Fréttablaðið - 17.11.2022, Síða 45
Heilsa
Heilsuvörur
Húsnæði
Geymsluhúsnæði
WWW.GEYMSLAEITT.IS
Sérgeymslur á mjög góðum
verðum. Frá 2-17 m2. S: 564-6500
GEYMSLUR.IS
SÍMI 555-3464
Geymslur af öllum stærðum. Allt að
20% afsláttur. www.geymslur.is
SMÁAUGLÝSINGAR 21FIMMTUDAGUR 17. nóvember 2022
Breytingar aðalskipulags
Snæfellsbæjar 2015-2031
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann
10. nóvember 2022 að beina breytingu aðalskipulags á tveimur
svæðum í lögboðið ferli í samræmi við 30. gr. skipulagslaga.
Ferlið hefst með opnum kynningarufndi í kaffisal í Röst að
Snæfellsási 2, Hellissandi, miðvikudaginn 23. nóvember
kl. 17:00. Ný deiliksipulög verða einnig kynnt á fundinum og
auglýst samhiliða aðalskipulagsbreytingum.
Breyting aðalskipulags, nýtt deiliskipulag og umhverfismats-
skýrsla í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli.
Aðdragandi breytingar er vaxandi ferðamannastraumur.
Bæta þarf aðstæður við Djúpalónssand, en ekki er svigrúm
á núverandi svæði. Gert er ráð fyrir að bæta Dritvíkurveg
og gera útskot norðanvestan vegar, gera nýtt bílastæði og
þjónustuhús neðan Útnesvegar og biðstæði fyrir rútur ofan
Útnesvegar.
Í aðalskipulagi er afþreyingar- og ferðamannasvæði
AF-U-7 stækkað, var um 70.000 m2 (7 ha) og verður
um 90.000 m2 (9 ha).
Gert er nýtt deiliskipulag af svæðinu og er markmið þess
að útbúa þjónustustað í þjóðgarðinum fyrir ferðamenn þar
sem m.a. er gert ráð fyrir þjónustubyggingu með salernum,
áningarstað, gönguleiðum og bíla- og rútustæðum.
Núverandi þjónustuhús verði fjarlægt.
Breytingin hefur í för með sér að framkvæmdir munu raska
hrauni og er fjallað um móvægisaðgerðir í umhverfismats-
skýrslu.
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull hefur þegar verið stækkaður og
er gerð grein fyrir stækkun hans í breytingu aðalskipulags.
Breyting aðalskipulags, nýtt deiliskipulag og umhverfismats-
skýrsla fyrir Krossavíkurböð, Hellissandi.
Í aðalskipulagi Snæfellsbæjar er gert ráð fyrir vaxandi
ferðamannastraumi. Fyrirhugað er að reisa baðstað ofan við
ströndina við Krossavík vestast á Hellissandi með mis heitum
og köldum pottum.
Einnig verði gerð bílastæði um 250 m austar.
Í aðalskipulagi er mótað nýtt um 2.500 m2 afþreyingar- og
ferðamannasvæði AF-2 fyrir baðstaðinn og gert ráð fyrir um
1.800 m2 svæði fyrir bílastæði.
Gert er nýtt deiliskipulag af svæðinu með eflingu ferða-
þjónustu og afþreyingu íbúa í sveitarfélaginu að markmiði.
Krossavíkurböðin verði sunnan við gróðurkant ofan við fjöruna
og fjöru verði ekki raskað. Sjávar megin (norðan) mannvirkja
verði opið svæði fyrir gangandi umferð meðfram ströndinni
og gengið verði frá stíg sunnan bygginga. Hluti framkvæmda
er innan 50 m frá strandlínu og sækja þarf um undanþágu frá
grein 5.3.2.14 í skipulagsreglugerð.
Í umhverfismatsskýrslu er gerð grein fyrir vetrartalningu fugla
og upplýsingum heimamanna og gróðurfari er lýst í samræmi
við nánari gróðurgreiningu á framkvæmdasvæðum.
Eftir að bæjarstjórn hefur afgreitt aðalskipulagsbreytingar og
Skipulagsstofnun yfirfarið þær, verða tillögur auglýstar í sam-
ræmi við 31. gr. skipulagslaga með 6 vikna athugasemdafresti.
Bæjarstjóri Snæfellsbæjar.
Húsafell - Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna
skipulags
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. nóvember 2022
eftirfarandi tillögur samkvæmt 32. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022, Verslun og þjónusta sunnan
þjóðvegar í Húsafell
Breytingin tekur til landnotkunar á 5,3 ha svæði í landi Húsafells 1
(L176081) og Bæjargils (L221570) þar sem svæðið er skilgreint sem
viðskipta- og þjónustulóð (S12) í stað landbúnaðarsvæðis.
Deiliskipulag Húsafell 1 og Bæjargil
Deiliskipulagið tekur til 5,3 ha verslunar- og þjónustusvæðis (S12) þar sem
skilgreindar eru lóðir undir safn, ferðaþjónustu, verslun og þjónustu,
aðkomu og bílastæði. Aðkoma er um héraðsveg, Húsafellskapelluveg
(nr. 5199).
Tillagan að breytingu aðalskipulags er sett fram í greinargerð, Verslun og
þjónusta sunnan þjóðvegar í Húsafelli – Tillaga að breytingu á
Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 dags. 9. nóvember 2022.
Tillaga að deiliskipulagi er sett fram á uppdrætti og í greinargerð, Húsafell
1 og Bæjargil, dags. 23. ágúst 2022 br. 3. nóvember 2022.
Athugasemdir bárust frá hagsmunaaðilum. Brugðist var við þeim eða þeim
send umsögn.
Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um
lokaafgreiðslu erindisins. Deiliskipulagstillagan hefur verið send
Skipulagsstofnun og mun taka gildi með auglýsingu í B-deild
Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögunar og niðurstöðu
sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- og byggingardeildar
Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, Borgarnesi.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á
www.borgarbyggd.is
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr.
130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til
úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni
tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá
birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
SKIPULAGAUGLÝSING
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Þarftu að ráða starfsmann?
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.