Fréttablaðið - 13.12.2022, Qupperneq 2
Við þurfum frábæran
leik á öllum vígstöðv-
um.
Snorri Steinn Guðjónsson,
þjálfari Vals í handbolta
Hildur vann Golden
Globe-verðlaun árið
2020 fyrir Joker.
Vöfflur og undirritun
Leikmenn úr handboltaliði
Víkings Reykjavík frá 1978
höfnuðu boði Valsmanna um
að vera gestir í heiðursstúku
Origo-hallarinnar, heima-
vallar Hlíðarendafélagsins, á
leik Vals og sænsku meistar-
anna í Ystad í Evrópudeild-
inni í kvöld. Svíarnir tengjast
miður skemmtilegu atviki í
sögu Víkings.
helgifannar@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR Valsmenn buðu liði Vík-
ings sem sló út lið Ystad í Evrópu-
keppninni í handbolta 1978
að vera heiðursgestir á viður-
eign Vals og Ystad í kvöld. Vík-
ingar höfnuðu þó boðinu og
vildu ekki ýfa upp gömul sár.
Það var árið 1978 sem
Víkingur hafði betur gegn
Ystad með tveimur naumum
sigrum í Evrópukeppni. Eftir
afrekið var veisla haldin þeim
til heiðurs í Svíþjóð. Nokkrir
Víkingar tóku þá upp á því
að hafa með sér jólatré af
staðnum og fara með það á
gististað sinn. Varð það til
þess að liðinu var vikið úr
keppni. Leikmenn liðsins
hafa ekki áhuga á að varpa
ljósi á þetta og höfnuðu því
boði Valsmanna um að fá að
sitja í heiðursstúku félagsins í
leiknum við Ystad í kvöld.
Málið var rifjað upp í helgar-
blaði DV tíu árum síðar. Þar
kemur fram að athæfi leikmanna
Víkings með jólatréð hafi farið
öfugt ofan í þáverandi stjórnar-
mann Alþjóðahandknatt leiks-
sambandsins, Svíann Kurt Wad-
mark. Blaðamaðurinn skrifaði á
sínum tíma að honum hefði tekist
að „bola Víkingum úr keppni með
að stoð hand genginna manna.“
Hann benti einnig á að þetta
hlyti að hafa talist afrek hjá Wad-
mark, þar sem gjörningur Víkinga
hefði ekki verið í neinu sambandi
við leikinn sjálfan. Wadmark vildi
Vilja ekki rífa upp sárin
Snorri Steinn, þjálfari Vals, sat fyrir svörum á
blaðamannafundi í gær en liðið mætir Ystad
sem Víkingur vann árið 1978, en þó ekki.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
einnig meina að leikmenn hefðu
borið ábyrgð á slysalegu rúðubroti.
Páll Björgvinsson var leikmaður
Víkings sem lék við Ystad 1978 og
lýsir hann örlögum Víkings í Evr-
ópukeppninni það árið sem „mestu
sorgar sögu sem hefur hent Víkinga“.
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálf-
ari Vals, er spenntur fyrir verkefni
kvöldsins og hvetur fólk til að mæta
á völlinn. „Það gefur heilan helling.
Mér finnst strákarnir hafa unnið
fyrir því að það komi Valsarar á
leikinn og styðji þá, en það getur
stundum verið erfitt hér á Hlíðar-
enda.“
Ljóst er að leikurinn verður
krefjandi. „Það er sama hverjum
við mætum í þessari keppni, ef við
eigum ekki góðan dag endar það
illa. Við þurfum frábæran leik á
öllum vígstöðvum og ef við náum
því er ég bjartsýnn,“ segir Snorri.
Leikurinn hefst klukkan 19.45 í
Origo-höllinni. n
Jólaleikur Fréttablaðsins
Finnur þú
jólasveinana í
Fréttablaðinu?
www.frettabladid.is/frettir/jolaleikurinn
kristinnhaukur@frettabladid.is
TÓNLIST Tónskáldið Hildur Guðna-
dóttir hlaut í gær tilnefningu til Gol-
den Globe-verðlauna fyrir tónlistina
í kvikmyndinni Women Talking.
Þetta er önnur tilnefningin sem
Hildur hlýtur en hún vann verð-
launin árið 2020 fyrir tónlistina í
kvikmyndinni Joker. Seinna það ár
vann hún Óskarsverðlaun.
Önnur skáld sem hlutu til-
nefningu eru Justin Hurwitz fyrir
Babylon, Alexandre Desplat fyrir
Pinocchio, Carter Burwell fyrir
The Banshees of Inisherin og John
Williams fyrir The Fabelmans. Þetta
er 27. tilnefning Williams.
Golden Globe-hátíðin verður sýnd
í sjónvarpi á ný eftir sjálfsskoðun og
endurskipulagningu. En hátíðin var
sniðgengin í fyrra vegna gagnrýni
minnihlutahópa um einsleitni. n
Tilnefnd til Golden Globe-verðlauna
Hildur á Golden Globe-hátíðinni.
Níu tonn af hlýjum
fatnaði til Úkraínu
Þórdís Kolbrún var stolt af sending-
unni til Úkraínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Hlýr íslenskur fatnaður
og 3.500 heimaprjónaðir lopasokk-
ar voru meðal þess sem flutt var frá
Íslandi til Úkraínu í gær. Alls fóru
um níu tonn af fatnaði frá Íslandi
en fatnaðinum var komið um borð
í kanadíska herflutningavél. Um er
að ræða vetrarútbúnað fyrir varnar-
sveitir Úkraínu og almenning sem
er annars vegar afrakstur sjálfboða-
vinnu þúsunda Íslendinga og hins
vegar kaup utanríkisráðuneytisins.
Fyrir utan fatnaðinn voru sjúkra-
gögn sem íslenskur aðili gaf.
Starfsfólk Landhelgisgæslunnar
pakkaði varningnum um helgina og
setti á bretti sem var síðan staflað
um borð í kanadísku herflutninga-
vélina. Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir utanrík isráðherra
mætti til að fylgjast með en auk
hennar voru fulltrúar frá Sendum
hlýju og hannyrðahittingnum auk
Jeannette Menzies, sendiherra Kan-
ada á Íslandi, þar samankomin. n
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, gæða sér á kjara-
vöfflunum í húsakynnum ríkissáttasemjara í gær eftir að nýir kjarasamningar voru undirritaðir. Sá siður hefur lengi verið viðhafður að bjóða upp á vöfflur
þegar undirritun er afstaðin og ekki að sjá annað en að vöfflurnar í gær hafi verið frábærar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 Fréttir 13. desember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ