Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 81

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Side 81
c. BAKKAGERÐISÞORP (Vogur) Lendingin er vogur, sem skerst inn í Kifíubjörg sunnan við Bakkagerði. Á bakk- anum upp af vognum standa fiskhús. Lendingin liggur í suSvestur. Klapparbotn. Leiðarmerki eru engin. í miðjum vognum er boði, um 5 m. frá steyptu bryggjunni. Lendingin talin miður góð. d. BAKKAGERÐISÞORP (Bakkafjara eða Eyrarfjara) Lendingin er sunnan Bakkaúr fram af verzlunarhúsinu Bakkaeyri. Liggur í vest- ur. í lendingunni er grjót og klappir. Leiðarmerki eru engin. Fram af lendingu er stórt sker, Ársker, sem er í kafi um háflæði. Leiðin liggur sunnan skersins, en varast skal klapparhala suður úr skerinu, og ber því að fara um 8 m. frá háskerinu. Sunn- an við leiðina eru smá blindsker, sem ber að varast. Lendingin er talin miður góð, betri um flóð. e. BAKKAGERÐISÞORP (Skipafjara) Lendingin er fram af verzlunarhúsum Kaupfélags Borgarfjarðar, fyrir norðan klettahleinar, er ganga þar fram i sjó. Lendingin liggur í vestur. Malar- og sandbotn. Leiðarmerki eru engin. Fram af vörinni eru blindsker. Syðsta skerið er fram af hleininni og er upp úr sjó um 4 klst. hverja fjöru. Um 10—12 in. norður af því er smásker, sem aðeins stendur upp úr um stórstraumsfjöru. Leiðin er aðeins laus við þetta sker, því þar fyrir norðan tekur við skerjaklasi milli lendinganna Bakkafjöru og Skipafjöru. Lendingin er talin miður góð, bæði um flóð og um fjöru. f. BAKKAGERÐISÞORP (Bakkagerðisfjara) Lendingin er fjara sú, er tekur við sunnan við klettahleinar þær, er ganga frain í sjó frá verzlunarhúsi Kaupfélags Borgarfjarðar. Lendingin liggur í suðvestur. Malar- og sandbotn. Leiðarmerki eru engin. Lendingin slæm bæði um flóð og fjöru. g. HOFSTRÖND Lendingin er Stekkavik, út og niður af bænum Hofströnd, skammt innan við Hofstrandarhamar. Lent er rétl utan við yztu klöppina niður af fjárréttinni á sjáv- arbakkanum. Lendingin liggur I suður. Klapparbotn með malarfjöru. Lendingin er hrein, utan við hana eru blindsker, sem sést á um fjöru. Lendingin er allgóð, betri um flóð. h. HÖFN Lendingin er í Hellisfjöru fast innan við Hafnartún og er önnur fjara inn frá Hafnarhólma, innan við Skarfasker, sem er 80—100 m. fyrir innan Hafnarhólma. Malarfjara, nokkuð brött, kólfhörð, en hreint úti fyrir. Leiðarmerki eru engin. Lend- ingin er allgóð, bezt um hálffallinn sjó. i. BRÚNAVÍK Lendingin er norðanmegin í Brúnavikinni, um 200 m. frá sandi þeim, sem er fyrir botni víkurinnar, beint undan yzta jaðri Brúnavíkiirtiínsins, í háaustur frá íbúðarhúsinu í Brúnavík. Lendingin er i norðvestur. Grjót og klappir. Leiðarmerki eru engin. Á leiðinni eru blindsker og boði. Lendingin er talin góð fyrir kunnuga, bezt um hálffallinn sjó. k. GLETTINGANES Lendingin er í norðaustur af Glettinganesbænum. Austan við hana liggur fílett- inganestangi í norður úr nesinu. Lendingin er í suður. Malarbotn. Leiðarmerki eru engin. Norðaustanvert utan við mynni lendingarinnar er boði. Þegar inn er komið, er lendingin talin góð. 1. KJÓLSVÍK Lendingin er kölluð ,,Ker“, er niður af Kjólsvíkurbænum, sunnan við syðsta bökuhornið. Klapparbotn. Engin leiðarmerki. Lendingin er slæm, en skárst um fjöru. Boði er rétt suður undir bökuhorninu.

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.