Fréttablaðið - 22.11.2022, Side 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Kópavogsbær er í samvinnu við
H.C. Andersen safnið í Danmörku,
Múmínsafnið í Finnlandi og Ilon’s
Wonderland í Eistlandi í Vatns-
dropaverkefninu.
Öll verkefni ungra sýningar-
stjóra snúast um klassískar nor-
rænar barnabókmenntir og heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna.
Síðasta vetur vann hópurinn
með heimsmarkmið númer 15,
Líf á landi, en þá settu hinir ungu
sýningarstjórar upp listahátíð við
Menningarhúsin í Kópavogi.
Þar sýndu þau meðal annars
ljósmyndir af óboðnum gestum
náttúrunnar, vöktu athygli á
matarrækt, tóku upp hlaðvarp
um dýr í útrýmingarhættu og
útbjuggu ljóðabók um náttúruna.
Öll verkefnin sem litu dagsins ljós
voru hugarfóstur ungu sýningar-
stjóranna sem fylgdu þeim eftir
með kynningum og vinnu-
smiðjum.
Koffortin fljúgandi
Í framhaldi af listahátíðinni voru
haldnar vinnusmiðjur á Bóka-
safni Kópavogs síðastliðið sumar
þar sem hvatt var til lestrar og
sköpunar. Að lokum urðu til fjórar
ferðatöskur sem fengu nafnið Koff-
ortin fljúgandi sem er tilvitnun
í eina af sögum H.C. Andersen.
Þær Anja Ísabella Lövenholdt og
Magna Rún Rúnarsdóttir hönnuðu
koffortin úr niðurstöðum ungu
sýningarstjóranna.
Þau hafa verið kynnt í öllum
grunnskólum bæjarins og eru nú
á fljúgandi ferð á milli kennslu-
stofa með verkefnum unnum
upp úr áherslum ungu sýningar-
stjóranna síðasta vetur. Árangur
af starfi þeirra er því mikill og
Margt forvitnilegt bar fyrir augum á sýningunni Sjórinn er fullur af góðum verum, sjórinn er fullur af rusli. MYNDIR/
Ljósmyndasýning, ljóðabók og lífræn ræktun
Inga Bríet Valberg, 9 ára, var einn ungra sýningarstjóra síðasta vetur
og stóð að ljósmyndasýningu ásamt Þóru Sif Óskarsdóttur, 14 ára.
Hún segir ferlið allt hafa verið æðislegt. „Það voru margir skemmti-
legir krakkar sem sköpuðu gott teymi. Mér leið mjög vel og ég hlakk-
aði alltaf til að mæta í næsta tíma,“ segir hún. „Það var rosa gaman á
Vatnsdropahátíðinni og skemmtilegt að sjá verkin okkar.“
Héðinn Halldórsson, 11 ára, var einnig í hópi ungra sýningarstjóra en
hann og Agla Björk Egilsdóttir, 12 ára, gerðu meðal annars ljóðabók.
„Vatnsdropinn var skemmtilegt og skapandi verkefni. Við héldum
meðal annars ráðstefnu með sérfræðingum sem ég lærði mikið af.
Útkoman úr verkefnunum var frábær og uppskeruhátíðin gekk svaka
vel.“
Sigurlín Viðarsdóttir, 14 ára, vann ásamt Brynju S. Jóhannsdóttur, 9
ára, að lífrænni ræktun og minni matarsóun. „Mér fannst ferlið mjög
skemmtilegt. Það var gott að geta sagt frá hugmyndum sínum og
það var æðislegt að sjá allt koma saman í flottri sýningu. Mér leið
alltaf vel þegar ég mætti á fundi. Það var gaman að tala við krakkana
og það var gott að vera með fólki sem hafði sama áhuga á náttúrunni.
Ég er mjög stolt af sýningunni. Ég lærði mikið um það hvernig það er
að setja saman sýningu og niðurstaðan var að mínu mati fullkomin,“
segir Sigurlín.
Ungir sýningarstjórar til í slaginn á listahátíð Vatnsdropans í sumar.
finnst aðstandendum Vatns-
dropans mjög ánægjulegt að geta
boðið nemendum og kennurum að
vinna með niðurstöður þeirra þar
sem lögð er áhersla á lestur, leik
og sköpun. Þannig lifa verkefnin
áfram.
Bókmenntir, jafnrétti, sjálfbærar
borgir og samfélög
Í vetur verður unnið með tvö
heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna, heimsmarkmið 5 um
jafnrétti og heimsmarkmið 11
um sjálfbærar borgir og samfélög,
í tengslum við bókmenntirnar.
Verkefni ungra sýningarstjóra í
ár snýst um að þau stýri listrænni
sýningu sem sett verður upp í
Kópavogi og einu af samstarfslandi
Vatnsdropans. Þeim býðst að hitta
sérfræðinga á sínu áhugasviði, fara
í gegnum vinnusmiðjur, vettvangs-
ferðir og taka þátt í umræðum um
þá listrænu stefnu sem þau kjósa
að taka.
Öll áhugasöm börn hvött til að
sækja um
Kópavogsbær hvetur öll börn
bæjarins sem áhuga hafa á að
vinna að skapandi verkefnum til
að sækja um en síðastliðin tvö ár
hafa ungir sýningarstjórar komið
að uppsetningu listsýninga, við-
burða og umræðna um málefni
sem þeir hafa áhuga á og ástríðu
fyrir.
Þátttaka í Vatnsdropanum
hvetur börn til að opna og virkja
hug sinn í gegnum skapandi ferli
sem lýkur með listsýningu sem
þau móta og ætlað er að sem flest
börn geti notið. n
Öll verkefni ungra
sýningarstjóra
snúast um klassískar
norrænar barnabók-
menntir og heimsmark-
mið Sameinuðu
þjóðanna.
Unnið var með þemað líf í vatni á fyrsta ári Vatnsdropans.
Unnið að Vatnsdropaverkefninu í Eistlandi.
Frá listahátíð Vatnsdropans sumarið 2022
2 kynningarblað A L LT 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGUR