Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1937, Page 94
f. HÓP (Hópsvör)
Lendingin er suðvestur nf Neshúsinu. Leiðin inn sundið er sú sama og inn Járn-
gerðarstaðasund, þannig að leiðin er haldin áfram, á sundvörðu fyrir vestan Hóp
er ber í heiðarvörðuna, þar til komið cr inn á Járngerðarstaðalegn, er þá beygt til
hœgri og stefnt i landnorður á Húsafell og inn í viir. Sé farið inn í Hópið er stefnt
á hávörðuna á Hagafelli. Vörin er sem vík inn í klappir, er góð um fjöru, slæm um
flóð, er þá farið inn í Hópið. Lending þessi er ónothæf sem neyðarlending.
g. JÁItNGERHAItSTAHAHVEHFI (Suðurvör)
Lendingin er i suður frá verzlunarhúsunum. Vörin liggur norðan við Akurhtísa-
nef, sem er tangi er skagar dálítið út í sjóinn. Leiðarmerki inn Járngerðarstaðasund
eru: Varða ofan við húsin á Hópi á að bera i vörðu (Hópsheiðarvörðu), sem stend-
ur uppi í Hópsheiði, og þær aftur i svokallaðan Stindhnúk, sem er ávalur hnúkur á
bak við Hagafelt. Stefnunni skal lialdið á þessi merki, þangað til að Svíraklettur,
sem er vestan við Hópsrifið, ber í Slatnpshólsvörðn, sem stendur á hraunbrúninni,
að sjá á Þorbjörn. Er þá haldið á þau merki, þar til Garðhúsaskúr ber norðan til í
vörina, þá er haldið á þessi merki, og inn í vör. Ef brim er og liggja þarf til laga,
má ekki fara grynnra en svo að varðan (Sigga) í Hópsnesi beri um Grashól er
stendur austar í nesinu. Sundið er talið betra með háum sjó. í lendingunni er grjót
og klappir, hún er betri með háum sjó, en talin miður góð, og getur ekki talist
neyðarlending. Þegar sundið reynist ófært, leita menn jafnan lendingar á Þorkötln-
stöðum (Nesi).
h. HÚSATÓFTIR
Lendingin er heint fyrir neðan Dalbæ. Leiðarmerki eru: Tvær vörður í norður
þær eru 2 m. á hæð, með 1 V.>. m. háu tré upp úr og h. u. h. 150 m. millibili. Vörður
þessar eiga að bera í hraundranga sem ber við loft í sömu stefnu, þessi þrjú leiðar-
merki eiga að bera í austurendann á Þórðarfelli. Eftir þessum merkjum er haldið,
þar til að tvær vörður, sem eru í vestur, bera saman, er ]>á stefnt á þær spölkorn,
og svo sjónhending upp í vör. í lendingunni er sandur og klappir, hún er talin góð,
en erfitt að bjarga þar skipum undan sjó, vegna þess hvað útgrynni er mikið. Aldrei
hefir í manna minnum verið snúið frá þessari lendingu þó brim hafi verið.
i. STAÐUR (Staðarvör)
Lendingin liggur í austur frá Stað. Vörin er að norðanverðu við svokallaða
Staðarklöpp. Leiðarmerki eru: Tvær vörður skammt frá sjó (í norður). Þær eiga
að bera í hraundranga, sem ber við loft í sömii stefnu. Þessi þrjú merki eiga að
bera í austurendann á Þórðarfelli. Er þá haldið eftir ])essum merkjum, þar til aðr-
ar tvær vörður, sem eru í vestur bera sarnan, þá er haldið eftir þeim inn undir
Staðarklöpp og er þá farið inn með henni og inn í vör. í lendingunni er sandur,
hún er með beztu lendingum í Grindavik. k Staðarlegu lágu fyr kaupskip um verzl-
unartímann á sumrin; þau voru „svínbundin“, svo sem festarboltar í klöppunum
háðum megin sýna enn i dag.