Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1992, Blaðsíða 24
Unglingaheimili ríkisins
Á göngudeild Unglingaheimilis ríkisins komu 112 unglingar árið 1989. Á
árinu 1990 komu 137 unglingar á göngudeild og var því um umtalsverða
aukningu að ræða. Árið 1991 komu 146 unglingar á árinu en fyrri hluta þessa
árs (til 1. júlí) komu u.þ.b. 150 ný mál inn á göngudeild. Virðist því vera um
gífurlega og stöðuga aukningu að ræða.
Þessi aukning skjólstæðinga inn á göngudeild Unglingaheimili ríkisins á sér
eflaust ýmsar skýringar. Má þar nefna atvinnuleysi, aukið framboð fíkniefna,
upplausn kjarnafjölskyldunnar, vinnuálagforeldra, versnandi fjárhagsafkomu
heimilanna og fleira. Með aukinni kynningu á starfi Unglingaheimilis ríkisins
hefur aðsókn að göngudeildinni komið víðar að og aukist. Þá hefur eðli þess
vanda sem að skjólstæðingar koma með á göngudeildina einnig breyst verulega
á þessum árum.
Eins og áður eru flestir skjólstæðingarnir á aldrinum 14-16 ára. Þó er nokkur
tilhneiging til þess að nokkuð eldri unglingar leiti sér aðstoðar hjá UHR.
Fæöingarár skjólstæöinga Unglingaráögjafar 1991
10. mynd.
Flestir skjólstæðingar leituðu til UHR vegna vanda í tengslum, tjáskiptum og
vegna óöryggis í fjölskyldumálum, eða skólamálum. Flestir gáfu upp fleiri en
eina orsök fyrir hjálparbeiðninni. Oöryggi og samskiptaerfiðleikar í fjölskyldum
virðast skipta sköpum í mörgum tilfehum. Marga unglinga skortir öryggi og
hafa lélega sjálfsmynd. Margt bendir til þess að hér sé að finna eina af
meginástæðum þess að unglingar tapa áttum á lífsleiðinni. Nær þriðjungur
þeirra er í sjálfsvígshættu og mikið ber á kvíða og þunglyndi.
24