Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 86

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1934, Page 86
mjór, og svo grunnur að hlaðnir róðrarbátar fljóta ekki inn Ósinn fyrr en með hálfföllnum sjó. Ósinn er talinn ágæt lencling. h. HEYKLIF Lendingin er niður frá bænum Heyklif, að sunnanverðu á Kambanesi. Leiðar- merki eru engin. Klappir, boðar og grynningar eru fyrir utan Iendinguna, og er hún talin mjög slæm. 104. Breiðdalshreppur. 105. Beruneshreppur. 106. GEITHELLNAHREPPUR a. STYRMISHÖFN Lendingin er suðaustan við Þvottárland. Stórgrýtt fjara. Lendingin er grunn, betri um flóð en um fjöru. Talin slæm vegna brims og grynninga. 107. NESJAHREPPUR a. HORNSVÍK Lendingin er við bæinn Horn. Þar sem lent er, er sandur, engar grynningar á leiðinni. Lendingin er góð í kyrrum sjó. b. HÖFN (í Hornafirði) Þar er lent við bryggju í kaupstaðnum eða eyjum þar í grennd. 108. BORGARHAFNARHREPPUR a. SÆVARHÓLAKLETTUR Lendingin er suður af Seevarliólakletti og suðaustur frá Skálafelli. Leiðarmerki eru engin. Leiðin liggur austan við svonefnda Hólakletta. Kletlarnir eru tveir, annar í fjörunni, en hinn er 200 ni. frá landi. Lendingin er fyrir opnu hafi, og er talin slæm. Lendingin lítið notuð. 1). HÁLSAHÖFN Hálsahöfn, austanundir svonefndum Klapparhálsi; austur af tanganum er Hafna- sker, og eru boðar í kringum það, mjög varasamir. Skipaleiðin er óhreín að því leyti, að boðarnir eru nálægt henni, og leiðarmerki eru engin. Lendingin litið notuð. c. BJARNARHRAUNSSANDUR Sandurinn ei niður undan bæjunum Bjarnarhöfn og Kálfafellsstað, mitt á milli hæja. Leiðarmerki eru engin. Sker er að ulanverðu við lendinguna, og dregur það talsvert úr brimi við hana, einkanlega í suðvestansjó. Lending þessi er talsverðum breytingum háð, stundum myndast hár sandmalarkampur, en stundum dregur sjórinn hann aftur úr og sléttar yfir. Þar er vanalega meira og minni brim og er talin slæm lending. d. VINDÁSFJARA Það er lending frá Breiðabólstað, og er suður frá bænum Sléttabóli við Steina- fíall. Út af lendingunni er grunnbrot um 150 m. frá landi, og er hún ekki fær nema i góðu. 109. Hvammshreppur.

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.