Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1937, Síða 76
(I. TJALDTANGI
í lcndingunni (A—V) er grjót og klappir, og fyrir framan hana crn hæði hoðar
og blindsker, enda er lendingin talin slæin. Leiðarmerki eru engin.
50. Ögurhreppur.
51. Reykjarfjarðarhreppur.
52. Nauteyrarhreppur.
53. SNÆFJALLAHREPRUR
a. GULLHÚSÁ
Lendingin er við Gullhiísá á Snæfjallaströnd. Þar er briinasaint og nokkuð vand-
farið ókunnugum. Leiðarmerki eru engin.
b. ÆÐEY
Lendingin er í höfninni austan á eynni. í sundinu, sem er nokkuð þröngt er
sker og er farið sunnan megin við skerið með hólmanum að norðan. Leiðarmerki
eru engin.
54. Grunnavíkurhreppur.
55. SLÉTTUHRERPUR
a. HESTEYRI
Rezta lendingin er um 200 m., fyrir innan loftskeytastöðina. í lendingunni er
sandur og möl. Alltaf er hægt að lenda, en bezt þegar hásjávað er.
h. SÆBÓL í AÐALVÍK
f lendingunni er sandur, en hnullungsgrjót til beggja hliða. Ivlöpp er framan
við vörina. Engin leiðarmerki. Lendingin er allgóð þegar brimlaust er, betri um
flóð.
e. LÁTUR I AÐALVÍK (Innri lending)
Innri lendingin er um miðja húsaþyrpingu. Grjót er ofan við lágfjöruborð,
annars sléttur sandur. Lendingin er góð um ftóð, en um fjöru er slæmt að lenda
vegna útgrynnis. Lendingin er ófær í stórhrimi af vestri.
d. LÁTUR í ADALVÍK (Neslending)
Neslendingin (ytri lendingin) er vestar en hin (c.). Hún er austan við 3. hús
talið frá vestasta húsinu við sjóinn. Lendingin er talin góð, betri um flóð en um
fjöru og bezt um hálffallinn sjó. Grjót er í lendingunni og er hún talin ófær í stór-
brimi af vestri.
e. ATI.ASTADIR í FLJÓTAVÍIv
Lendingin er í Atlaslaðahlíð innan við Kögnr. í lendingunni er grjótkambur
frá flæðarmáli upp að grasi. Hún er góð um flóð, slæm um fjöru, en ófær sem
neyðarlending.
f. REKAVÍK VID HORN
Lendingin cr beint niður undan bænum. í lendingunni er stórgert malargrjót,
en hún getur orðið nokkuð sandborin eftir stórbrim. Lendingin er miður góð, ef
nokkuð er i sjó, sérstaklega í norðanátt. Jafngott er að lenda um flóð og um fjöru.