Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 84

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 84
c. VATNSFJARA Frá lendingunni sést enginn bær, en næsti bær er Krossanes. Leiðarmerki eru engin. Að utanverðu við lendinguna er klappartangi, en að innanverðu er klöpp. Nokkuð fyrir innan lendinguna er sker. Upp í lendinguna er haldið þráðbeint, mitt á milli tangans og klapparinnar. d. SANDBÁS Lendingin (Sanclbás) er 250 m. fyrir innan og neðan bæinn Karlskála; stefna er beint upp í vör. Fyrir utan lendinguna eru háir klettar, en upp undan henni eru klettabelti. Leiðarmerki eru ekki önnur en stór steinn í miðjum básnum, og er farið aðeins árafrítt við hann, að innanverðu. Bezt er að lenda með hálfföllnum sjó. Lending þessi er aðal-þrautalending á Karlskála og sjálfsagt fyrir ókunnuga að lenda þar, heldur en í lendingunni, sem er niður frá bænum, og oft er notuð af heima- mönnum. 99. Eskifjarðarhreppur. 100. Reyðarfjarðarhreppur. 101. FÁSKRÚÐSFJARÐARHREPPUR a. BERUNES Berunes er að sunnanverðu við Reyðarfförð, lendingin er í vík milli svo- nefndrar Grímu að austan og Griplialdatanga að vestan, sem Griphaldahúsið stendur á. Leiðin er hrein, og engir boðar eða grynningar á henni. Lenda skal í möl fyrir neðan fiskhiis sem þar stendur. Bærinn Berunes sést ekki frá lendingunni. Hún er talin bezta lendingin að sunnanverðu við Beyðarfförð. b. HAFBANES Hafranes er að sunnanverðu við Beyðarfförð. Lendingin er niður i Hafranes- tanganum vestantil við ibúðarhúsið á Hafranesi. Norðaustan við tangann er blind- sker. Leiðarmerki eru engin. Lenda skal í malarfjöru milli bryggjanna, sem liggja fram af fiskhúsunum, eða innanvert við húsið. c. VATTARNES Lendingin er vestan við Vattarnestangann sem vitinn stendur á, sbr. viti nr. 81, lenda skal i víkinni austan við bryggju, sem er fram af fiskhúsi, er stendur þar. Blindsker eru mörg á höfninni, og er leiðin fremur hættuleg í miklu brimi, sér- staklega í norðaustan átt, en í sunnanátt er ágætt. Svonefndur Flesjaboði er inn af tanganum að vestanverðu, um 200 m. frá Flesinni. Beltaboðinn er hér um bil beint vestur af vitanum, en vestur af honum er Króahraunsboði, leiðin inn á höfnina er á milli þessara tveggja siðast nefndu boða. d. SKÁLAVÍK Lendingin er í vík milli Skálavíkurtanga að austan og Skötntanga að vestan. Lenda skal austast í víkinni, eins nærri og hægt er klöpp þeirri, sem liggur með- fram allri víkinni að austanverðu. Leiðarmerki eru engin. Vestanverðu við höfn- ina er Hvalnesboði, og Gunnarsboði fram af (suður af) Gunnarsskeri, og falla þeir saman í miktu brimi. Lending þessi er ekki talin nothæf nema i færu veðri. e. KOLFREYJUSTAÐUR Lendingin er í Kolfreyjustaðarhöfn vestan til við kirkju og íbúðarhús staðar- ins, þar er vík milli Valtýstanga að vestan og Hafnartanga að austan. Lenda skal í malarfjöru austast í víkinni, við klöpp sem liggur meðfram allri víkinni að austan- verðu. Leiðarmerki eru engin, engir boðar né grynningar til hindrunar á teiðinni. Lendingin er betri um flóð, og talin ágæt í öllum áttum nema sunnanátt.

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.