Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 68

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 68
23. FRÓÐÁRHREPPUR a. BRIMILSVELLIR Leiðarmerki eru engin á Brimilsvöllum. Tnn í lendinguna er farið á milli boða efiir beinum sundum, sem mega teljast fær eins lengi og útsjór er, nema þá helzt í norðanátt, en þá er ágætis lending i Hrísakletti, sem er ca. 500 m. fyrir innan Brim- ilsvelli. í lendingunni er sandur og möl. Stefna vestur. Aðeins nothæf fyrir kunnuga. b. HRÍSAKLETTUR Lendingin er niður undan bænum Hrísakletli. Á leiðinni eru engir boðar né blindsker, dýpi 15—18 m. Stefna suðaustur. Lendingin er góð, hvernig sein stendur á sjó. Leiðarmerki eru engin. 24. Eyrarsveit. 25. STYKKISHÓLMSHREPPUR a. SELLÁTUR Aðallendingin er lítill vogur sunnan til á eyjunni. Inn á hann eru engin leiðar- merki. f lendingunni er sandur; hún er varasöm i sunnan- og suðvestanátt, sérstak- lega um fjöru, því þá kemur upp malartangi að vestanverðu, sem ekki flýtur yfir. í suðlægri átt getur orðið ófært að lenda í vognum, og má þá lenda norðvestan á eyjunni. Þar er möl og hrein lending. b. HÖSKULDSEY Lendingin er vogur vestan á eyjunni. Leiðarmerki eru lítill klettur niður í fjöru, sem fer hér um bil í kaf um stórstraumsflóð, á að bera i norðurvegginn á skemmu, sem stendur upp undan lendingunni, kallað „Vaðbergið í skemmuvegginn“. í lendingunni er sandur, möl og klappir. Rif er þvert yfir voginn framantil, sem verður þurt um stórstraumsfjöru. Inn á voginn verður að beygja inn á milli tveggja tanga, og er jiví ekki hægt að halda beina stefnu í lendinguna. Lendingin er talin slæm brimlending, og er alveg ófær i vestanstormi. Við eyjuna er hægt að lenda á þremur stöðum: 1. í vognum. 2. í svonefndum ,,Hellir“, sem er i SV. og V., en ekki er hægt að bjarga þar bát, nema þá mjög litlum og með nægum mannafla. 3. í svonefndum ,,Sandi“, sem er sunnanvert á eyjunni; þar er mjög stórgrýtt. Eins og áður er tekið fram, getur varla verið hér um neyðarlending að ræða i vondu veðri, nema fyrir kunnuga, eða eftir leiðbeiningu frá eyjunni. c. ELLIÐAEY Lendingin er þröng grjótvör, betri með háum sjó. Inn á höfnina er beygt til austurs fyrir dálítinn höfða (sem stundum er lent við í góðu veðri). Norðaustan við hann er beygt inn í vörina. Lendingin er talin dágóð. d. BÍLDSEY í Bíldsey eru tveir vogar, sem notaðir eru fyrir lendingu; er talið gott að lenda í báðum. Annar er að norðanverðu en hinn að sunnanverðu (á móti Stykkishólmi). Vogarnir eru á vesturhluta eyjarinnar, hvor móti öðrum. 26. Fellsstrandarhreppur. 27. Klofningshreppur. 28. Skarðshreppur.

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.