Fréttablaðið - 22.11.2022, Síða 16
Það er ekki bara
tryggð við merkið
sem veldur því að iðn-
aðarmenn eiga mörg
verkfæri frá sama merki.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur
@frettabladid.is
ÁLFHELLU 12-14
HAFNARFIRÐI
SÍMI 533 5700
ÁRSTÍG 6
AKUREYRI
SÍMI 460 1500
HÖFUÐLJÓS
HC60 V2 1200lm
VR: 7-NITHC60 V2
Verð: 11.990 kr.
BITASETT ESSVE
XTR IMPACT 32stk
VR: 7-ESSVE 10000285
Verð: 7.490 kr.
BITASETT ESSVE
XTR IMPACT 16stk
VR: 7-ESSVE 10000287
Verð: 7.490 kr.
HJÓLALJÓS
BR 35 1800lm
VR: 7-NITBR35
Verð: 19.900 kr.
GUIDE 23
VETTLINGAR
Fóðraðir og vatns-
heldir.
Verð: 2.990 kr.
TOPPASETT
1/4’’ MM TJ1415
VR: 7-LU282730100
Verð: 5.500 kr.
FAST LYKLASETT
8-19MM 10 STK
VR: 7-LU117430108
Verð: 7.500 kr.
HÖFUÐLJÓS
UT 27 520lm
VR: 7-NITUT27
Verð: 8.900 kr.
HARÐIR PAKKAR
um þessi jól!
Veiga Dís Hansdóttir er
húsasmiður og kraftlyft-
ingakona en starfar sem
innréttingasmiður eins og
er, bæði við að smíða inn-
réttingar og setja þær upp þó
að hún grípi líka í húsasmíð-
arnar af og til.
Hún er 24 ára og mikið jólabarn.
„Ég hef rosalega gaman af jólunum
og öllu í aðdraganda þeirra og
finnst þetta alltaf mjög skemmti-
legur og huggulegur tími,“ segir
Veiga Dís sem viðurkennir að
hún hafi sjaldan fengið gjafir sem
tengjast iðn hennar beint.
„Þegar ég var yngri og nýút-
skrifuð var verið að gefa mér
tommustokka og blýanta, svona
minni hluti sem passa í vinnubux-
urnar, en ég hef annars lítið fengið
af verkfærum í jólagjafir, meira
í afmælisgjafir frá fólkinu mínu.
Það er meira um að ég hafi fengið
græjur að gjöf frá fyrirtækjunum
sem ég er að vinna fyrir.“ Hún segir
suma vinnuveitendur í bransanum
spotta hvað starfsfólk vantar og
gefa það í jólagjöf. „En sumir gefa
líka gjafabréf og pening, það er
allur gangur á því.“
Fljót að velja húsasmíðina
Veiga Dís ákvað ung að gerast
húsasmiður. „Pabbi minn, Hans
Unndór Ólason, er húsasmiður og
ég hef verið að skottast kringum
hann frá því ég var lítil stelpa, að
þrífa eða handlanga eða bara fylgj-
ast með. En ég ætlaði samt ekkert
endilega að feta í hans fótspor.
Svo þegar ég var sextán ára fór
ég á kynningu í Kórnum á fram-
haldsskólunum. Þar var básinn
hjá Iðnskólanum langstærstur og
flottastur og ég datt þar inn og fór
að skoða og fann að mér fannst
þetta spennandi. Ég tók fullt af
bæklingum og þegar ég sá að ég
gæti verið jafnlengi í framhalds-
skóla og allir jafnaldrar mínir og
tekið stúdentspróf en líka sveins-
próf um leið var ég fljót að ákveða
mig. Það sem heillaði í byrjun var
Mikilvægt að þekkja merkin
Veiga Dís Hansdóttir, húsasmiður og aflraunakona, óskar sér þess að fá laser hallamál í jólagjöf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gríðarlega
mikilvægt er að
þekkja merkið
sem fagmaður-
inn í lífi þínu
notar að jafnaði
svo gjöfin hitti í
mark.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
að ég vissi að ég gæti farið beint
út á vinnumarkaðinn en væri líka
komin með starfsréttindi um allan
heim. En svo finnst mér þetta líka
mjög skemmtilegt starf og svo
skemmdi ekki fyrir að ég þekkti til
í húsasmíðinni og fannst hún eiga
best við mig.“
Brauðbrettin best
Veiga Dís er mikið í því að búa til
jólagjafir á verkstæðinu. „Ég hef
búið til bæði brauðbretti og smjör-
hnífa,“ segir hún og viðurkennir að
finnast sérstaklega skemmtilegt
að gera brauðbrettin.
„Það er hægt að gera þau svo
fjölbreytt og margar útfærslur
af þeim. Þá lími ég sjálf í brettin,
hanna og pússa og geri allt sjálf og
alltaf að gera tilraunir og eitthvað
nýtt. Ég segi ekki frá því sem ég er
að gera núna því það á að koma á
óvart.“
Hún segir að sjálf væri hún til í
að fá ýmis verkfæri í jólagjöf. „Ef
ég mætti velja mér verkfæri fyrir
sjálfa mig er margt sem ég væri til í
að eignast til að geta sinnt mínum
eigin verkefnum betur. Mig langar
mjög mikið að eignast góða velti-
sög eða borðsög og svo langar mig
líka mikið í laser hallamál, ég á
ekki minn eigin laser. Þannig að ef
einhver er að lesa þetta, til dæmis
kærastinn minn, þá er ég alveg
til í góðan laser. Óþarfi að f lækja
það. Og svo vantar mig líka gott
kúbein, ég á kúbein en væri alveg
til í að eiga vandaðra og betra.“
Hallamálin heilla
Veiga Dís lumar á heilræðum fyrir
þau sem langar að gleðja iðnaðar-
mennina í lífi sínu. „Mig langar
kannski að stinga því að þeim sem
vilja gefa húsasmiðum einhver fag-
tæki í jólagjöf að margir smiðir eru
hrifnir af Hultafors hallamálum og
langar að eignast sitt eigið.“
Og svo nefnir hún annað sem
leikmenn gera sér sjaldnast grein
fyrir. „Ef þú ætlar að gefa iðnaðar-
manni verkfæri í jólagjöf þá eru
batterísverkfæri mjög vinsæl,“
segir hún og bætir við: „Og þá
skiptir mjög miklu máli að vita
hvaða merki viðkomandi iðnaðar-
maður notar. Ég nota til dæmis
Makita en kærastinn minn notar
Dewalt þannig að ef hann myndi
vanta laser myndi ég alltaf kaupa
Dewalt laser handa honum.
Ástæðan er sú að það er svo mikil-
vægt að batteríin hans virki í tækið
svo hann sleppi við endalaust
vesen með mismunandi batterí
og hleðslutæki. Þannig sparar þú
bæði peninga og vesen fyrir iðn-
aðarmanninn sem þú ert að gefa.
Það er ekki bara tryggð við
merkið sem veldur því að iðnaðar-
menn eiga mörg verkfæri frá sama
merki heldur líka vegna þess að
allt passar saman innan línunnar
og það væri óþolandi að vera með
fimm mismunandi merki og fimm
mismunandi hleðslutæki og bat-
terí í staðinn fyrir að vera bara
með nokkur góð batterí og eitt
hleðslutæki og geta skipt batterí-
unum milli tækjanna. Þannig að ef
þér þykir vænt um iðnaðarmann-
inn í lífi þínu, kynntu þér þá hvaða
merki viðkomandi notar.“
Barn í vændum
Þessi jólin verða með nokkuð
óhefðbundnu sniði hjá Veigu Dís.
„Í ár ætlum við að fara til Spánar til
tengdaforeldra minna og vera þar
yfir jól og áramót. Jólin verða mjög
íslensk samt, við borðum góðan
mat og verðum saman í rólegheit-
um, opnum pakka og svoleiðis.“
Næsta ár verður svo viðburðaríkt
hjá Veigu Dís en hún á von á barni í
maí. „Draumurinn er að smíða sjálf
rúmið fyrir barnið, pabbi smíðaði
rúmið fyrir mig á sínum tíma svo
hann lumar á alls konar ráðlegg-
ingum.“ n
4 kynningarblað 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURJÓLAGJÖF FAGFÓLKSINS