Fréttablaðið - 14.12.2022, Page 12
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is, Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101
Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hvernig
má það
vera að
öllu því
einvala-
liði sem
telur sig
eiga erindi
á Alþingi
og situr
þar nú
takist ekki
betur upp
en þetta
fyrir okkar
hönd?
Á næsta ári
munum
við byggja
á þeim
góða
árangri
sem náðist
á þessu ári.
Ferðalag íraskrar fjölskyldu og f leiri
fram og aftur blindgötuna í íslensku
réttarkerfi og stjórnsýslu og út í heim
og til baka hefur vakið mikla og verð-
skuldaða athygli. Raunir þessa fólks
eru átakanlegar og erfitt fyrir okkur sem hér
erum á f leti fyrir að setja okkur í hin þungu
spor sem það hefur þurft að stíga.
En þetta skrítna sjónarspil afhjúpar auð-
vitað einnig ónýtt kerfi sem býður reglulega
upp á slíkar harðneskjulegar uppákomur með
ómældum þjáningum fyrir alla sem að koma
ásamt því að fjármunum er kastað í tóma vit-
leysu með því að senda fólk úr landi í fjölfaldri
lögreglufylgd.
Nú hefur sama ríkisstjórnin setið hér við
völd í heil fimm ár en samt virðist f lokkunum
sem að baki henni standa vera fyrirmunað að
koma hér upp stefnu og regluverki sem kemur
í veg fyrir langdregna harmleiki eins og þá
sem útspila sig æ ofan í æ á kostnað landflótta
fólks og þeirra sem hér búa.
Viðfangsefnið er að sönnu ekki einfalt en
hvernig má það vera að öllu því einvalaliði
sem telur sig eiga erindi á Alþingi og situr þar
nú takist ekki betur upp en þetta fyrir okkar
hönd?
Réttar forsendur
Heimsmeistaramótið í fótbolta er öldungis
frábær viðburður fyrir unnendur þessarar
æðstu íþróttar allra íþrótta í hvert sinn sem
það fer fram. Úti um alla jarðarkringluna er
fólk sem ann þessu stórmerka fyrirbrigði.
Áhuginn virðist þó beinast að mismunandi
hliðum fótboltans. Á meðan flestir eru eðli-
lega uppteknir af listinni sjálfri og kapp-
leiknum í mótlæti jafnt sem meðbyr þá eru
aðrir sem sjá þar fyrst og fremst fjárhagslegan
ávinning. Kannski er það ágæt blanda. Verra
er hins vegar ósvífna leiðindapakkið sem sér
heimsviðburði á íþróttasviðinu sem tækifæri
til að fegra sína eigin ímynd og ná pólitískum
markmiðum.
Íslendingar ættu kannski að íhuga að leggja
sitt lóð á vogarskálarnar til að leikmennirnir
og áhugafólk um íþróttina sjálfa geti endur-
heimt fótboltann og fengið að fylgjast með
HM án þess að vera með óbragð í munninum.
Það hlýtur bara að vera mögulegt. n
Hringl með fólk
og fjármuni
Garðar Örn
Úlfarsson
gar
@frettabladid.is
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
ser@frettabladid.is
Óvænt veikindi
Hætt er við að áköfustu knatt-
spyrnuáhugamenn þessa Ísa-
lands óttist bara eitt um þessar
mundir, en það er að þeim verði
boðið í eitthvert fjölskylduteiti á
næstkomandi sunnudag – og það
jafnvel um og upp úr miðjum degi.
Altso, á nákvæmlega sama tíma og
úrslitaleikurinn á Heimsmeistara-
mótinu í knattspyrnu fer fram í
Katar. Það eru einmitt aldrei meiri
líkur á einhverju svona jólaboði
en einmitt á aðventunni – og fari
svo að það bresti á með boði í
nánustu fjölskyldunni, er hætt við
að ofangreindir boltabósar leggist
í einhver óvænt veikindi og komist
hreint ekki að heiman. Við sjáum
hvað setur.
Upplífgun
Það þarf annars ekki að kvarta
undan boltaveislunni sem glatt
hefur mann og annan síðustu
vikur. Og það verður að segjast
alveg eins og er að fleiri leikir en
færri hafa verið alveg einstaklega
skemmtilegir og lipurlega leiknir.
Þar fyrir utan hefur fyrirsjáan-
leikanum ekki verið fyrir að fara,
bæði fyrir mót og á því miðju. Ítalir
komust ekki einu sinni á það, Þjóð-
verjar og Belgar sendir heim í riðla-
keppninni, Brasilíumenn í fyrsta
útslætti og Marokkó er spútnikk-
liðið. En það besta við mótið er
auðvitað tímasetningin. HM hefur
heldur betur lífgað upp á kolsvart
skammdegið. n
Við tókum mörg stór skref í loftslagsmálum á árinu
sem er að líða og fleiri verða stigin á næsta ári.
1. Við rufum níu ára kyrrstöðu í orkumálum með
afgreiðslu þingsins á þriðja áfanga rammaáætlunar.
2. Við kláruðum aflaukningarfrumvarpið sem
heimilar stækkun virkjana í rekstri án þess að fara í
gegnum rammaáætlun.
3. Við einfölduðum styrkjaumhverfi umhverfis-
vænnar húshitunar.
Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir
stórum skrefum í loftslagsmálum. Stór verkefni
tengd orkuskiptum í samgöngum, jarðhitaleit og ný
hringrásarlög eru á döfinni. Næstu skref verða stigin á
komandi ári.
4. Einum milljarði verður veitt í styrki til kaupa bíla-
leiga á bílum sem ganga fyrir hreinni orku. Markmiðið
er að auka akstur ferðamanna á hreinorkubílum og
auka um leið hlutfall grænna bifreiða á eftirmarkaði
þegar bílaleigur fara í endurnýjun á bílaflotanum
sínum.
Undanfarin ár hafa bílaleigur fengið ívilnanir í formi
afsláttar á vörugjöldum vegna innkaupa á bílum. Nú
munu fjármunirnir einungis fara í græna bíla.
5. 400 milljónir fara í orkuskiptaverkefni á þunga-
flutningabifreiðum á næsta ári.
Í heildina er því tæpur einn og hálfur milljarður
að fara beint í orkuskiptaverkefni í vegasamgöngum
til viðbótar við VSK-afslátt sem nemur 1.320 þúsund
krónum við kaup á rafbílum.
6. 150 milljónum króna verður veitt í jarðhita-
leitarátak en aukin jarðhitaleit og nýting jarðhita á
svæðum þar sem nú er notast við raforku og olíu til
húshitunar er mikilvægt skref í átt að orkuskiptum og
jákvætt skref í loftslagsmálum.
7. Um áramótin taka hringrásarlögin svokölluðu
gildi. Með þeim munum við með skilvirkari hætti nýta
verðmætin í sorpinu og minnka magnið sem er fargað.
Á næsta ári munum við byggja á þeim góða árangri
sem náðist á þessu ári. Við munum halda áfram að
taka stór og mikilvæg skref í loftslagsmálum. Við
vitum að verkefnið er ærið en við erum á réttri leið. n
Sjö stór skref
Guðlaugur Þór
Þórðarson
umhverfis-, orku-
og loftslagsráð-
herra
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 14. desember 2022 MIÐVIKUDAGUR