Fréttablaðið - 22.11.2022, Síða 4

Fréttablaðið - 22.11.2022, Síða 4
63% barna og ungmenna sem tóku þátt í könn- un UNICEF sögðu að mismunun væri algeng í þeirra umhverfi. Ný skýrsla UNICEF sýnir að kynþáttafordómar og mismunun gegn börnum er ríkjandi vandamál um allan heim. UNICEF býður fólki að bregðast við með því að skrifa undir ákall og ganga til liðs við Réttindaliðið. lovisa@frettabladid.is MANNRÉTTINDI Kynþáttafordómar og mismunun gegn börnum á grundvelli þjóðernis, tungumáls og trúar er ríkjandi vandamál um allan heim. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sam- einuðu þjóðanna, sem gefin er út í tilefni alþjóðadags barna sem er á morgun, 20. nóvember. Skýrslan, þar sem staða mála í 22 löndum er skoðuð og ber yfirskrift- ina Rights denied: The impact of discrimination on children, varpar ljósi á hvernig kynþáttafordómar og mismunun hafa skaðleg áhrif á menntun, heilbrigði, aðgengi að fæðingarskráningu og sanngjarna málsmeðferð fyrir dómstólum og dregur fram ójafnrétti sem mis- munandi minnihlutahópar sæta. „Barnasáttmálinn var samþykktur af þjóðarleiðtogum heimsins fyrir rúmum þrjátíu árum til að standa vörð um réttindi barna og nú er það í okkar höndum að halda þeirri vinnu áfram. Við getum, og við verðum, að grípa til aðgerða gegn ójafnrétti, gera allt sem í okkar valdi stendur til að vernda börn gegn mismunun og úti- lokun og gefa öllum börnum tæki- færi til að rækta hæfileika sína. Við vonum því að sem flestir taki undir ákall okkar og gangi í Réttindaliðið,“ segir Birna Þórarinsdóttir, fram- kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Í könnun þar sem 407 þúsund svör bárust sögðu 63 prósent barna og ungmenna að mismunun væri Bjóða fólki að ganga í Réttindaliðið Framkvæmda- stýra UNICEF á Íslandi, Birna Þórarinsdóttir, vonast til að fá sem flesta í Réttindaliðið MYND/STEINDÓR GUNNAR algeng í þeirra nærumhverfi, helm- ingur sagðist hafa upplifað slíkt sjálf eða einhver nákominn þeim. UNICEF á Íslandi gerði einnig könnun meðal barna á Íslandi og var meginþorri hátt í 300 svarenda á aldrinum 10 til 17 ára. Börnin voru meðal annars spurð að því hvort þau teldu öll börn í lífi sínu vera jöfn og svöruðu um 40 prósent því neitandi. Ástæða ójöfnuðarins var misjöfn, en fátækt var sá þáttur sem oftast var nefndur. Í skýrslunni má lesa hvernig börn sem tilheyra jaðarsettum kyn- þátta-, tungumála- og trúarhópum eru langt á eftir jafningjum sínum í lestrarfærni í þeim 22 löndum sem voru rannsökuð og að mismunun og útilokun búi til fátæktargildrur sem þau segja f lytjast milli kyn- slóða með afleiðingum á borð við verri heilsu, verri næringu og lakari menntun. Auk þess er það talið auka líkur á fangelsun, hærri þungunar- tíðni hjá unglingsstúlkum, lægra atvinnustigi og tekjumöguleikum í framtíðinni. Í tilefni alþjóðadags barna fram- leiddi UNICEF á Íslandi myndband með fjölda talsmanna og sendi frá sér áskorun til almennings og stjórnvalda um að taka afstöðu gegn fordómum og mismunun í samfélaginu og ganga í Réttindalið UNICEF. Hægt er að skrifa undir ákallið og ganga í Réttindaliðið á unicef.is. n JEEP.IS • ISBAND.IS KEMUR ÞÚ AF FJÖLLUM? PLUG-IN HYBRID EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX! Íslensku fjöllin hafa mætt jafningja sínum. Gerðu ferðalagið algjörlega rafmagnað með Jeep® Wrangler Rubicon Plug-In Hybrid. ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 ser@frettabladid.is LÍFIRÍKI Lundaveiði á Íslandi hefur minnkað um 90 prósent frá 1995, að því er fram kemur í tölum Nátt- úrufræðistofu Suðurlands, en stofn- lægðin var hvað mest á árunum 2005 til 2017. „Stofninn hefur þó heldur verið að hjarna við í Eyjum á allra síðustu árum,“ segir Erpur Snær Hansen líffræðingur sem þekkir gjörla til sveiflna á stærð stofnsins. Rannsóknir hans og f leiri vís- indamanna benda til þess að sveiflur í stofnstærðinni megi lík- lega rekja til kísilstyrks í sjónum og fylgni hans við þörungablóma í hafinu undan ströndum Íslands. „Ef kísilstyrkurinn dvínar um allt að fjórðung seinkar þörunga- blómanum og þar með varpi lund- ans um ríf lega tvær vikur – og það hefur sín áhrif,“ segir Erpur Snær. „Þetta er okkar tilgáta,“ segir hann enn fremur og telur að sömu breyt- ur í sjónum hafi áhrif á af komu humars og viðveru makríls hér við land. Lundinn er talinn tegund í bráðri útrýmingarhættu á heimsvísu. Í Noregi, þar sem lundar hafa verið f leiri en á Íslandi um langt árabil, hefur stofninn minnkað til muna – og er nú minni en á Íslandi. Hóflegar veiðar á lunda eru þó enn leyfðar á Íslandi, en hafa farið minnkandi, farið úr líklega 600 þúsund fuglum í upphafi aldar í 60 þúsund í ár. „Það þarf að gæta þess að veiðar verði áfram sjálf bærar,“ segir Erpur, því þótt stofninn telji enn nokkrar milljónir fugla geti sveif lur náttúrunnar haft veruleg áhrif á stofninn. n Telja lundastofninn sveiflast eftir kísilstyrk í sjónum Lundinn er talinn tegund í bráðri út- rýmingarhættu á heimsvísu. FRÉTTABLAÐIÐ/ AUÐUNN olafur@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu landeigenda á Óttars- stöðum í Hafnarfirði um að starfs- leyfi Umhverfisstofnunar til Ísal frá 2021 verði ógilt. Úrskurðarnefndin féllst hins vegar á að fella úr gildi þann hluta ákvörðunarinnar sem sneri að stækkun álversins úr 212 þúsundum í 460 þúsund tonn af áli vegna þess að byggt væri á of gömlu umhverfis- mati. Bjarni Már Gylfason, upplýs- ingafulltrúi Ísal, segir úrskurðinn ekki hafa áhrif á núverandi starf- semi Ísal, enn sé verið að yfirfara úrskurðinn og meta. n Hefur ekki áhrif á starfsemi Ísal kristinnpall@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Alls varð 92 prósenta aukning í skráðum tilvikum á nytj- astuldi ökutækja á milli mánaða og voru 48 tilvik skráð í október. Til samanburðar var 25 ökutækjum stolið í september og aðeins fjórtán í október í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri töl- fræðiskýrslu lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu en síðastliðiðið ár hefur lögreglan fengið 23 til 25 til- kynningar um nytjastuld ökutækja í mánuði. Þá fjölgaði tilkynningum um ölvunarakstur verulega á milli mánaða, einnig tilkynningum um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og um umferðarlaga- brot. n. Veruleg fjölgun í ökutækjaránum 4 Fréttir 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.