Fréttablaðið - 14.12.2022, Qupperneq 27
Tættir þættir
inniheldur þrjá-
tíu og sjö áður
óbirta þætti
eftir Þórarin
Eldjárn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
BÆKUR
Tættir þættir
Þórarinn Eldjárn
Fjöldi síðna: 180
Útgefandi: Gullbringa
Björn Þorláksson
Ég náði ekki að lesa lengra en að
blaðsíðu 12 áður er brast á með fyrsta
hláturskastinu við lestur á Tættum
þáttum. Reyndar hló ég svo hátt –
og það að orðalagi einu saman – að
tvö yngstu börnin mín vöknuðu
við lesturinn á sunnudagsmorgni á
aðventu og hugsuðu mér þegjandi
þörfina. Enginn hugsar þó Þórarni
þegjandi þörfina.
Nokkrum dögum fyrir lesturinn
hafði ég tekið þátt í athöfn í Hörpu,
dagskrá á degi íslenskrar tungu. Þar
var eitt kvæða Þórarins í forgrunni
og mér varð hugsað til gleðinnar,
hugmyndanna, leikjanna við tungu-
málið sem runnir eru úr smiðju
Þórarins í sögunnar rás.
Hjá mér urðu fyrstu kynni við
skáldið árið 1984 þegar mamma
gaf mér ljóðakver eftir ÞE í jólagjöf.
Ég lærði sum ljóðanna utan að og
gaukaði þeim upphátt að félögunum
mínum að loknu jólaleyfi. Enn heyr-
ist stundum í vinahópnum: „Strákar,
það er ekki lengur frumlegt að vera
frumlegur“ – tilvitnun í eitt ljóðanna
í bókinni Ydd sem hefst þannig:
„Trén fella laufin á haustin/dettur
þeim aldrei neitt skárra í hug?“
Vanhæfur gagnrýnandi
Það er því svolítið erfitt fyrir mann
sem er yfirlýstur aðdáandi Þórarins
Eldjárns að standa undir því hlut-
skipti að skrifa gagnrýninn dóm um
nýja bók. En eins og fyrrum náði höf-
undurinn strax í fyrstu sögu Tættra
þátta, Nytjadraumum, tengingu
við mitt innra sjálf. Til að ná slíkri
tengingu þarf höfundur að búa yfir
kímnigáfu. Hárfín kímni liggur að
baki f lestu sem Þórarinn kemur
nálægt. Henni er þó ekki smurt fram-
an í lesandann með látum heldur fer
lítið fyrir henni, stundum liggur hún
í leynum.
Lesanda er í Tættum þáttum boðið
að rata í alls konar ævintýr með
skáldinu. Yrkisefnið er gjarnan hið
ankringislega og óvænta. Úrdráttur
er stílbragð sem Þórarinn kann
utan að og textinn er oftast „kaldur“
í þeim skilningi að ekkert er ofsagt.
Engum óþarfa lýsingarorðum fyrir
að fara.
Ekki allt sem sýnist
Það sem mallar undir köldu yfir-
borði textans er aftur á móti æsi-
spennandi. Háð hefur löngum verið
í vopnabúri höfundar og ekki bregst
hann lesendum í þeim galdri þennan
daginn. Stundum kveikja þættir
bókarinnar frumlegt sjónarhorn á
veruleika sem maður hélt að væri
meitlaður í berg. Það gerist þótt ÞE
hafi sagt að það sé ekki lengur frum-
legt að vera frumlegur.
Það myndi skemma fyrir upplifun
lesenda að fara mörgum orðum um
innihald þáttanna, en allir eru þeir
Kímnin sem mallar undir köldu yfirborði
þess virði að lesa þótt misgóðir séu.
Eitt dæmi um snúning orða, þar sem
þversögn er beitt til að skapa nýtt
sjónarhorn er á blaðsíðu 72 þegar
manneskju sem nálgast aðra mann-
eskju og þeirri sem vill ná sambandi
er lýst sem „vinarhótandi“.
Stundum er ekkert skelfilegra en
nálægð við ókunnugt fólk. Skáldið
hefur enda að mestu kosið að fá að
vera í friði. Þórarinn lætur ekki bera
meira á sér en þörf er á. Það læðist að
manni sá grunur að honum sé jafnvel
meinilla við að skrifað sé í blöð um
bækurnar hans. Því bækurnar eru til
marks um það sem liggur undir. Og
að afhjúpa það sem kraumar undir
yfirborðinu gæti eyðilagt töfrana. n
NIÐURSTAÐA: Enn og aftur standa
lesendur í þakkarskuld við Þórarin
Eldjárn. Tættir þættir eru lúmsk
gleðistund, þar sem ekki er allt
sem sýnist.
Innbundin Rafbók Hljóðbók
Áhrifarík saga um unga listakonu
í París árið 1950 – ekkert skiptir máli
nema listin, en hún krefst fórna.
R A G N H E I Ð U R B I R G I S D Ó T T I R / M B L
„Fal leg og vel hugsuð skáld saga sem er
lík leg til þess að gleðja marga les endur.“
K R I S T J Á N J Ó H A N N J Ó N S S O N / F R É T T A B L A Ð I Ð
„Ég var mjög hrifinn af þessari bók.“
E G I L L H E L G A S O N / K I L J A N
„... grípandi og minnisstæð.“
S Ö L V I H A L L D Ó R S S O N / V Í Ð S J Á
,
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
MIÐVIKUDAGUR 14. desember 2022 Menning 23FRÉTTABLAÐIÐ