Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1937, Side 61
stefnan SSV. Stefnu þessari er haldið þar til að tré, 6 m. liátt, er stendur uppi í tún-
inu, l>er reykháfinn á vestri íhiiðarluisinu í Akurhi'isum, er þá breytt um stefnu, og
haldið SV og inn í vör.
c. KRÓKSÓS
Króksós er mitt á milli Utskúla og Gerða. 1 ósnum er sandur og möl. Osinn er
mjór, og verður að fara hárrétt; að norðanverðu við hann er rif, en að sunnanverðu
er flúð, og er betra, þegar farið er inn ósinn í norðanstormi og kviku, að fara sem
næst rifstanganum, því straumur og kvika vilja kasta skipinu suður á flúðina. Leiðar-
merki eru tvö tré, er eiga að bera sanian, þegar farið er inn ósinn, neðra tréð er 4 m.
á hæð, og stendur 10 m. frá sjó, efra tréð er 10 m., og millibil 275 m. Stefna er VSV.
Króksós er talin allgóð lending, en fyrir ókunnuga er hann varhugaverður í slæmu
veðri.
d. GERÐAR
Vörin er fyrir neðan Gerðaþorpið. I vörinni er möl, grjót og klappir. A leiðinni
cru engin sker né grynningar, hezt að lenda með hálfföllnum sjó. Gerðavör er talin
í meðallagi góð. Leiðarmerki eru 2 tré sem ciga að bera saman, neðra tréð er 8 m. á
hæð, og fellur sjór i kringum það uin stórstraumsflóð. Efri ti'éð stendur á húsi fyrir
ofan vörina, og er 4 m. á hæð. Millibil milli merkja er 50 m. Stefna er V.
e. VARAÓS
Varaós er mitt á milli jarðanna Vara og Kothúsa. í vörinni er möl og grjót. Leið-
arnierki eru 2 tré með ljósum (viti nr. 7), trén eru 4 m. á hæð. Neðra tréð er með
rauðu ljósi, og stendur niður við sjó fast við stórstraums flæðarmál, efra tréð er með
grænu ljósi, milli er 21 m., stefnan er V. Þegar komið er inn í ósinn, er um tvær lend-
ingar að ræða. Til vinstri er Kothásavör, en Varavör verður h. u. b. stafnfram. A
milli varanna er kambur, og verður að gæta að því með háum sjó, að halda í miðja
opna vör. Varaós er talinn aðalþrautalending í Garði.
f. MEIÐASTAWIR
Vörin er fyrir neðan Meiðastaði. í vörinni er sandur og möl; hindranir eru engar
á leiðinni. Leiðarmerki eru þessi: Eystri gaflinn á fiskhúsinu, sem stendur niður við
sjó, á að bera um eyslri lcvistgluggan á íbúðarhúsinu. Fiskhúsið er 10 m. frá sjó, og
175 m. á milli húsanna. Stefna er V.
g. GUFCSKÁLAR
Lendingin er fyrir neðan bæinn Gufuskálar, sem er h. u. b. mitt á milli Garðs og
Leiru. Leiðarmerki eru engin. Stefna leiðarinnar er V., en inn í vörina NV. I lending-
unni er möl og klappir. Á leiðinni eru engir boðar né blindsker. Lending þessi er
talin ágæt, en bezt með hálfföllnum sjó.
h. BAKKAKOT
Vörin er mitt á milli fíakkakots og Lillahólms. í vörinni er möl og sandur, engir
boðar né sker á leiðinni. Leiðarmerki eru engin uppistandandi. Gæti verið þrauta-
lending í austanátt og landnyrðingi.
i. HRÚÐURNES
Vörin (Hólmasund) er skammt fyrir norðán bæinn Hrúðurnes. I vörinni er möl
og klappir. Hindranir eru engar á leiðinní. Lendingin er í meðallagi góð, bezt um
flóð. Leiðarmerki eru tvö tré, sem eiga að bera saman. Neðra tréð stendur 5 m. frá
sjó og cr 0 m. á hæð, en efra tréð 8 m. Millibil er 400 m. Stefnan er SV.