Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.11.2022, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 22.11.2022, Qupperneq 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Kópavogsbær er í samvinnu við H.C. Andersen safnið í Danmörku, Múmínsafnið í Finnlandi og Ilon’s Wonderland í Eistlandi í Vatns- dropaverkefninu. Öll verkefni ungra sýningar- stjóra snúast um klassískar nor- rænar barnabókmenntir og heims- markmið Sameinuðu þjóðanna. Síðasta vetur vann hópurinn með heimsmarkmið númer 15, Líf á landi, en þá settu hinir ungu sýningarstjórar upp listahátíð við Menningarhúsin í Kópavogi. Þar sýndu þau meðal annars ljósmyndir af óboðnum gestum náttúrunnar, vöktu athygli á matarrækt, tóku upp hlaðvarp um dýr í útrýmingarhættu og útbjuggu ljóðabók um náttúruna. Öll verkefnin sem litu dagsins ljós voru hugarfóstur ungu sýningar- stjóranna sem fylgdu þeim eftir með kynningum og vinnu- smiðjum. Koffortin fljúgandi Í framhaldi af listahátíðinni voru haldnar vinnusmiðjur á Bóka- safni Kópavogs síðastliðið sumar þar sem hvatt var til lestrar og sköpunar. Að lokum urðu til fjórar ferðatöskur sem fengu nafnið Koff- ortin fljúgandi sem er tilvitnun í eina af sögum H.C. Andersen. Þær Anja Ísabella Lövenholdt og Magna Rún Rúnarsdóttir hönnuðu koffortin úr niðurstöðum ungu sýningarstjóranna. Þau hafa verið kynnt í öllum grunnskólum bæjarins og eru nú á fljúgandi ferð á milli kennslu- stofa með verkefnum unnum upp úr áherslum ungu sýningar- stjóranna síðasta vetur. Árangur af starfi þeirra er því mikill og Margt forvitnilegt bar fyrir augum á sýningunni Sjórinn er fullur af góðum verum, sjórinn er fullur af rusli. MYNDIR/ Ljósmyndasýning, ljóðabók og lífræn ræktun Inga Bríet Valberg, 9 ára, var einn ungra sýningarstjóra síðasta vetur og stóð að ljósmyndasýningu ásamt Þóru Sif Óskarsdóttur, 14 ára. Hún segir ferlið allt hafa verið æðislegt. „Það voru margir skemmti- legir krakkar sem sköpuðu gott teymi. Mér leið mjög vel og ég hlakk- aði alltaf til að mæta í næsta tíma,“ segir hún. „Það var rosa gaman á Vatnsdropahátíðinni og skemmtilegt að sjá verkin okkar.“ Héðinn Halldórsson, 11 ára, var einnig í hópi ungra sýningarstjóra en hann og Agla Björk Egilsdóttir, 12 ára, gerðu meðal annars ljóðabók. „Vatnsdropinn var skemmtilegt og skapandi verkefni. Við héldum meðal annars ráðstefnu með sérfræðingum sem ég lærði mikið af. Útkoman úr verkefnunum var frábær og uppskeruhátíðin gekk svaka vel.“ Sigurlín Viðarsdóttir, 14 ára, vann ásamt Brynju S. Jóhannsdóttur, 9 ára, að lífrænni ræktun og minni matarsóun. „Mér fannst ferlið mjög skemmtilegt. Það var gott að geta sagt frá hugmyndum sínum og það var æðislegt að sjá allt koma saman í flottri sýningu. Mér leið alltaf vel þegar ég mætti á fundi. Það var gaman að tala við krakkana og það var gott að vera með fólki sem hafði sama áhuga á náttúrunni. Ég er mjög stolt af sýningunni. Ég lærði mikið um það hvernig það er að setja saman sýningu og niðurstaðan var að mínu mati fullkomin,“ segir Sigurlín. Ungir sýningarstjórar til í slaginn á listahátíð Vatnsdropans í sumar. finnst aðstandendum Vatns- dropans mjög ánægjulegt að geta boðið nemendum og kennurum að vinna með niðurstöður þeirra þar sem lögð er áhersla á lestur, leik og sköpun. Þannig lifa verkefnin áfram. Bókmenntir, jafnrétti, sjálfbærar borgir og samfélög Í vetur verður unnið með tvö heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, heimsmarkmið 5 um jafnrétti og heimsmarkmið 11 um sjálfbærar borgir og samfélög, í tengslum við bókmenntirnar. Verkefni ungra sýningarstjóra í ár snýst um að þau stýri listrænni sýningu sem sett verður upp í Kópavogi og einu af samstarfslandi Vatnsdropans. Þeim býðst að hitta sérfræðinga á sínu áhugasviði, fara í gegnum vinnusmiðjur, vettvangs- ferðir og taka þátt í umræðum um þá listrænu stefnu sem þau kjósa að taka. Öll áhugasöm börn hvött til að sækja um Kópavogsbær hvetur öll börn bæjarins sem áhuga hafa á að vinna að skapandi verkefnum til að sækja um en síðastliðin tvö ár hafa ungir sýningarstjórar komið að uppsetningu listsýninga, við- burða og umræðna um málefni sem þeir hafa áhuga á og ástríðu fyrir. Þátttaka í Vatnsdropanum hvetur börn til að opna og virkja hug sinn í gegnum skapandi ferli sem lýkur með listsýningu sem þau móta og ætlað er að sem flest börn geti notið. n Öll verkefni ungra sýningarstjóra snúast um klassískar norrænar barnabók- menntir og heimsmark- mið Sameinuðu þjóðanna. Unnið var með þemað líf í vatni á fyrsta ári Vatnsdropans. Unnið að Vatnsdropaverkefninu í Eistlandi. Frá listahátíð Vatnsdropans sumarið 2022 2 kynningarblað A L LT 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.