sér er
einungis einn hluti af mikilvægri
keðju hringrásarhagkerfisins. Það
eru fjöldamörg önnur atriði sem
nauðsynlegt er að hafa í huga að
auki ef á að bjarga jarðarbúum frá
loftlagsvánni.
Lykilatriði er að hafa í huga að
þetta er langhlaup, og að hvert
einasta litla skref hjálpar,“ segir
Aríel að lokum. n
Á surefni.is getur þú kannað
möguleikann á kolefnisjöfnun
þinnar starfsemi.
Þú veist ef það er vottað
Til vinstri er Aríel Jóhann Árnason, framkvæmdastjóri og stofnandi Súrefnis. Til hægri er Egill Örn Magnússon, fjármálastjóri og meðeigandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
kynningarblað 15FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2022 HREIN ORK A