Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1937, Page 69

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1937, Page 69
i>. FtJLAVÍK Leiulingin er vi<5 klöpp austanvert við Kirkjuhólsbæinn. Leiðarmerki eru: Grjót- varða á sjávarbakkauuni 3 in. á hæð, upp úr henni stendur tré, 1 m. á hæð. Varða [æssi á að bera í vörðu sem stendur uppi í holti 2 ni. á hæð. Neðri varðan stendur 20 in. frá sjó, en milli merkja er 800 m. Leiðarstefnan er norðaustur, þráðbein framan úr djúpi, og alla leið inn á miðja vík, þar er beygt lítið eitt lil austurs fyrir blind- sker, og' svo aftur tekin sama lína beint í land. c. TRAÐIR Lendingin er vestan til við Traðabæinn. í lendingunni er möl og klappir. Leið- armerki eru tvær vörður; neðri varðan stendur á sjávarbakkanum, en hin uppi í túni; fjarlægðin á milli þeirra er 80 m. Vörður þessar eiga að bera saman, og er þeirri stefnu haldið inn á móts við skerjatanga, svokallað Tangarhöfnð, og er jiá beygt lítið eitt til vesturs, og stefnt á tvær vörður, sem þá eiga að bera saman, og jieirri stefnu haldið alla leið í land. Á sjálfri leiðinni eru engin sker eða grynningar, en báðum megin við hana eru boðar og sker. Lending þessi er talin slæm, bezt með hálfföllnum sjó. d. HOFGARÐAR (Akur). Lendingin er suðveslan við eyðibýlið Akur, hér um bil beint niður undan Hof- görðum. Leiðarmerki: Grjótvarða á sjávarbakka, 2 m. á hæð, stendur fram á klett- um vestan við mjóa gjá. Varða þessi á að bera i aðra vörðu, sem stendur nokkuð ofar, millibil 33 m. Eftir þessum merkjum skal halda, þar til að tvær vörður, sem eru að vestanverðu við víkina, bera saman, er xá beygt beint i vestur, og stefnt beint á vörðurnar, þar til beygt er upp í lendinguna. Boðar eða grynningar eru ekki á sjálfri leiðinni, en báðum meginn við hana. Að vestanverðu er rif (Þangsker) sem fer i kaf um flóð. Lendingin er talin miður góð. Um stórstraumsfjöru flýtur ekki að, bezt með hálfföllnum sjó. e. BÚÐIR Á fíúðum eru þrjár lendingar: 1. Frambúðir í suðvestur frá fíúðtim. Þar er lent í smávík sunnafi við klett sem er í iniðri víkinni, þar er sandur og klappir. Leiðin er hrein hvernig sem stendur á sjó. Lending þessi verður aldrei ófær og er talin bezta smábátalending að sunnan- verðu við Snæfellsnes. 2. Lendingin heitir í Sandvík og er í suður frá fíúðum. Þar er lent að norðan- verðu við sker. Leiðin inn i víkina er óhrein, farið á milli tveggja boða, ófært um flóð ef illt er í sjó, en góð um fjöru. 3. Lendingin er fíúðaós. Leiðin liggur inn miðjan ós, og er lent þar við hlaðn- ar grjótbryggjur. Með lágum sjó (4 klst.) fljóta bátar ekki inn Ósinn. Leiðarmerki eru engin, hvorki á aðalleiðinni, eða upp í lendingarnar, jiegar komið er af sjó, er haldið i norðaustur, grunnt inn ineð hrauninu, og svo beygt út af leiðinni upp í lendingarnar. Fyrst upp í lendinguna á Frambúðum jiar næst upp í Sandvíkina og síðast inn i Ós. 20. BREIÐUVÍKUIIHREPPUR a. I.ÁTUR Stefna lendingarinnar er austur; hún er í Grimsstaðalandi, sem nú er eyðijörð. Lendingin er talin dágóð um flóð og þangað til hálffallið er út. Þá kemur upp grjót- hryggur, sem ekki flýtur yfir fyrr en hálffallið er að. Leiðarmerki eru engin. b. ARNARSTAPI Lendingin er fáa metra frá túninu, snýr i austur. Þar er grjót og möl. Leiðar- merki eru engin, lendingin er góð, og er útsjór talinn ófær, ef ekki er hægt að lenda þar. Enda hefir lendingin oft verið notuð sem neyðarlending.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi
https://timarit.is/publication/1730

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.