Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1992, Page 21
Sjúkrastofnunin VOGUR (SÁÁ)
Meðalaldur vistmanna á Vogi hefur lækkað úr 34,1 í 32,9 ár meðal karla en
meðal kvenna úr 34,5 í 34,0 ár. Athyglisvert er að körlum og konum undir 20
ára er þarfnast vistunar á stofnunum hefur Qölgað á tímabilinu frá 1984-1991
en ekki fólki á aldrinum 20-29 ára.
í heild hefur meðalaldur vistmanna lækkað úr 34.1 í 32.9 ára meðal karla en
meðal kvenna úr 34,5 í 34,0 ára.
Fjöldi ungs fólks á Vogi 1984-1991 - nýkomur
8. mynd.
Misnotendur á kannabis
Samkvæmt skilgreiningu teljast þeir misnotendur sem hafa neytt kannabis
vikulega í eitt ár eða lengur. Eftirfarandi tafla sýnir fjölda þeirra sem vistaðir
voru á Vogi 1986-1991 vegna misnotkunar á kannabis. Þá er einnig sýnt hversu
stór hluti þessir einstaklingar voru af þeim sem vistuðust á stofnuninni vegna
misnotkunar á kannabis.
15-19 ára körlum hefur Qölgað en konum fækkað. Greinilega virðist vera
fækkun meðal 20 ára og eldri karla og kvenna er vistast á Vogi vegna
mistnotkunar á kannabis. Alls vistuðust 255 stórneytendur eða 18.8% allra
innlagna á Vogi 1984 en 217 eða 14,3% árið 1990.
21