Fréttablaðið - 13.12.2022, Blaðsíða 30
Það er alltaf áskorun
að byrja að semja þær
aftur.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Hinn spurningaóði Björn
Bragi Arnarsson kveðst viss
um að spurningakeppnir séu
hans fjöl í lífinu. Hann segist
elska að skrifa alls konar
spurningar fyrir alla á öllum
aldri, sem meira að segja
Steindi jr. og Dóri DNA geta
svarað.
odduraevar@frettabladid.is
„Spurningarnar eru það klárlega og
jú, ætli mathallirnar séu það bara
ekki líka,“ segir sjónvarpsmaðurinn
Björn Bragi Arnarsson hlæjandi,
spurður að því hvort þetta séu hans
fjalir í lífinu: spurningakeppnir og
mathallir.
Björn rekur tvær mathallir, í
Grósku og í Borgartúni, og stýrir
sjónvarpsþættinum Kviss á Stöð
2 milli þess sem hann gefur út
spurningaspilin Pöbbk viss og
Krakka kviss. Nú er hann nýbúinn
að gefa út þriðja Pöbb- og Krak-
kakvissið auk tveggja krakkaspila
til viðbótar: Annað er tileinkað fót-
bolta spurningum og hitt nefnist
Krakkaleikar, þar sem krakkar geta
leikið orð.
„Ég er alveg spurningaóður og
hef alltaf verið. Mér finnst ótrúlega
gaman að gera þetta aftur, enda var
fólk fljótt að klára síðasta spil,“ segir
Björn. Aðspurður hvort það sé ekki
óþolandi að þurfa að semja upp á
nýtt þegar fólk klári spurningarnar,
segir Björn hlæjandi:
„Það er alltaf áskorun að byrja
að semja þær aftur en líka ógeðs-
lega gaman að því hvað fólk hefur
verið ánægt með þetta. Þetta er auð-
vitað bara draumur fyrir mig, því
mér finnst líka sjálfum svo gaman
af þessu og hef sterka skoðun á því
hvernig góð spurningakeppni eigi
að vera.“
Aðspurður hvað hann eigi við,
nefnir Björn að hann hafi stundum
fundið það að margir detti fljótt út í
spurningaspilum ef þau eru of þurr
eða ef það eru of þungar spurningar.
„Markmiðið var alltaf að gera þetta
skemmtilegt og spyrja út í það sem
fólk hefur raunverulegan áhuga á,“
segir Björn, sem fellst á að það gangi
kannski misvel í misgömlum Trivial
Pursuit spilum fortíðar.
„Ég vildi klárlega að þetta yrði
fyrir alla á öllum aldri og það er
ekkert endilega sá sem er búinn að
lesa mest eða sá sem veit kannski
mest um landafræði sem mun vinna
þetta. Það sést kannski best á því að
Dóra og Steinda tókst að vinna Kviss
í sjónvarpinu,“ segir Björn í gríni.
Hann segist sérstaklega stoltur
af krakkaspilunum. „Mér fannst
yngsti hópurinn oft verða út undan
hvað varðar skemmtiefni og lang-
aði að gera þetta af sama metnaði
fyrir krakkana,“ segir Björn, sem lét
sér ekki nægja að gefa út eitt nýtt
krakkaspil heldur þrjú.
Næsta föstudag verður Björn með
jólakviss í Sykursalnum í Grósku.
„Það verður frítt inn og fullkomin
jólastemning fyrir alla sem eru eins
spurningaóðir og ég, já og líka alla
hina,“ segir Björn hlæjandi. n
Íslendingar sólgnir í að svara
spurningum Björns Braga
Björn Bragi er með kviss bæði á skjáum landsmanna, í partísal Grósku og í borðspilum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Geir Finnsson, enskukennari
„Ég er búinn að vera að horfa
á Andor upp á síðkastið
og er eiginlega bara mjög
hissa á því hvað þetta er
gott. Þetta eru í fyrsta lagi
fleiri þættir en í öðrum Star
Wars-seríum og það eru
engin geislasverð, enginn
máttur og enginn Svarthöfði.
Þess í stað eru alvöru hlutir í
húfi, þar sem spenna, pólitík og
njósnir eru í algleymingi. Þetta
eru raunverulega sturl-
aðir þættir, sem ég held
að muni ná til mun fleiri
en bara Star Wars-aðdá-
enda. Svona á raunveru-
lega að gera sjónvarp!“ n
Andor er sturlað sjónvarpsefni
n Á skjánum
Aðgát og örlyndi er ný þýðing á einni
vinsælustu bók Jane Austen, Sense
and Sensibility. Silja Aðalsteinsdóttir
þýðir og skrifar eftirmála.
Innbundin Rafbók
„Silja þýðir þetta mjög fallega
og skemmtilega ... strax orðin ein
af mínum uppáhaldsbókum
fyrir þessi jól.“
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR / KILJAN
Stórbrotið bókmenntaverk í þýðingu
Péturs Gunnarssonar sem einnig
ritar formála og skýringar. Hreinskilin
og opinská sjálfsævisaga eins helsta
hugsuðar átjándu aldar, Jeans-Jacques
Rousseau.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
22 Lífið 13. desember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ