Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Síða 70
38. TÁLKNAFJARÐARHREPPUR
a. SUÐUREYRI
Stefna lendingarinnar er í vestnr. t lendingunni er slétt smámöl. Leiðarmerki
eru engin, og á leiðinni er enginn boði né grynningar. Lendingin ágæt hvernig
sem stendur á sjó.
b. HVANNADALUR
Lendingin er í Suffnreyrar-líindi, stefna hennar í vestur. Leiðarmerki eru 2
grjótvörður í vestur, l1/*! m. báar, sú neðri 100 m. frá sjó, 30 m. milli þeirra. Lend-
ingin er grýtt, ekki góð, skárst um fjöru, en varla talin nothæf.
c. RAKKI
Lendingin er í Bafcára-landi, stefna hennar er norður. Leiðarmerki eru engin.
Þar sem lent er, er sandur og smámöl. Bezt að lenda um flóð. Lendingin er talin
í meðallagi góð.
d. HVALVÍK
Lendingin er í Se//á/urs-landi. Stefna hennar er í austur, hún er talin góð.
Leiðarmerki eru engin.
e. MEINÞRÖNG
Lendingin er í Se//á/nrs-landi. Stefna hennar er í austur, hún er talin góð.
og grjót, hún er mjög þröng, dágóð með hálfföllnum sjó, en um flóð og fjöru er
hún slæm. Leiðarmerki eru: Tvær vörður, sem eiga að bera saman. Neðri varðan
er 30 m. frá sjó, en hin er 20 m. ofar.
f. BLAÐRA
Lendingin er í Arnarstapa-landi. Stefna austur. Leiðarmerki eru: Tvær vörður,
neðri varðan er 40 m. frá sjó, 8 m. milli merkja. Á leiðinni eru engin blindsker
né boðar. Vörin er þröng, og bezt að lenda með hálfföllnum sjó. Lendingin er ekki
talin góð.
39. Dalahreppur.
40. Suðurfjarðarhreppur.
41. AUÐKtJLUHREPPUR
a. BAULHÚS
Leiðarmerki eru engin, en halda skal beint á sjávarhúsin, þar er lent í malar-
sandi. Lendingin er góð.
b. HLAÐSBÓT
Þar er lent við ægisand beint framundan verbúðinni. Leiðarmerki eru engin.
c. ÁLFTAMÝRI
Lendingin er beint norður af bænum við sléttan sand. Leiðarmerki eru engin.
d. STAPADALUR
Lendingin er sandvör innanvert við sjávarhúsin, til beggja hliða eru klappir
og stórgrýti. Leiðarmerkin eru 2 hvalkjálkar hvítmálaðir, með ca. 50 m. millibili.
Innan til við leiðina er blindsker sem brýtur á um fjöru. Lendingin er bezt með
hálfföllnum sjó, talin miður góð.
e. HRAFNABJÖRG
Lendingarstaðurinn er i svonefndri Grisavík, vörin er þröng og grýtt og klappir
til beggja handa. Innanvert og framan af lendingunni er blindsker. Leiðarmerki