Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1937, Page 67

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1937, Page 67
er h. u. b. frá norðri til suðurs. Leiðarmerki eru engin. í vörinni er sandur. Lending þessi er nú ekki lengur notuð. n. NES VIÐ SELTJÖRN Lendingin er skammt fyrir austan lendinguna í iNýjabæ. Stefna hennar er frá norðri ti 1 suðurs. Leiðarmerki eru engin. Þegar farið er inn í vörina, er stefnt á hliðið á kálgarðsveggnum fyrir ofan. í lendingunni er leir og sandur. Að austan- verðu við vörina er stórgrýti. Nú er hún aðeins notuð af mönnum, sem stunda hrognkelsaveiði. o. MÝRARHÚS I Lendingin er norðan á nesinu mitt á milli Mýrarhúsa I og Mýrarhiísa II. Leið- armerki eru engin, önnur en þau, að símastaur, sem stendur upp í Pálshæjartúni, á að bera í staurinn á Valhiísinu, og er farið eftir þeim merkjum inn i vörina. í vör- inni er sandur og klappir, hún er betri um flóð, en annars talin miður góð. Nú er lending þessi ekkert notuð, og ekkert haldið við. p. MÝRARHÚS II Lendingin er austan til við Pálsbæ, mitt á milli Pálsbæjar og barnaskólans í Mýrarhúsum. Stefna h. u. b. frá norðri til suðurs. í vörinni er mest klappir. Báðum megin vararinnar er þangi vaxið stórgrýti, og hefir grjót hrunið dálítið úr kömp- unum niður í vörina. Bezt mun vera að lenda um flóð. Lending þessi var talin góð á meðan hún var notuð og henni haidið við, var eina lendingin að norðanverðu á nesinu önnur en Vatnavík (sbr. 1.). q. ENGEY Áður fyrr voru fjórar lendingar i Engey, en aðeins einni hefir verið haldið við; hún er í suður frá bænum, niður undan geymsluhúsi, sem stendur á sjávar- bakkanum. Að austanverðu við vörina er sker rétt við landið, en að vestanverðu eru engir boðar né grynningar, og því bezt, að koma þeim megin að vörinni þegar lent er. Lending þessi er talin miður góð. í). MOSFELLSHREI’PUR a. LEIRVOGSTUNGA Lendingin er fyrir botni Leirvogs. Þar eru flatar eyrar, sandur og smámöl. Fjöruborð er svo mikið, að vogurinn er þurr um fjöru, aðeins lendandi um stór- straumsflóð. b. VARMÁ Lendingin er við Hestaþingshól, innanvert í botni Leirvogs, þar er sandur og möl. Fjöruborð svo mikið, að ekki er hægt að lenda nema um stórstraumsflóð. c. LÁGAFELL Lendingin er við Langatanga, er liggur út i Leirvog að sunnanverðu, og er hægt að lenda báðum megin við tangann. Útgrynni er svo mikið, að ekki er hægt að lenda nema um stórstraumsflóð. d. BLIKASTAÐIR Lendingin er svokallað fíerði í Iilikastaðanesi (Nesið slcilur Leirvog og fíorm- vik). í lendingunni er sandur og möl. Fjöruborð er svo mikið, að ekki er hægt að lenda nema um flóð. e. KORPÚLFSSTAÐIR Lendingin er að sunnanverðu í Gormvík, þar er sandur og möl. Hólmi er skammt frá landi og sker utan og innan við hann, en ekki er það neitt til hindrunar á lendingarleiðinni. Bezt að lenda um flóð. 9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.