Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 56

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 56
54 SKRÁ YFIR LENDINGAR OG LEIÐARMERKI eftir skýrslum frá hreppsnefndaroddvitum skv. lögum nr. 16, 14. júní 1929. 1. HAFNAHREPPUR a. KALMANSTJÖRN Lendingin er í suöur frá bænum Kalmanstjörn, fast viö túnið. Leiðarmerki eru tvö tré, annað stendur á hólnum fyrir sunnan bæinn, en hitt stendur í túngarðinum fyrir ofan lendinguna. Tré þessi eiga að bera saman, og þeirri stefnu haldið alla leið. Sundið á að taka, þegar Bælið ber uni grjótvörðu sem stendur á svonefndri Hæð, h. u. b. 500 m. fyrir sunnan Kalmanstjörn. Þess ber að gæta fyrir alla, sem fara þetta sund, að vera aðeins norðan við rétt sundmerki, vegna straums sem einlægt vill bera að suðurlandinu. í lendingunni er sandur. Á leiðinni eru engin blindsker. Bezt er að lenda með háum sjó. Bæli er hóll, sem er uppi á háheiðinni fyrir sunnan Kalmanstjörn. b. MERKINES Lendingin er hér um bil 300 m. í norðaustur frá bænum Merkines. Leiðarmerki eru: Varða, sem stendur á malarkampi 500 m. norðaustur frá lendingunni, og klapp- arhóll með tveimur smávörðum á. Hóllinn er í hásuður frá áðurnefndri vörðu, milli- bil er 400 m. Sundið skal taka, þegar fíælid (sbr. 1. a.) er um vörðu þá, sem stendur ofan til við Skiftivík, sem er næst fyrir sunnan Merkines; þá er haldið eftir áður- nefndum merkjum, þar til að tvær vörður, sem standa fyrir ofan lendinguna, ber saman, þá er haldið upp í vör. í lendingunni er sandur og klappir. Menn eru varaðir við að nota þetta sund ef brim er, það er talið slæmt, en Iandtaka er góð. c. KIRKJUVOGUR Lendingin er í norður frá kirkjunni, innan til við svonefnt Kirkjusker, sem er 120 m. norður frá Kotvogi. Leiðarmerki eru tvær vörður með venjulegum sundtrjám. Þær eru í austur frá Kirkjuvogssnndi og standa niður við flæðarmál, að sunnan- verðu við ósana, millibil er 200 m. Sundið er tekið, þegar Bæli (sbr. 1. a.) ber um bæinn Junkaragerði, og er svo haldið inn sund eftir áðurnefndum vörðum, þangað til að Kiðaberg, sem er inni í Miðnesheiði, ber um Einbúahól, sem stendur á grasi- vöxnum hólma norðan til við ósa, þá er haldið upp i lendinguna. Hún er talin góð með hálfföllnum sjó og oft notuð sem neyðarlending. 2. MIÐNESHREPPUR a. STAFNES Lendingin er vestur af bænum Stafnes. Leiðarmerki eru: Austurgrjótvarða á hólnum fyrir sunnan bæinn, niður við sjó, skal bera í vörðu uppi i heiði, millibil 800 m. Báðar þessar vörður eru með tré og sundmerki. Snúið til merkja neðst á Stafnestöngum i merki á Hvalsnestöngum, og þeirri stefnu haldið þar til merkið fyrir

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.