Fréttablaðið - 22.11.2022, Side 28
Ég er að koma mér
upp verkfærum
sem nægja mér en hver
veit nema að það bætist
eitthvað í safnið þegar ég
opna jólapakkana.
Pálmi Gestsson
elin@frettabladid.is
Svíar hafa tilkynnt hver sé jóla
gjöfin í ár. Þetta er þrítugasta og
fimmta árið sem valin er jólagjöf
ársins af HUI, sænsku iðnaðar
samtökunum. Fyrir valinu varð
heimaprjónuð flík. Gjöfin sýni
ástvinum umhyggju því hún
hlýjar viðtakandanum en að baki
gjöfinni liggur mikil vinna og
sköpun, að því er Emma Her
nell framkvæmdastjóri segir við
sænska ríkisfjölmiðilinn svt.se.
Iðnaðarsamtökin réttlæta jóla
gjöf ársins með því að benda á að
með hækkandi verði á raforku hafi
áhugi á handverki aukist mikið.
Prjón hefur fengið byr undir báða
vængi hjá yngra fólki og mikið er
um það fjallað á samfélagsmiðl
inum TikTok undir myllumerkinu
knittok. Þar er jafnframt talað um
stríðið í Úkraínu og þá óvissutíma
sem við lifum á. Það verða því
mjúkir pakkar í ár.
„Jólagjöfin í ár kemur í öllum
gerðum, stærðum og kostn
aðarstigum sem fangar breyttar
aðstæður í heiminum sem árið
2022 hefur einkennst af,“ segir
Emma. Hlýir sokkar eða peysa eru
úrvalsgjafir fyrir allan aldur.
Jólagjöfin var valin út frá þremur
forsendum þar sem að minnsta
kosti þarf að fylla upp í eitt atriði.
Handprjónuð flík jólagjöf ársins
Handprjón hefur aukist mikið í Sví-
þjóð og er spáð að prjónuð flík verði
jólagjöfin í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Jólagjöfin þarf að tákna þá tíma
sem við lifum á, vera nýjung eða
að áhugi á henni sé nývaknaður
og hún þarf að skapa mikið sölu
verðmæti, það er að hver eining
seljist mikið. Handprjón uppfyllir
öll þessi skilyrði, tengist óróa og
kulda sem einkennir heiminn í
dag, auknum áhuga á handverki og
sala á garni hefur aukist. Svíar tala
um orkukreppu og eins gott að geta
hlýjað sér í vönduðu handprjóni. n
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Virka daga 10-17
Laugardaga 11-15
Hjarta heimilisins
Við hönnum innréttingar að þínum þörfum
2000 — 2022
Sýningareldhús - Draghálsi 4 - 110 Reykjavík - Sími: 535 1300 - verslun@verslun.is Netverslun á www.verslun.is
...hillukerfi
Vínkælar
WFG 185 - St. (hxbxd)
1850x595 x596 mm (+2 - +10°C)
WFG 155 - St. (hxbxd)
1550 x 595 x610 (+5 - +22°C)
WFG 45 - Stærð (hxbxd) 820 x595 x573
(+5 - +10 /+10 - +18°C)
Ta
kt
ik
5
69
2#
gummih@frettabladid.is
Pálmi Gestsson er þjóðinni kunnur
fyrir leikarastörf sín í áratugi en
honum er fleira til lista lagt. Pálmi
hefur í mörg ár dundað sér við að
smíða og kann því hlutverki ansi
vel.
„Ég var í húsasmíðanámi en fór í
leiklistarnámið áður en ég kláraði
það. Ég snerti ekki smíðarnar lengi
en hef gert það í seinni tíð. Ég hélt
að ég myndi ekki fara út í þetta
aftur en það er ákveðin hvíld og
íhugun sem fylgir smíðavinnunni
og ég segi að handverk sé eitt það
göfugasta sem við eigum. Ég fór að
hafa gaman af þessari vinnu aftur
og er núna búinn að vera að vinna
uppi á heiði, nánar tiltekið á Hey
tjarnar heiði, sem er ekki langt frá
Hólmsheiði. Við keyptum hús með
hektara lands og skógi sem þurfti
að hressa upp á og ég er búinn að
vera svolítið að dunda mér í því. Ég
hef svolítið gaman af því að höggva
skóg eða eins og berserkirnir gerðu,
ryðja skriður og grjót, smíða og
gróðursetja,“ segir Pálmi og bætir
við:
„Mér telst til að ég sé búinn að
gera upp fimm hús eða íbúðir. Ég
gerði til að mynda upp húsið sem ég
fæddist í í Bolungarvík.
Spurður hvort hann sé vel búinn
tækjum og tólum í smíðavinunn
unni segir Pálmi: „Ég á nokkur verk
færi heima en á meira fyrir vestan.
Ég er að koma mér upp verkfærum
sem nægja mér en hver veit nema að
það bætist eitthvað í safnið þegar
ég opna jólapakkana. Verkfæri eru
helstu jólagjafirnar sem ég óska
mér ef einhver ætlar að gefa mér
jólagjöf,“ segir Pálmi, og hlær.
Pálmi hefur nóg fyrir stafni í
leiklistinni en það eru að nálgast
40 ár frá því hann varð fastráðinn
við Þjóðleikhúsið. „Ég var að klára
tökur í sjónvarpsseríunni Heima er
best, sem Tinna Hrafnsdóttir er að
gera, og það er alltaf nóg að gera í
þessum bransa.“ n
Vill verkfæri í jólagjöf
Pálmi Gestsson kann vel við sig í smíðavinnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
starri@frettabladid.is
Sigurður Petersen hefur um nokk
urra ára skeið tálgað skúlptúra og
ýmsa karaktera úr tré en karakt
erarnir eru hver með sínu lagi og
engir tveir eins. „Ég starfaði sem
sjómaður mestalla starfsævi mína
en vann nokkur ár í landi áður en
ég fór á eftirlaun. Það var á þessum
síðustu árum á vinnumarkaði sem
ég fór að fikta við að tálga. Þetta
var ekki burðugt til að byrja með
en hefur skánað með árunum og er
nú orðið þannig að fólk vill eignast
það sem ég geri, mér til mikillar
ánægju.“
Fígúrur og verk Sigurðar er meðal
annars hægt að finna í hönnunar
versluninni Skúmaskoti við Skóla
vörðustíg í Reykjavík.
Frá því Sigurður hóf að tálga
hefur hann fengið margar gagn
legar jólagjafir tengdar þessu nýja
áhugamáli. „Ég fékk margar góðar
gjafir sérstaklega til að byrja með
en það hefur minnkað seinni árin
enda á ég nú orðið nóg af verkfær
um. Ég mundi segja að eftirminni
legasta jólagjöfin sem ég hef fengið
sé standborvél sem hefur nýst mér
mjög vel síðustu árin.“
Hann á erfitt með að nefna ein
hverja eina óskajólagjöf í ár. „Ef ég
ætti að nefna eitthvað eitt mundi ég
kannski segja alvöru brennisett.“
Áhugasamir lesendur geta
skoða fígúrur Sigurðar á Facebook
(Gluggagallery) og Instagram
(gluggagallery). n
Einstakar fígúrur
Jólasveinar Sigurðar Petersen lífga
upp á umhverfið.
8 kynningarblað 22. nóvember 2022 ÞRIÐJUDAGURJÓLAGJÖF FAGFÓLKSINS