Fréttablaðið - 22.11.2022, Page 16

Fréttablaðið - 22.11.2022, Page 16
Það er ekki bara tryggð við merkið sem veldur því að iðn- aðarmenn eiga mörg verkfæri frá sama merki. Brynhildur Björnsdóttir brynhildur @frettabladid.is ÁLFHELLU 12-14 HAFNARFIRÐI SÍMI 533 5700 ÁRSTÍG 6 AKUREYRI SÍMI 460 1500 HÖFUÐLJÓS HC60 V2 1200lm VR: 7-NITHC60 V2 Verð: 11.990 kr. BITASETT ESSVE XTR IMPACT 32stk VR: 7-ESSVE 10000285 Verð: 7.490 kr. BITASETT ESSVE XTR IMPACT 16stk VR: 7-ESSVE 10000287 Verð: 7.490 kr. HJÓLALJÓS BR 35 1800lm VR: 7-NITBR35 Verð: 19.900 kr. GUIDE 23 VETTLINGAR Fóðraðir og vatns- heldir. Verð: 2.990 kr. TOPPASETT 1/4’’ MM TJ1415 VR: 7-LU282730100 Verð: 5.500 kr. FAST LYKLASETT 8-19MM 10 STK VR: 7-LU117430108 Verð: 7.500 kr. HÖFUÐLJÓS UT 27 520lm VR: 7-NITUT27 Verð: 8.900 kr. HARÐIR PAKKAR um þessi jól! Veiga Dís Hansdóttir er húsasmiður og kraftlyft- ingakona en starfar sem innréttingasmiður eins og er, bæði við að smíða inn- réttingar og setja þær upp þó að hún grípi líka í húsasmíð- arnar af og til. Hún er 24 ára og mikið jólabarn. „Ég hef rosalega gaman af jólunum og öllu í aðdraganda þeirra og finnst þetta alltaf mjög skemmti- legur og huggulegur tími,“ segir Veiga Dís sem viðurkennir að hún hafi sjaldan fengið gjafir sem tengjast iðn hennar beint. „Þegar ég var yngri og nýút- skrifuð var verið að gefa mér tommustokka og blýanta, svona minni hluti sem passa í vinnubux- urnar, en ég hef annars lítið fengið af verkfærum í jólagjafir, meira í afmælisgjafir frá fólkinu mínu. Það er meira um að ég hafi fengið græjur að gjöf frá fyrirtækjunum sem ég er að vinna fyrir.“ Hún segir suma vinnuveitendur í bransanum spotta hvað starfsfólk vantar og gefa það í jólagjöf. „En sumir gefa líka gjafabréf og pening, það er allur gangur á því.“ Fljót að velja húsasmíðina Veiga Dís ákvað ung að gerast húsasmiður. „Pabbi minn, Hans Unndór Ólason, er húsasmiður og ég hef verið að skottast kringum hann frá því ég var lítil stelpa, að þrífa eða handlanga eða bara fylgj- ast með. En ég ætlaði samt ekkert endilega að feta í hans fótspor. Svo þegar ég var sextán ára fór ég á kynningu í Kórnum á fram- haldsskólunum. Þar var básinn hjá Iðnskólanum langstærstur og flottastur og ég datt þar inn og fór að skoða og fann að mér fannst þetta spennandi. Ég tók fullt af bæklingum og þegar ég sá að ég gæti verið jafnlengi í framhalds- skóla og allir jafnaldrar mínir og tekið stúdentspróf en líka sveins- próf um leið var ég fljót að ákveða mig. Það sem heillaði í byrjun var Mikilvægt að þekkja merkin Veiga Dís Hansdóttir, húsasmiður og aflraunakona, óskar sér þess að fá laser hallamál í jólagjöf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Gríðarlega mikilvægt er að þekkja merkið sem fagmaður- inn í lífi þínu notar að jafnaði svo gjöfin hitti í mark. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY að ég vissi að ég gæti farið beint út á vinnumarkaðinn en væri líka komin með starfsréttindi um allan heim. En svo finnst mér þetta líka mjög skemmtilegt starf og svo skemmdi ekki fyrir að ég þekkti til í húsasmíðinni og fannst hún eiga best við mig.“ Brauðbrettin best Veiga Dís er mikið í því að búa til jólagjafir á verkstæðinu. „Ég hef búið til bæði brauðbretti og smjör- hnífa,“ segir hún og viðurkennir að finnast sérstaklega skemmtilegt að gera brauðbrettin. „Það er hægt að gera þau svo fjölbreytt og margar útfærslur af þeim. Þá lími ég sjálf í brettin, hanna og pússa og geri allt sjálf og alltaf að gera tilraunir og eitthvað nýtt. Ég segi ekki frá því sem ég er að gera núna því það á að koma á óvart.“ Hún segir að sjálf væri hún til í að fá ýmis verkfæri í jólagjöf. „Ef ég mætti velja mér verkfæri fyrir sjálfa mig er margt sem ég væri til í að eignast til að geta sinnt mínum eigin verkefnum betur. Mig langar mjög mikið að eignast góða velti- sög eða borðsög og svo langar mig líka mikið í laser hallamál, ég á ekki minn eigin laser. Þannig að ef einhver er að lesa þetta, til dæmis kærastinn minn, þá er ég alveg til í góðan laser. Óþarfi að f lækja það. Og svo vantar mig líka gott kúbein, ég á kúbein en væri alveg til í að eiga vandaðra og betra.“ Hallamálin heilla Veiga Dís lumar á heilræðum fyrir þau sem langar að gleðja iðnaðar- mennina í lífi sínu. „Mig langar kannski að stinga því að þeim sem vilja gefa húsasmiðum einhver fag- tæki í jólagjöf að margir smiðir eru hrifnir af Hultafors hallamálum og langar að eignast sitt eigið.“ Og svo nefnir hún annað sem leikmenn gera sér sjaldnast grein fyrir. „Ef þú ætlar að gefa iðnaðar- manni verkfæri í jólagjöf þá eru batterísverkfæri mjög vinsæl,“ segir hún og bætir við: „Og þá skiptir mjög miklu máli að vita hvaða merki viðkomandi iðnaðar- maður notar. Ég nota til dæmis Makita en kærastinn minn notar Dewalt þannig að ef hann myndi vanta laser myndi ég alltaf kaupa Dewalt laser handa honum. Ástæðan er sú að það er svo mikil- vægt að batteríin hans virki í tækið svo hann sleppi við endalaust vesen með mismunandi batterí og hleðslutæki. Þannig sparar þú bæði peninga og vesen fyrir iðn- aðarmanninn sem þú ert að gefa. Það er ekki bara tryggð við merkið sem veldur því að iðnaðar- menn eiga mörg verkfæri frá sama merki heldur líka vegna þess að allt passar saman innan línunnar og það væri óþolandi að vera með fimm mismunandi merki og fimm mismunandi hleðslutæki og bat- terí í staðinn fyrir að vera bara með nokkur góð batterí og eitt hleðslutæki og geta skipt batterí- unum milli tækjanna. Þannig að ef þér þykir vænt um iðnaðarmann- inn í lífi þínu, kynntu þér þá hvaða merki viðkomandi notar.“ Barn í vændum Þessi jólin verða með nokkuð óhefðbundnu sniði hjá Veigu Dís. „Í ár ætlum við að fara til Spánar til tengdaforeldra minna og vera þar yfir jól og áramót. Jólin verða mjög íslensk samt, við borðum góðan mat og verðum saman í rólegheit- um, opnum pakka og svoleiðis.“ Næsta ár verður svo viðburðaríkt hjá Veigu Dís en hún á von á barni í maí. „Draumurinn er að smíða sjálf rúmið fyrir barnið, pabbi smíðaði rúmið fyrir mig á sínum tíma svo hann lumar á alls konar ráðlegg- ingum.“ n 4 kynningarblað 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURJÓLAGJÖF FAGFÓLKSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.