Fréttablaðið - 14.12.2022, Síða 8
Mun meiri framlegð
er í hugbúnaðargeir-
anum en í tækjasölu-
geiranum.
Tekjur Origo koma nú
í mun meira mæli frá
tækjasölu en af þróun
og sölu á hugbúnaði
og þjónustu í tengslum
við hann.
olafur@frettabladid.is
Greining Rannsóknarseturs versl-
unarinnar á innlendri kortaveltu
í nóvember leiddi í ljós að Dagur
einhleypra er vinsælasti afsláttar-
dagur mánaðarins í netverslun
en Svartur föstudagur í verslun á
staðnum (e. in-store). Sama kemur
í ljós þegar dagleg velta nóvember-
mánaðar er skoðuð fyrir árin 2021
og 2020.
Rúmlega 4,9 prósent af korta-
veltu á staðnum í nóvember fóru
í gegnum greiðslukerfi fyrirtækja
þann 25.11, á Svörtum föstudegi.
Hlutfall kortaveltu á staðnum er
að jafnaði 3,2 prósent á meðaldegi
í nóvember. Rúmlega 12,4 prósent
af kortaveltu á staðnum fóru í gegn-
um greiðslukerfi fyrirtækja þessa
þrjá afsláttardaga. Það jafngildir
meðalveltu upp á tæpa 3,2 millj-
arða króna hvern afsláttardag á
meðan meðalvelta var rúmlega 1,8
milljarðar aðra daga mánaðarins.
Af innlendri kortaveltu má
greina áhrif afsláttardaganna í nóv-
ember en einnig sjást skýr merki
um vikudagaáhrif í kortaveltu
á staðnum, en sú velta er jafnan
mest á föstudögum og minnst á
sunnudögum. Hlutfall kortaveltu
á staðnum þann 11.11. á Degi ein-
hleypra jókst á milli ára en nú lenti
sá dagur á föstudegi í ár svo líklega
vega vikudagaáhrifin sterkt.
Rúmlega 10,4 prósent af korta-
veltu á netinu í nóvember urðu
þann 11.11. Hlutfall kortaveltu á
netinu er að jafnaði 2,8 prósent á
meðaldegi í nóvember. 22,1 prósent
af kortaveltu á netinu fór í gegnum
greiðslukerfi fyrirtækja þessa þrjá
afsláttardaga. Jafngildir það meðal-
veltu upp á tæpa 1,2 milljarða á
meðan meðalvelta var tæplega 330
milljónir aðra daga.
Hlutfall kortaveltu á netinu
á afsláttardögum hefur dregist
saman á milli ára en kortavelta á
netinu í nóvember jókst um 13,4
prósent á milli ára. Mikið bar á því
nú að afsláttardagar teygðu sig yfir
á aðra daga mánaðarins sem gæti
haft áhrif á dreifingu afsláttardaga-
veltunnar niður á daga en meðal-
veltan aðra daga mánaðarins jókst
um 16 prósent frá fyrra ári. n
Mikil áhrif vegna
afsláttardaga
Afsláttardagar teygjast nú yfir fleiri
daga en fyrr. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Dag einhleypra bar
upp á föstudag í ár sem
hafði áhrif á verslun.
577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
ÓSKASKRÍN GEFUR
SVO MARGT
Hugsanlegt er að Origo verði
afskráð úr íslensku kauphöll-
inni og fyrirtækinu skipt upp,
hluti þess jafnvel seldur og
áhersla nýrra eigenda muni
beinast að arðbærari tekju-
samsetningu en nú er til
staðar í félaginu.
olafur@frettabladid.is
Alfa Framtak tilkynnti um helgina
að sjóður í stýringu þess geri val-
frjálst tilboð í allt hlutafé Origo
hf., sem er skráð á aðallista Nasdaq
Iceland.
Boðin er 101 króna fyrir hvern hlut
og tilboðið metur því fyrirtækið á
um 14 milljarða króna. Á mánudag-
inn hækkaði verð hlutabréfa Origo
nokkuð í kauphöllinni í viðskiptum
innan dags en gengið við lokun
markaðar í gær var 99 krónur á hlut.
Þetta gefur til kynna að á mánudag
hafi einhverjir fjárfestar búist við að
Alfa myndi hækka tilboð sitt áður en
yfir lyki en svo hafi dregið úr vænt-
ingum um slíkt.
Valfrjálst tilboð felur í sér að til-
boðsgjafi setur ekki skilyrði um að
tiltekinn hundraðshluti núverandi
hluthafa gangi að tilboðinu eins og
oft er gert.
Tilboðið er lagt fram í nafni AU22
ehf., sem þegar á 25,8 prósent í félag-
inu.
Í tilkynningunni, sem send var til
kauphallarinnar um helgina, kemur
fram að Alfa Framtak hafi fylgst
náið með Origo og „aðdáunarverðri
vegferð starfsmanna, stjórnenda og
eigenda félagsins við uppbyggingu
eins öf lugasta upplýsingatækni-
félags Íslands“.
Ákveðin kaf laskil hafi nú átt
sér stað hjá félaginu í kjölfar sölu
Tempo til f járfestingasjóðsins
Diversis Capital og Alfa Framtak
vilji taka þátt í þeim umbreytingum
sem séu fylgifiskur slíkra kaflaskila
í samvinnu við stjórnendur og aðra
hluthafa með því að skerpa enn
frekar á þjónustuframboði og skipu-
lagi félagsins.
Í október seldi Origo 40 prósenta
hlut sinn í Tempo fyrir 28 milljarða,
sem þá nam því sem næst heildar-
virði alls félagsins í kauphöllinni.
Hagnaðurinn af sölunni nam 22
milljörðum.
Alfa Framtak boðar og að til skoð-
unar komi hvort Origo verði afskráð
úr kauphöllinni til að „skapa aukinn
sveigjanleika fyrir þær breytingar
sem ráðast þarf í.“
Eftir söluna á Tempo kemur
stærri hluti tekna Origo frá sölu
á tölvum og öðrum tækjum en af
þróun hugbúnaðar, sölu á honum
og þjónustu honum tengdum. Fram-
legð af hugbúnaðarstarfsemi er þó
mun meiri en framlegð af tækjasölu.
Verðmæti Tempo fólst einmitt að
mestu í sterkri stöðu þess félags á
sviði hugbúnaðar.
Aðilar á fjármálamarkaði sem
kunnugir eru tæknigeiranum og
Markaðurinn ræddi við telja að
þeir sem eru á bak við tilboðið
hyggist skerpa á hugbúnaðarsviði
Origo því að þar felist meiri tæki-
færi en í tækjasöluhlutanum. Lykil-
stjórnendur Origo búi yfir reynslu
og þekkingu sem sé dýrmæt í slíku
verkefni. Sumir spá því að Origo
verið afskráð úr kauphöllinni og
tækjasöluhlutinn seldur frá félag-
inu til að það geti einbeitt sér á arð-
bærari markaði.
Ljóst er að Alfa Framtak stendur
ekki eitt að baki tilboðinu. Félagið
er með 22 milljarða í stýringu sem
gefur því svigrúm til að leggja um
það bil þrjá milljarða í kaupin. Við-
mælendur Markaðarins telja líklegt
að einhverjir lífeyrissjóðir komi að
borðinu, auk þess sem byggt verði
að hluta á lántöku. Allt er þetta þó
háð því að kaupin gangi eftir. n
Origo mögulega afskráð og skipt upp
Gunnar Páll Tryggvason er fram-
kvæmdastjóri Alfa Framtaks sem gert
hefur tilboð í öll hlutabréf í Origo.
Origo (áður Ný-
herji) seldi hlut
sinn í Tempo
fyrir 28 milljarða
í október.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
8 Fréttir 14. desember 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN 14. desember 2022 MIÐVIKUDAGUR