Fréttablaðið - 14.12.2022, Qupperneq 13
Um allan heim ræðst fasteigna
verð af byggingarkostnaði annars
vegar og markaðsverði hins vegar.
Að koma sér upp þaki yfir höfuðið
er í raun ævistarf hér á Íslandi fyrir
flest fólk og leiðangurinn því miður
mikil óvissuferð vegna verðbólgu og
vaxta umhverfis. Nánast rússíbana
reið. Enginn fettir samt fingur út í
það að verð íbúðarhúsnæðis ráðist af
markaðnum á hverjum tíma – og þar
geta sveiflurnar verið býsna miklar.
Sumum vex þessi óvissa í augum
og kjósa frekar að vera á leigumark
aði. Aðrir velja leigumarkaðinn af
því þeir vilja ekki festa sig niður og
enn aðrir hafa ekki fjárhagslegar
aðstæður til þess að ráðast í íbúða
kaup og fara þannig tilneyddir á
leigumarkaðinn. Á honum gilda
eðlilega sömu lögmál og við fast
eignakaup. Leiguverð hlýtur alltaf
að fylgja kostnaði og markaði.
Rétt eins og kaupverð íbúða. Þegar
grannt er skoðað er annað óhugs
andi. Og hefur ekkert með græðgi
að gera heldur eðlilega framlegð af
því fjármagni sem bundið er í rekstr
inum.
Íbúðafélagið Alma rataði í fjöl
miðla í síðustu viku vegna 30%
hækkunar á húsaleigu til eins við
skiptavinar. Sumir, jafnvel fjöl
miðlar, hafa talað um þessa hækkun
í fleirtölu og gefið þannig í skyn að
Alma hafi hækkað húsaleigu til allra
viðskiptavina sinna um 30%. Það er
alrangt. Þær hækkanir sem hluta af
leigjendum okkar var tilkynnt um
að kæmu til framkvæmda í upphafi
næsta árs voru að meðaltali innan
við tíu prósent. Þetta tiltekna tilfelli
kom upp vegna þess að verið var að
uppreikna og endurnýja samning
sem upphaflega var stofnað til þegar
leiguverð í miðbænum var lágt í
miðjum kórónuveirufaraldrinum.
Sá veruleiki er allt annar í dag.
Enda þótt breytingin hafi verið
fullkomlega eðlileg aðlögun að gjör
breyttu markaðsverði í miðborginni
skal, eftir nánari skoðun, fúslega
viðurkennt að standa hefði mátt
með nærgætnari hætti að tilkynn
ingunni um nýtt leiguverð þegar
hækkun var jafn mikil og raun bar
vitni. Á því er beðist afsökunar. Um
leið vil ég upplýsa að við höfum nú
þegar brugðist við vegna þessara
mistaka og umræðunnar sem skap
aðist í kjölfarið. Við höfum endur
skoðað verkferla okkar þannig að
við munum héðan í frá setja hækk
unum leiguverðs við endurnýjun
samninga ákveðin mörk, bæta upp
lýsingagjöf okkar og samskipti við
viðskiptavini og auka sveigjanleika
þeirra leigutaka okkar sem vilja leita
á önnur mið.
Samfélag okkar hefur byggt upp
sterkt félagslegt kerfi til þess að
tryggja þeim húsaskjól sem ekki
ráða við ríkjandi markaðsaðstæður.
Um grundvallaratriði og fagmennsku á leigumarkaði
Gunnar Þór
Gíslason
formaður stjórnar
Ölmu leigufélags
Til staðar eru líka óhagnaðardrifin
leigufélög sem njóta stuðnings ríkis
og sveitarfélaga og geta því boðið
húsnæði á lægra verði en ella. Alma
starfar hins vegar á frjálsum mark
aði og þarf að vera á samkeppnis
hæfu verði samhliða því að grund
valla rekstur sinn á eðlilegri afkomu.
Það hefur reynst erfiður línudans í
því óstöðuga efnahagsumhverfi sem
ríkt hefur á Íslandi um langt skeið.
Langstærsti hlutinn af leigu
markaði íbúðarhúsnæðis á Íslandi
er í höndum einstaklinga og verð
lagning þeirra ræðst af hinu einfalda
lögmáli um framboð og eftirspurn.
Sérstakar skyldur við leigutaka eru
oftast litlar sem engar og búsetu
réttur leigjandans afar takmark
aður. Leiguumhverfinu fylgir þannig
mikil og stöðug óvissa. Alma býður
hins vegar upp á leigusamninga til
allt að fimm ára á markaðskjörum.
Það þýðir að leigutakar geta gengið
að því vísu að raunverð leigunnar
hækkar ekki á þeim tíma.
Hlutverk fasteignafélaga á leigu
markaði er, og verður, að festa leigu
úrræðin í sessi sem öruggan valkost
þeirra sem af alls kyns ástæðum
vilja ekki skuldsetja sig upp í rjáfur
til þess að „eignast“ sitt eigið hús
næði. Það fólk á engu að síður að geta
notið skjóls og skilnings, öryggis
og áhyggjuleysis hvað heimili sitt
varðar. Alma íbúðafélag leggur sitt
lóð á þær vogarskálar af miklum
metnaði. Enn þá erum við einungis
með vel innan við 5% markaðshlut
deild á leigumarkaðnum en við
höfum jafnt og þétt verið að fjölga
leiguíbúðum okkar og auka þannig
framboð. Það er bjargföst sannfær
ing mín að vönduð fasteignafélög á
leigumarkaði séu með fagmennsku
sinni dýrmætur hluti af framtíðar
lausnum í húsnæðismálum þjóðar
innar. n
Sérstakar skyldur við
leigutaka eru oftast
litlar sem engar og
búseturéttur leigjand-
ans afar takmarkaður.
Leiguumhverfinu fylgir
þannig mikil og stöðug
óvissa.
Fylgstu með
frábærum tilboðum
á S22 línunni
fyrir jólin.
samsungmobile.is
Jólagjöfin í ár
Á myndinni eru Erling Haaland sem líklega er öflugasti framherji í knattspyrnu karla í dag og
Galaxy S22 Ultra sem líklega er öflugasti farsími sem hægt er að fá fyrir jólin 2022.
Erling skilur norsku en S22 línan skilur íslensku.
MIÐVIKUDAGUR 14. desember 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ