Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1937, Side 84
82
e. LEIÐARHÖFN
Lendingin er fyrír neðan íbúðarhúsið í Leiðarhöfn. Það er vogur sem nefnd-
ur er Krossvogtir. Leiðin er hrein og nóg dýpi, og má leggja mótorbátum þar við
klöpp, hvernig sem stendur á sjó. Lendingin er talin góð.
f. DRANGSNESHÖFN
Lendingin er utantil í svonefndu Drangsiiesi, sem er yzt i Krossavikurlandi.
Leiðarmerki eru engin, en lendingin er glögg og auðratað í hana. 1 lendingunni er
möi. íli'in er bezt með hálfföllnum sjó og talin góð.
g. HAMRALENDING
Hún er skammt fyrir utan bæinn Vindfell. Leiðarmerki eru engin. í lending-
unni er möl. Leiðin liggur upp með flúðum og er vandrötuð fyrir ókunnuga. Lend-
ingin er talin góð, en bezt með hálfföllnum sjó.
h. FAGRIDALUR
Lendingin er við klappir beint niður frá bænum Fagradal. Leiðarmerki eru
engin, bezt að Ienda með hálfföllnum sjó. Lendingin er tali slæm.
i. TORFUSANDUR
Lendingin er nokkuð fyrir utan Fagradalsbæ. Leiðarmerki eru engin, enda
hrcin leið. Lending þessi er talin góð neyðarlending fyrir opna báta.
92. BORGARFJARÐARHREPPUR
a. NJARÐVÍK
Lendingin er í suðurhorni Njarðvíkur, beint út af Króksbakkabænnm, sunnan
Njarðvíknrár. Lendingin liggur í vestur. Leiðarmerki eru éngin. Lendingin er taliu
iniður góð, kvikan venjulega minnst um fjöru. Sandfjara.
b. GEITAVÍK
Lendingin er suður af Geitaviknrbæmim, syðst í sandfjörunni fyrir víkurbotn-
iniun. Liggur í suðvestur. Sandfjara, en grunnt um fjöru. Leiðarmerki eru engin.
Blindsker eru i leiðinni, og inn um mjótt súnd að fara, sem ekki er fært ókunnug-
um. Lendingin er talin miður góð, en hetri um hálffallinn sjó.
c. BAKKAGERÐISÞORP (Vogur)
Lendingin er vogur, sem skerst inn í Kiðnbjörg sunnan við Bakkagerði. Á bakk-
anum upp af vognum standa fiskhús. Lendingin liggur í suðvestur. Klapparbotn.
Leiðarmerki eru engin, í miðjum vognum er boði, um 5 m. frá steyptu bryggjunni.
Lendingin talin miður góð.
d. BAKKAGERÐISÞORP (Bakkafjara eða Eyrarfjara)
Lendingin er sunnan Bakkaár fram af verzlunarhúsinu Bakkaegri. Liggur í vest-
ur. í Iendingunni er grjót og klappir. Leiðarmerki eru engin. Fram af lendingu er
stórt sker, Ársker, sem er i kafi um háflæði. Leiðin liggur sunnan skersins, en varast
skal klapparhala suður úr skerinu, og ber því að fara um 8 m. frá háskerinu. Sunn-
an við leiðina eru smá blindsker, sem ber að varast. Lendingin er talin miður góð,
betri um flóð.
e. BAKKAGERDISÞORP (Skipafjara)
Lendingin er fram af verzlunarhúsum Kaupfélags Borgarfjarðar, fyrir norðan
klettahleinar, er ganga þar fram i sjó. Lendingin liggur í vestur. Malar- og sandbotn.
Leiðarmerki eru engin. Fram af vörinni eru blindsker. Syðsta skerið er fram af
hleininni og er upp úr sjó um 4 klst. hverja fjöru. Um 10— 12 m. norður af því er