Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 53

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 53
51 LEIÐARVÍSIR fyrir skipbrolsmenn, sem ienda á suðurströnd Islands. Þegar skip strandar á söndunum í Skaftafellssýslu, er tryggast fyrir skips- höfnina að vera um borð eða halda sig við skipið í lengstu lög, reyna ekki að fara í land áður en menn eru komnir frá byggðinni. Hættan á, að skijiið brotni, er mjög lítil, en sandur hleðst fljótt umhverfis skipið, svo að þurrt verður kringum það um fjöru. Komi skipshöfnin að landi á Breiðamerkursandi, skal hún fara heim að bæn- um Kvískerjum, sem er undir fjallinu, beint fyrir sunnan vesturendann á Breiða- merkurjökli. En verði strandið hjá Jökulsá, en þó fyrir vestan hana, mun vanalega vera réttast að stefna á sæluhúsið, sem er rétt hjá jökulröndinni, um 1% sjóm. fyrir vestan upptök Jökulsár. í sæluhúsinu skulu ])eir, sem veikir eru, bíða, á meðan hinir leita hjálpar að Kvískerjum. Ef skipshöfnin lendir á sandinum fyrir austan Jökulsá, á hún að halda í norðaustur til Reynivalla milli jökulsins og sjávar. A svæðinu milli Ölduóss og Knappavallaóss er alltaf hægt að komast að Knappavöllum, undir fjallinu. Bæirnir sjást langt að. Milli Knappavallaóss og Ingólfshöfða og frá Ingólfshöfða vestur Skeiðarársand að Hvalsíki eru leiðarstaurar, sem gefa mönnum leiðbeiningu um, hvaða stefnu skuli taka. Milli stauranna er að jafnaði 1 km. Víða, sérstaklega við alla stærri ósa, eru festir á staurana kassar og eru í þeim geymd kort og leiðbeiningar á íslenzku, dönsku, þýzku, ensku og frakknesku um það, hvernig bezt sé að ná til byggða. Venjulega er ein veruleg ófæra á þessu svæði, en þetta breytist og verður staurum og leiðarmerkjum breytt eftir því, en kortin eru ekki nákvæm og þau er ekki hægt að leiðrétta. Lendi skipshöfnin á sandinum austan við þessa ófæru, verður hún að fara i austur — bíða eftir fjöru við ósana — og reyna að ná tii Ingólfshöfða, en sé komið að landi fyrir vestan skal hatda i vestur að skipbrotsmannahælinu á Kálfa- fellsmelum. Eindregið skal ráðið frá því að leita á Skeiðarársand beint upp til jökulsins, með þvi að þá hljóta menn óumflýjanlega að komast á ófærar slóðir, nema þeir séu nákunnugir staðháttum. Skal farið með ströndinni, annaðhvort til Ingólfshöfða eða Máfabótar. Á Ingólfshöfða er skipbrotsmannahæli sem stendur austan til á höfðanum, all- nærri vitanum. Það er 9,5 x 4,5 m. innanmál. Vegghæðin er 2,2 m., hæð til mænis 3,75 m. Tóftin er hlaðin úr grjóti, en að utan úr grasgrónum sniddum. Þakið er járnklætt. Bending til næstu bæja (t. d. Fagurhólsmýrar) má gera með því að draga flagg, sem er í húsinu, á stöng á framstafni hússins. í húsinu eru ýmsar matvörur og áhöld. Frá höfðanum liggur stikuröð, sem fylgja má til bæja. Hælið á Kálfafellsmelum er úr tré og stendur á 10 m. háum roksandshól um 1 sjóm. frá ströndinni. Húsið sést langt að í logni og björtu veðri, en i dimmviðri sést það trauðla. í því eru rúm handa 14 mönnum, vistir, meðul og umbúðir, verkfæri og smíðaáhöld, tjöld, sleðar, sokkar og vetlingar, ullarpeysur, eldavél og steinolía, eldflugur, 1 rautt og 1 hvítt ljósker, segldúksbátur, áttaviti og uppdráttur af ná- grenninu. Ennfremur er fest upp í húsinu leiðbeiningar handa skipbrotsmönnum, hvernig þeir geti náð hjálp, eða hvernig þeir geti komist til byggða. Veggirnir á hæl-

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.